Stjarnan - 01.11.1933, Side 12

Stjarnan - 01.11.1933, Side 12
172 STJARNAN hættu af ræningjum og kommúnistum. í öllum þessuni löndum hjálpar lækna- trúboÖiÖ til aÖ lina þjáningar og brjóta ni'Öur hleypidóma og hjátrú. Hversu oft er ekki fyrsta sporið yfir þrepskuld sjúkrahússins einnig fyrsta sporið til ljóss og sannleika fagnaöarerindisins. Starfs- menn vorir hjálpa jafnt fátækum og rík- um. Margir hinna ríku gefa höfðingleg- ar gjafir til að halda uppi starfinu. Einn af sjúklingum vorum spurði hve mikið það mundi kosta að annast einn sjúkling á sjúkrahúsi voru í heilt ár. Honum var sagt það myndi kosta um 600 dollara (mex.). Lækninum til mestu undrunar sagði sjúklingurinn að sig langaði til að borga kostnaðinn fyrir 5 sjúklinga það árið og afhenti honum 30 smá-böggla, sem hver hafði að geyma 100 mexikanska dollara. Kæru bræður og systur, þökkum guði að hvorki fjárþröng né undirokun getur hindrað framför Guðs málefnis. Árið 1933 lítur út fyrir að verða hið bezta ár í Austurlöndum fyrir útbreiðslu gleði- boðskaparins. Guð mun framkvæma starf sitt á þessum stutta tíma, sem eftir er þangað til Jesús birtist. Eftir að hafa með eigin augum séð sigurför fagnaðar- erindisins í dimmustu löndum heimsins, og sjálfur mætt bræðrum og systrum af mörgum kynkvíslum og tungumálum, þá get eg með enn sterkari sannfæringu tek- ið undir með Páli postula er hann segir: “Eg fyrirverð mig ekki fyrir Krists fagnaðarerindi, því það er kraftur Guðs til sáluhjálpar hverjum þeim, sem trúir,” hverrar þjóðar sem hann er, því “Drott- inn mun gjöra upp reikninginn á jörð- unni, bindandi enda á hann og ljúkandi við hann í skyndi,” og brátt mun hann koma sem koma á og ekki tefja. Látum oss með endurnýjuðum krafti og alvöru ganga að því starfi, sem Guð hefir gefið oss til að uppfylla ráðsályktun sína.” Yfir 15 miljónir manna hafa þegar heimsótt alheimssýninguna í Chicago. Henni verður lokiö 31. október. Umhyggja Guðs Á stríðstímanum bar það oft við að sprengikúlur sem lagðar höfðu verið í haf ið flutu inn að ströndum Noregs í nánd við skerjagarSinn. Menn urðu skelfdir og óttaslegnir þegar þeir heyrðu spreng- ingarnar, sem urðu af því kúlurnar rák- ust á land, eða þær voru sprengdar af sjóliðinu. íbúar lítillar eyjar hrukku upp ótta- slegnir einu sinni við slíkt tækifæri, og fóru strax til að grenslast um hvort nokk- uð slys hefði komið fyrir. Brátt fengu menn fregnir um hvernig alt hefði atvik- ast. “Kraftaverk, reglulegt kraftaverk,” var viðkvæðið á allra vörum, og eflaust hefir þessi atburður beint huga margra í hæö- irnar. Ljósturn, eða viti eyjarinnar hafði eyðilagst af sprengingunni, en sá sem gætti hans var frelsaður á undraverðan hátt. Hann var á leiðinni til að kveikja ljós- ið í turninum, en datt alt í einu í hug að lykillinn væri heima. Til að fullvissa sig um þetta leitaði hann þó í öllum vösum sinum, en því miður, hann varð að fara heim til að sækja lykilinn. En þegar hann kom heim fann hann þó lykilinn í vasa sínum. Svo hann hafði þá ómakað sig til einskis. Nei, alls ekki. Nú heyrðist sprengingin, en gæzlumaðurinn var óhult- ur í fjarlægð. Hefði hann ekki snúið heim, þá hefði hann að öllum líkindum verið nærstaddur þegar sprengingin varð og slys komið fyrir. Það var hepni sögðu sumir. Aðrir sögðu það hefði verið reglulegt krafta- verk. Þeir sem sáu Guðs handleiðslu í þessu atviki, vegsömuðu Guð, og hinir trúuðu í söfnuðinum ásamt presti þeirra viður- kendu að Guð vakir yfir börnum sínum og varðveitir þau. E. S.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.