Fréttablaðið - 07.02.2019, Síða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
®
jeep.is
JEEP® ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
VIÐ KYNNUM NÝJAN JEEP® CHEROKEE
STAÐALBÚNAÐUR M.A. 2.2 LÍTRA 195 HÖ. DÍSELVÉL, 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING, JEEP® ACTIVE DRIVE MEÐ
4 DRIFSTILLINGUM, HÁTT OG LÁGT DRIF (LIMITED ÚTFÆRSLA), LEÐURINNRÉTTING, 8,4” UPPLÝSINGA- OG
SNERTISKJÁR, ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI, RAFDRIFIN OG SNERTILAUS OPNUN Á AFTURHLERA, APPLE &
ANDROID CARPLAY, FJARSTART, BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ OG SKYNJURUM, LYKILLAUST
AÐGENGI OG RÆSING, HITI Í FRAMSÆTUM, HITI Í STÝRI, LED AÐALLJÓS, LED AFTURLJÓS, RAFDRIFNIR OG
UPPHITAÐIR HLIÐARSPEGLAR, BLUETOOTH TIL AÐ STREYMA TÓNLIST OG SÍMA.
JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY FRÁ: 7.990.000 KR
JEEP® CHEROKEE LIMITED VERÐ FRÁ: 9.580.000 KR
CHEROKEE LONGITUDE LUXURY
FJÖLMIÐLAR Fréttablaðið.is fagnar í
dag eins árs afmæli sínu. Vefmiðill-
inn hefur á þessum tíma unnið sér
sess á íslenskum fjölmiðlamarkaði.
Markmiðið er áfram að færa lesend-
um traustar og áreiðanlegar fréttir,
öllum stundum dags.
Fréttablaðið.is hefur hlotið afar
góðar viðtökur lesenda allt frá fyrsta
degi, þann 7. febrúar 2018.
Vefmiðillinn var opnaður með
formlegum hætti af Lilju Alfreðs-
dóttur, mennta- og menningar-
málaráðherra, rúmri viku síðar,
eða 15. febrúar 2018. Alls hafa um
36.700 greinar verið ritaðar á vefinn
á þessu eina ári.
Hugmyndin um stofnun Frétta-
blaðsins.is var fyrst rædd árið 2016
og kom svo til framkvæmda árið
2017 þegar fyrirséð var að Frétta-
blaðið og Vísir.is yrðu aðskilin,
en miðlarnir tveir höfðu haldist í
hendur frá árinu 2004.
Gríðarleg vinna var lögð í hönn-
un og þróun vefsins þar sem áhersla
var lögð á einfaldleika og gott
aðgengi. Komu fjölmargir að verk-
efninu, bæði hér heima og erlendis.
Fréttablaðið þekkja langflestir
landsmenn. Blaðið hefur ratað í
póstkassa þeirra flestra í tæpa tvo
áratugi og þannig skipað sér sess í
lífi Íslendinga. Blaðinu er dreift á
Stór-Reykjavíkursvæðinu, Suður-
nesjum og Akureyri auk þess sem
sérstaka Fréttablaðskassa er að
finna víða um land.
Að auki má nálgast allar fréttir
blaðsins, og miklu meira til, á
hinum eins árs gamla vef, www.
frettabladid.is.
Greinarnar á vefmiðli Fréttablaðsins urðu 36.700 á fyrsta starfsárinu
Vefmiðli Fréttablaðsins var hleypt af stokkunum fyrir ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KJARAMÁL „Það sem gerðist á þessum
fundi var allavega það að í næstu
viku munum við ræða launaliðinn.
Það verður að koma í ljós hvort Sam-
tök atvinnulífsins muni þá leggja
fram eitthvert alvöru tilboð,“ segir
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður
Eflingar.
Áttundi fundur Samtaka atvinnu-
lífsins (SA) og Eflingar, VR, Verka-
lýðsfélags Akraness og Verkalýðs-
félags Grindavíkur fór fram í gær.
Aðilar munu hittast næst á miðviku-
daginn í næstu viku.
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri sagði í gær að það væri að
slakna á spennu í þjóðarbúskapnum
en það væri ekki samdráttur fram
undan nema til kæmu ný áföll. Verk-
föll og launahækkanir langt umfram
svigrúm yrðu slíkt áfall.
„Sem fulltrúi verka- og láglauna-
fólks þá finnst mér þessi orðanotkun
bara sjokkerandi. Að það sé áfall ef
við komumst skrefinu nær því að hér
náist einhvers konar efnahagslegt
réttlæti,“ segir Sólveig Anna.
Henni finnst skjóta skökku við að
manneskja sem samkvæmt öllum
íslenskum mælikvörðum hafi mjög
háar tekjur leyfi sér að tala svona til
fólks sem sé að berjast fyrir því að á
þremur árum verði lágmarkslaun
425 þúsund.
„Okkar félagsmenn eru að berjast
fyrir því að fá greitt eitthvað sem
mætti kalla mannsæmandi laun.
Þetta er fólk sem hefur með sinni
miklu vinnu keyrt hér upp uppgang
í efnahagslífinu og komið íslensku
samfélagi upp úr kreppu með sinni
geigvænlega miklu vinnu.“
Ummælin séu þó góð innsýn í
vissan hugarheim og afstöðu gagn-
vart lífi og tíma fólks.
Í dag verður kynnt ný skýrsla um
skattamál sem Stefán Ólafsson, pró-
fessor í félagsfræði, og Indriði H. Þor-
láksson, fyrrverandi ríkisskattstjóri,
unnu að beiðni Eflingar.
„Við erum að krefjast þess að
atvinnurekendur mæti okkur af
sanngirni en jafnframt að sækja
mjög markvisst fram gegn stjórn-
völdum. Við þurfum að snúa af þess-
ari ömurlegu vegferð sem við höfum
verið á. Það þarf að nota skattkerfið
sem raunverulegt jöfnunartæki með
því að endurúthluta gæðunum.“
Skattkerfið gagnist einkum ríkasta
fólkinu beinlínis á kostnað láglauna-
stétta sem í raun haldi samfélaginu
gangandi. „Það er ekki bara þessi við-
bjóðslega samræmda láglaunastefna
sem hér hefur tíðkast heldur ber rík-
isvaldið stóra ábyrgð á lífskjörum
fólks með því að nota skattkerfið
gegn því.“ sighvatur@frettabladid.is
Segir ummæli seðlabankastjóra
innsýn í afstöðu hans til fólks
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist sjokkeruð á ummælum seðlabankastjóra um afleiðingar
verkfalla og launahækkana. Félagsmenn sínir séu aðeins að berjast fyrir mannsæmandi launum fyrir störf
sín. Efling beinir sjónum sínum að ríkisstjórninni með nýrri skýrslu um skattamál sem kynnt verður í dag.
Sólveig Anna segir félagsmenn sína einungis vera að berjast fyrir mannsæmandi launum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Maður var dæmdur í
átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær fyrir vopnalaga-
brot og brot gegn valdstjórninni
með því að hafa opinberlega og án
heimildar klæðst einkennisjakka
sem áskilinn er íslensku lögregl-
unni og hluti af einkennisbúningi
hennar, við Lækjarvað í Reykjavík
síðastliðið sumar.
Þá hafði maðurinn einnig haft í
vörslu sinni útdraganlega kylfu, sem
ekki er ætluð til íþróttaiðkunar og
ein handjárn úr málmi.
Ekki kemur fram í dómnum
hvernig maðurinn komst yfir
umræddar eignir lögreglunnar en
tækin voru, auk jakkans, gerð upp-
tæk samkvæmt dómsorði.
Maðurinn var einnig dæmdur fyrir
fíkniefnabrot og fyrir umferðarlaga-
brot. – aá
Í fangelsi fyrir
að þykjast vera
lögreglumaður
Klæddist einkennisjakka lögreglu og
fékk dóm fyrir brot gegn valdstjórn-
inni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sem fulltrúi verka-
og láglaunafólks þá
finnst mér þessi orðanotkun
bara sjokkerandi.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður
Eflingar
7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
2
-7
C
3
0
2
2
4
2
-7
A
F
4
2
2
4
2
-7
9
B
8
2
2
4
2
-7
8
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K