Stjarnan - 01.11.1933, Blaðsíða 9

Stjarnan - 01.11.1933, Blaðsíða 9
STJARNAN 169 “Ver þú fyrirmynd trúaðra í orði, í hegðun, í kærleika, í trú, í hreinleika,’' segir GuÖs orS til vor. ÞaS er efamál hvort hugsunarháttur manna hefir nokk- urn tíma í sögu heimsins veriS eins spilt- ur og hann er nú. Áminning GuÖs til æskulýÖsins og til vor sem eldri erum er þessi: “VeriÖ fyrirmynd trúaÖra í hrein- leika.” AÖ náttúrunni til er hjartaÖ svik- ult fremur öllu ööru, og spilt er þaÖ. (Jer. 17^9)- En hjarta mannsins getur orÖi'S og á aÖ verÖa ummyndað svo full- komlega aÖ þaÖ komist í samræmi viÖ GuÖs heilaga vilja. í 24. sálmi Davíðs 3. og 4. versi er spurt: “Hver fær að stíga upp á fjall Drottins, hver fær að dvelja á hans heil- aga stað ?” Svarið er þetta: “Sá er hef- ir hreinar hendur og hreint hjarta, er eigi sækist eftir hégóma og eigi vinnur rang- an eiÖ.” Sömu hugsun er haldið fram í f jallræðunni, þar sem Jesús segir: “Sælir eru hreinhjartaðir því þeir munu Guð sjá.” Það finst engin undantekning frá þess- ari reglu. Sérhver einlægur kristinn mað- ur mun ná þessu takmarki því, “Hver sem hefir þessa von til hans, hreinsar sjálfan sig eins og hann er hreinn. ”Og sem börnurn Guðs er oss boðið: “Nálægið yður Guði og þá mun hann nálgast yður.” “Þvoið hendur yðar, J.ér syndarar, og hreinsið hjörtu yðar þér tvílyndu.” Þessi áminning talar til vor, sem nú erum uppi. Það er margt í heiminum, sem á vorum dögum dregur hugann frá Guði og freist- ar rnanns til syndar. En Guð hefir kraft til að hreinsa hjörtu vor af allri synd, og lyfta líferni voru og hugarfari, svo að vér í öllum greinum verðum honum þóknan- legir. Vér erum hvattir til að “bíða hinn- ar sælu vonar og dýrðaropinberunar hins mikla Guðs, og frelsara vors Jesú Krists, sem gaf sjálfan sig fyrir oss, til þess að hann leysti oss frá öllu ranglæti, og hreinsaði sjálfum sér til handa eignarlýð kostgæfinn til góðra verka.” Tít. 2113, 14. Til þess að geta lifað hreinu, heilögu lífi, bæði í hugsunum, orðum og verkum, verður hjarta manns að vera í stöðugu samfélagi við GuS, undirgefið vilja hans. Því ef vér gefum óvininum nokkurt ráð- rúm í lífi voru, þá fá óhreinar hugsanir strax inngöngu. Þegar vér gefum Guði líf vort þá skapar hann í oss nýtt hjarta og hreinsar oss af öllu ranglæti. Það er mögulegt að þroska hreint og heilagt hugarfar með því að láta hugann dvelja við það sem er hreint og heilagt. Eins er það með óhreinar hugsanir, ef einni einustu þeirra er leyft að staðnæm- ast í hjartanu, þá saurgar hún og spillir lífi mannsins og leiðir hann til glötunar. Minstu þess í öllu starfi þínu að þú ert samverkamaður Krists, hluthafi í frelsunaráformi Guðs. Kærleiki Krists á að streyma gegnum líf þitt eins og lækn- andi lífskraftur. Þegar þú leitast við að leiða aðra inn í kærleiks samband við frelsarann, þá láttu einlægni og alvöru orða þinna, óeigingirni þjónustu þinnar og glaðlyndi þitt, bera vitni um kraft náð- ar hans og kærleika í þínu eigin lífi. Láttu framferði þitt endurspegla eiginlegleika Guðs svo menn geti séð hann í allri sinni fegurð. Það er nauðsynlegt að vér gaumgæfi- lega gætum hjartna vorra svo þau ekki saurgist af hinum illu áhrifum umhverfis oss. Ef einhver hefði ekki meira vit en svo að hann opnaði úrið sitt og léti sand i það þá væri hann ekki þess verðugur að eiga gott úr. En er það þá ekki miklu heimskulegra að leyfa því inngöngu í

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.