Stjarnan - 01.11.1933, Qupperneq 4

Stjarnan - 01.11.1933, Qupperneq 4
104 STJARNAN asta strauminn, þá tók hann aftur til máls: “Eg lofaði þá aÖ eg skyldi ekkert meira hafa að gjöra viÖ kirkjur eða trú- arbrögð, eða Guð. Eg kom hingað svo eg gæti losnað viS alt þetta.” “Þessvegna hefir Guð sent mig hing- að,” sagði faðir Gynn blíðlega, “eg vissi ekki neyðarástand þitt, fyr en nú að þú sagðir mér það. Boðskapurinn er til þín, vinur minn. Viltu taka móti honum svo þú getir öðlast gleði og frið í trúnni ?’’ “Eg vil fá að vera í friði,” sagði ferju- maður gremjulega. “Hvað kemur þér við hverju eg trúi?” Faðir Gynn studdist þegjandi fram á staf sinn þar til þeir komust að árbakk- anum, svo sagði hann með mestu auð- mýkt: “Vinur minn, eg hafði engan ásetning til að móðga þig. Vertu umburðarlyndur við gamlan mann, sem kominn er á graf- arbakkann. Bráðum verö eg að fara yfir annað fljót, djúpt og breitt, þá þarf eg ekki að kalla á ferjumanninn eins og eg kallaði á þig í morgun. Ferjumaðurinn mun kalla á mig.” Rétt er hann slepti orðinu leit hann á morgunroðann, sem var að renna upp í austrinu, og gleðibros lýsti upp andlit hans er hann virti fyrir sér fegurðina. Ferjumaðurinn stóð þegjandi og horfði á gamla manninn þar ti! tárin korr u fram í augu hans. Þegar þeir voru lentir fann gamli mað- urinn, sér til mikillar hrygðar að harin hafði enga peninga á sér. Hann hafði gleymt þvi að hann daginn áður gaí fá- tækum betlara alt sem hann hafði í vasa sínum. “Kærðu þig ekki um það,” sagði ferju- maðurinn, “við skulum skoða það borg- að þar sem þú fluttir mér boðskap fyrir ekkert.” “Nei,” svaraði faðir Gynn, “eg hefi smápeninga í vasanum á hinum jakkanum mínum, eg fer og sæki þá. Eg er búinn að ljúka við erindi mitt hér, svo eg sný við og fer eftir peningunum.” Að svo mæltu fór hann yfir ána aftur, og gekk heimleiðis til kofa síns á ströndinni. Eftir nokkrar vikur kemur gamli mað- urinn aftur. “Eg gleymdi þér ekki, vin- ur minn,” sagði hann við ferjumanninn. “Hér er það, sem eg skulda þér. Eg ætla að hvíla mig hérna svolítið áður en eg fer á stað aftur. Það fara að fækka dagarnir, sem eg get flutt boSskapinn."’ Að svo mæltu settist hann á tréstump og lokaði augunum, svo hann sá ekki gleðina, sem lýsti sér í andliti ferjumanns- ins. “Það gleður mig að þú komst,” sagði ferjumaðurinn, “boðskapurinn var til mín, eg er sonurinn, sem þú talaðir um, og Guð er faðir minn. Það var gott hann tók ástvini mína í burtu, þeir hafa öðlast hvíld.” Nú varð hann svo hrærður aS hann um stund gat ekki orði upp kotnið, síðan mælti hann: “Það sem þú sagðir að ferjumaðurinn mundi kalla á þig, fest- ist í huga mínum. Eg var sannfærður um að eg væri ekki reiðubúinn að fara yfir hið hræðilega dimma fljót, ef eg væri kallaður snögglega. Eg vissi líka að þó ferjumaðurinn kæmi óvænt til konu minn- ar og barna þá voru þau viðbúin. Hann tók þau en skildi mig eftir af því eg var ekki viðbúinn.” Nokkrar mínútur var faðir Gynn orð- laus af gleði. Eoks sagði hann: “Guð blessi þig, sonur minn, og láti sitt auglit lýsa yfir þér, og gjöri þig kröftugan í orðinu, svo þú getir leitt marga til hans. Við skulum biðja.” Þarna á árbakkanum var nýi læri- sveinninn, ungi maðurinn vígður til starfs sins. Þetta er gömul saga hvort sem hún er sönn eða tilbúin, þá talar hún til hjartna vorra. Lestu hana aftur—hægt og hugs- andi, beygðu svo kné þin þar sem þú ert einn með Guði. Játaðu syndir þínar fyrir honum. Gefðu honum líf þitt, því Guð er faðir þinn, boðskapur hans er til þín. L. E. C.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.