Stjarnan - 01.07.1932, Síða 3

Stjarnan - 01.07.1932, Síða 3
STJARNAN 99 Verði þmn vilji “Guð vill að allir rnenn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum.” i. Tím. 2:4. Ó hve þaÖ er indælt aÖ mega biðja vorn himneska íoÖur: “Verði þinn vilji,’’ hann elskar oss og vill einungis það sem getur orÖiÖ oss til góðs og blessunar bæÖi hér og annars heims. í þessari bæn er innifalin öll fylling, gleði og sæla, sem vér getum notið bæði um tíma og eilífð, meira en vér fáum með orðum útmálað eða skilningur vor gripið; og Faðirinn á himnum vill veita oss þessa bæn, af hans hálfu stendur ekkert í vegi fyrir bæn- heyrslunni. En bróðir og systir, er þér alvara þegar þú biður þessa bæn, svo dýrðleg sem hún er, eða sýnir þú með breytni þinni, þótt þú hafir bænina á vör- unum, að þér sé ekki um aS Guðs vilji verði í þínu lífi? Ef til vill finst þér þessi spurning óþörf, en prófaðu sjálfan þig í ljósi Guðs orða, meðan þér er náðin framboðin ,og rödd Drottins hljómar til þín: “Eflið sáluhjálp yðar með ótta og andvara.” Guð vill að vér komumst til þekkingar á sannleikanum, hans heilaga orði. Jesús býður oss að rannsaka Ritninguna, ef vér vanrækjum þetta, eða hlýðum ekki því sem Ritningin býður, þá mótstöndum vér Heilögum Anda og erum því til hindrunar að Guðs vilji verði á oss. Guð hefir gefið oss sín blessuðu boðorð og eftirdæmi Erelsara vors til að lifa eftir, til þess að vér gætum lært að þekkja hans vilja og öðlast eilíft líf, því þótt Jesús hafi komið í heiminn og dáið fyrir mannanna syndir, þá tekur hann það skýrt fram, að þeir einir komi í himnaríki, sem gjöri vilja sins himneska föður (Matt. 7:21). Því fer svo fjarri að hann hafi leyst oss frá hlýðnisskyldunni við Guð. Hann kom til að frelsa sitt fólk frá þess syndum, en ekki til þess það mætti lifa áfram í synd- inni. “Syndin er lagabrot.” 1. Jóh. 3:4. Viljir þú komast í Guðs ríki og öðlast arfleifð heilagra í ljósinu, þá leitaðu meiri þekkingar á Guðs vilja í hans heilaga orði, og lagaðu líf þitt eftir því. Viljir þú ekki rannsaka Guðs orð af ótta fyrir því, að það muni sannfæra þig um einhverja synd, sem þú lifir í, en ert ekki fús til að leggja niður, þá sýnir þú, að frelsunarverk Krists hefir enn þá ekki verið framkvæmt í lífi þínu. Tíminn er naumur. Sýndu alvöru í því að leita Drottins nieðan hann er að finna, ákallaðu hann meðan hann er nálægur. Margir kvarta yfir kringumstæðum, tímaleysi, o. s. frv., sem sé því til fyrir- stöðu að þeir geti hlýtt skipun Frelsara vors, er hann segir: “Leitið um fram alt Guðs ríkis og hans réttlætis.” Þeir sem koma með slíkar mótbárur geta tæpast talið sig Jesú lærisveina, þar sem þeir hlýða ekki þessu boði hans, og treysta ekki hinu dýrðlega óbrigðula fyrirheiti, sem hann bætir við; að þá muni þeir fá hitt alt í viðbót. Sumir bera það fyrir sig að trúar- flokkarnir séu svo margir, og skoðanir manna á Guðs orði svo mismunandi, að það sé ómögulegt að vita hvað réttast er, (Framh. 4 bls. 102)

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.