Stjarnan - 01.12.1930, Blaðsíða 1
&oö og Hilja
Guðs orÖ leggur hinum sanna söfnuði á þessum síÖ-
ustu timum þessi orÖ í munn: “Eg er narissa [rós eða
blóm] á Saron-völlum, lilja í dölunum.”—Sarons rós
óx á hinum grösugu unaðsfögru völlum, sem voru beiti-
hagar konungsins. Jesúm langar til að gjöra þig og
mig að angandi litfagurri rós í þessum syndumspilta
heimi, til þess að við hjálpum öðrum til að öðlast fvrir-
gefningu syndanna eins og hann fúslega fyrírgaf okkur
þegar við játuðum þær, og til þess að þeir verði hlut-
takandi í hinu guðdómlega eðli hans. Jesús er á gægj-
um til að vita hverjir eru á leiðinni til hans. Eátið
hann ekki verða fyrir vonbrigðum. Hann bíður eftir
öllum.
“Lilja í dölunum.” Hversu leðjukendur sem jarðveg-
urinn í dalbotninum kann að vera, þá er liljan, sem
þar vex, æfinlega snjóhvít. Þannig á hinn kristni að
vera í þessum heimi, jafnvel þótt synd og óguSleiki um-
kringi hann á allar hliðar. Jesús var uppalinn x svo
óguðlegri borg, að annara borga menn héldu að ekkert
gott gæti komið úr Nazaret, samt sem áður var hann
syndlaus. Hann langar að ífæra alla menn réttlætis
skikkju sína, til þess að þeir í augum Guðs líti út eins
og óflekkuð lilja. Eigum vér ekki að leyfa Jesú að
gjöra.það nú? —D- G.