Stjarnan - 01.11.1933, Qupperneq 11
STJARNAN
171
“Það skal ské á síðuátu dögum”
Einn af yngri starfsmönnum vorum,
J. A. Stevens ferðaðist nýlega um í Aust-
urlöndum og segir frá því sem eftir fylg-
ir:
“Kirkja vor í Japan hefir nú aÖ lokum
hlotiS viÖurkenningu ríkisins. SíÖastliÖin
tvö ár hafa 300 manns veriÖ skírðir þar.
Korea er undir stjórn Japana, jjar hafa
menn með gleði veitt fagnaðarerindinu
viðtökur. Fólkið er mjög fátækt en þar
hafa yfir 8,000 tekið kristni og þannig
öðlast hin himnesku auðæfi sem eru gulli
dýrmætari. Vér höfum nærri 3,000 með-
limi þar.
Filippa eyjarnar eru eitthvert frjósam-
asta akurlendið í víngarði Drottins, þar
höfum vér um 250 söfnuði með 15,000
meðlimum. Hvíldardagaskólarnir eru
nærri því helmingi fleiri þar heldur en
kirkjurnar, en vér höfum ekki nógu
marga starfsmenn til að hjálpa fólkinu,
sem þráir meira ljós og leiðbeiningu.
Fyrir nokkrum árum var ein af bókum
vorum seld í katólsku héraði, fóllcið las
hana og sannfærðist um helgi hvíldar-
dagsins. Það sendi strax í burtu katólska
prestinn, sem hafði þjónað þar, en bað oss
um að ljá sér kennara. Vér höfðum þá
engan að senda, þetta var fyrir þremur
árum síðan, og ennþá bíða þeir eftir kenn-
ara frá oss. Það er einkennileg afstaða,
—katólskur söfnuður, sem heldur GuSs
heilaga hvíldardag og biður um Sjöunda
dags Aðventista kennara. Þetta er aðeins
eitt dæmi af mörgum sem hafa orðið að
bíða 2—5 ár eftir því að fá kenslu í krist-
indóminum.
í norðurhluta Borneo eru 15,000 kristn-
ir menn, sem tilheyra öðru trúboðsfélagi,
en vegna f járskorts hafa trúboðarnir ver-
ið kallaðir heim, og söfnuðir þessir, sem
nú eru forstöðulausir, hafa sent oss boð
um að koma yfir og hjálpa þeim. Hvílíkt
tækifæri oss býðst hér, en vér höfum ekki
fé til að senda þeim starfsmann.
En hvað eru 65 milj. Japana, 21 milj.
Koreu búa, 13 milj. Filippaeyjar manna,
eða 38 milj. Malaya í samanburði við 490
miljónir Kínverja? Fjórði hluti alls
mannkynsins býr í Kína. Þar er erfið-
asta viðfangsefni vort í útlenda trúboðs-
starfinu. Það er markvert að leikmaður
einn, Le Rue að nafni, byrjaði trúboðs-
starf vort í Kína, á skipi, sem lenti í
Kongkong árið 1887. Bróðir Le Rue
hefir fengið hvíld eftir erfiði sitt í graf-
reitnum í Hongkong, en sæðið sem hann
sáði hefir borið ríkulegan ávöxt, því nú
höfum vér meðlimi í öllum fylkjum Kína-
veldis. Vér höfum yfir 553 hvíldardaga-
skóla í Kína með 17,000 meðlimum. Hin
tvö síðastliðnu ár hafa bókasölumenn
vorir starfað í 80 hundruSustu af öllum
fylkjum í Kína, og síðastliðin 5 ár hafa
þeir starfað í 95 hundruðustu af héruð-
um landsins. Fagnaðarerindið í bókum
og blöðum gengur með hraða yfir hið
víðlenda riki, og hér og þar finnast menn
sem hafa veitt boðskapnum viðtöku og
fagna í voninni um endurkomu frelsar-
ans. Starfsmenn vorir vinna af fremsta
megni, þeir verða oft aö fara gangandi
langar leiðir, og lifa aðeins á fæðu sem
innfæddir menn framreiða fyrir þá, oft
er það ekkert nema gulrófur, hnetur og
soðið vatn, auk þess eru þeir í sífeldri