Stjarnan - 01.11.1933, Qupperneq 15
STJARNAN
175
°g segi við þig: Óttast þú eigi, eg hjálpa
þér.” Jes. 41 :i3-
Þessi or'ð sagði hann að hefðu verið
sér mjög dýrmæt, er hann flaug yfir eyði-
land gegn um þoku, ofviðri eða rigningu,
en ekki sízt 5 dagana sem hann var viltur
í eyðimörkinni Sahara. Allan þann tíma
sagðist hann hafa haft þá öruggu sann-
færingu að Guð mundi leiða sig farsæl-
lega þangað sem ferðinni var heitið.
A. S. Maxwell.
Smávegis
Kæru vinir—
Vér erum mjög þakklát þeim, sem þrátt
fyrir alla erfiðleika standa í skilum við
Stjörnuna, því hún er í tilfinnanlegri fjár-
þröng nú sem stendur.
Yðar einlæg,
(Miss) S. Johnson.
Lundar, Man.
Dr. Salo Finkenstein, pólski reiknings-
fræðingurinn, er nú á ferð í Bandaríkj-
unum til að sýna vísindamönnum og
reikningsfræSingum við Yale, Harvard,
Columbia og aðra háskóla, hvílíkur yfir-
burðamaður hann er í reikningslist. Ff
til dæmis járnbrautarlest með 50—60
vögnum fer framhjá honum með all-
miklum hraða, og númerið á hverjum
vagni hefir 6 tölustafi, þá getur hann,
strax og síðasti vagninn er kominn fram
hjá, sagt hvað er samanlögð upphæð allra
númeranna á vögnunum. Ef hann er
spurður um hvað upphæðin væri nú orð-
in ef að einn dollar heíði verið settur á
vöxtu þegar Jesús fæddist með 4% í rentu
og allir vextir lagðir við höfuðstól-
inn tvisvar á hverju ári, þá svarar
hann viðstöðulaust slíkri einfaldri spurn-
ingu, og svar hans er rétt, þótt það ef til
vill taki spyrjandann fleiri klukkutíma
að prófa svarið. Dr. Finkelstein getur
ekki gjört grein fyrir því hvernig hann
fer að því að reikna svo fljótt og nákvæm-
lega. Hann segir um sjálfan sig: “Eg
STJARNAN
kemur út mánaðarlega
Útgefendur: The Canadian Union Con-
ference, S.D.A., 209 Birks Building,
Winnipeg, Man. Stjarnan kostar $1.50
á ári I Canada, Bandarikjunum og Is-
landi. Borgist fyrirfram.
Ritstjóri:
DAVÍÐ GUÐBRANDSSON.
Afgreiðslukona:
MISS S. JOHNSON,
Lundar, Man.
er betri eins og 40 reikningsvélar,” svo
vér sjáum að málfræðin hjá honum er
ekki alveg eins fullkomin og reiknings-
færslan.
Hagfræðingur einn í Þýzkalandi hefir
reiknað það út, að nú sem stendur séu 17
auðmenn í heiminum, sem gætu borgað
allar skuldir heimsins ef þeir notuðu allan
auð sinn til þess. Fimm af auðmönnum
þessum eru Ameríkumenn, þrír indversk-
ir furstar, þrír franskir, tveir Englend-
ingar, tveir þýskir, einn Grikki, og einn
Bolivíumaður.
Svefnveiki hefir gjört vart við sig í
stórum stil í St. Eouis, Missouri. 265
manns sýktust á einni viku og 39 dóu.
Svefnveikin er hitabeltis sjúkdómur, og
er ein af þeim hættulegustu sóttum sem
læknar ennþá ekki hafa getað ráðið bót á.
Samkvæmt síðustu skýrslum eru 25,-
870,000 Gyðingar í heiminum. Þar af
eru 9,886,000 í Evrópu, og 4,823,000 í
Ameríku. í löndum Evrópu eru þeir
fjölmennastir á Póllandi, þar eru 3,150,-
000, í Rússlandi 2,800,000, í Rúmeníu
920,000, og í Þýzkalandi 582.000.
Atvinnulausir menn í Danmörku eru
nú 85,000 að tölu. Fyrir ári síðan voru
þeir 115,000, svo lítið eitt hefir greiðst
úr síðan.