Fréttablaðið - 07.02.2019, Page 24
Það lýsir meira innri manni
þess sem notar niðrandi orð
um annað fólk heldur en að
það lýsi á einhvern hátt þeim
sem talað er svona niðrandi
um.
Búnaður í Jaguar F-Pace er m.a.: 18" álfelgur, halógen-aðalljós með dagljósum, framsæti með vönduðu
áklæði og átta stefnu handvirkri stillingu, baksýnisspegill með sjálfvirkri deyfingu, gljásvart króm á
skrautlista, 10" Touch Pro, upplýstar sílsahlífar úr málmi með Jaguar-áletrun.
B
ún
að
ur
b
íls
á
m
yn
d
e
r
fr
áb
ru
g
ð
in
n
au
g
lý
st
u
ve
rð
i
VERÐ FRÁ: 8.890.000 KR.
Jaguar F-Pace Prestige.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
2
2
5
J
a
g
u
a
r
F
-
P
a
c
e
5
x
2
0
f
e
b
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
JAGUAR
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
JAGUAR F-PACE
ÞAÐ VILJA EKKI ALLIR
VERA EINS OG ALLIR HINIR.
Það kannast flestir við fílinn í stofunni. Það sem allir vita en enginn vill ræða. Stundum
gengur ágætlega upp að lifa með
fílnum, en oftast er tilvist hans óþol-
andi. Sérstaklega þegar hún veldur
því að mikilvæg samfélagsleg hags-
munamál eru ekki leidd til lykta.
Á hinum pólitíska vettvangi eru
nú mörg mikilvæg og umfangsmikil
mál til umræðu og úrlausnar. Mál
sem varða hagsmuni þjóðarinnar
mikið. Það má nefna hér tillögur rík-
isstjórnarinnar í húsnæðismálum og
samgönguáætlun sem er verið að
ræða á Alþingi þessa dagana. Enn
fremur áherslur varðandi aðstæður
og uppbyggingu í ferðaþjónustunni
og síðast en alls ekki síst stefnu ríkis-
stjórnarinnar í loftslagsmálum.
Þessi mál hafa öll verið kynnt af
hálfu ríkisstjórnarflokkanna þriggja
án þess að vikið hafi verið orði að
fílnum sem í þessu tilfelli er vel sýni-
legur og áþreifanlegur mitt í hjarta
Reykjavíkur.
Hvernig er hægt að leggja til bestu
mögulegar lausnir á húsnæðisvand-
anum á höfuðborgarsvæðinu; lóða-
framboð, hverfauppbyggingu og
skipulag byggðar, án þess að víkja
orði að þeirri staðreynd að undir
flugvellinum í Reykjavík liggja bestu
og dýrmætustu lóðirnar sem ríkið
getur boðið til lausnar á húsnæðis-
vandanum?
Hvernig er hægt að leggja til
úrbætur í samgöngumálum á höf-
uðborgarsvæðinu næstu 15 árin;
öryggismál og umferðarflæði, án
þess að taka inn í myndina áhrifin
sem uppbygging íbúðahverfa í
Vatnsmýrinni myndi hafa á þau
mál?
Ríkisstjórn VG, Sjálfstæðisflokks
og Framsóknar hefur kynnt háleit
markmið í tengslum við stefnu sína
í loftslagsmálum. Hvernig fara þau
mikilvægu markmið, og markmið
um umhverfismál almennt, saman
við þá tímaskekkju að hér situr flug-
völlur inni í miðri borg?
Og ferðaþjónustan. Það er ítrekað
kallað eftir stefnu í þessari stóru og
mikilvægu atvinnugrein. Hvernig
fer það saman að setja markmið um
meiri dreifingu ferðamanna um allt
land, m.a. með tilliti til þolmarka á
ákveðnum landsvæðum og hags-
muna ferðaþjónustuaðila á lands-
byggðinni, án þess að taka alvöru
umræðu um áhrif þess að hinir
erlendu gestir okkar þurfa að fara
alla leið inn í miðbæ Reykjavíkur ef
þeir vilja halda áfram flugleiðis út á
land?
Hvassahraunið er ákjósanlegur
kostur fyrir flugvöll sem sinnir
bæði innanlands- og millilandaflugi.
Fyrir bæði ferðamenn og íbúa lands-
byggðarinnar eru fleiri jákvæðir
þættir samfara því fyrirkomulagi
en flugvöllur í miðborg Reykjavíkur.
Reykjavíkurflugvöllur verður þar
sem hann er þar til samstaða næst
um aðra lausn. Það er dapurlegt að
verða vitni að því að ríkisstjórn VG,
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er
einhuga um að leita ekki eftir sam-
stöðu. Þessi ríkisstjórn hefur komið
sér huggulega fyrir í stofunni við
hlið fílsins. Það er vissulega svolítið
þröngt en þröngt mega jú sáttir sitja.
Og á meðan þurfa þessir íhalds-
flokkar ekki að hrista upp í kerfinu.
Fíllinn í hjarta Reykjavíkur
Hanna Katrín
Friðriksson
þingmaður
Viðreisnar
Fyrir nokkrum dögum þegar ég var að lesa gegnum kommentakerfið á Twitter þá
fékk ég allt í einu skrítna tilfinn-
ingu sem ég áttaði mig ekki á. Mér
leið eins og ég væri áhorfandi að
atburðarás sem væri engan veginn
í lagi. Ég áttaði mig síðan fljótlega
á því hvað það var, það voru orðin
sem margir notuðu, já, það voru ljót
orð og setningar sem blöstu við mér
á Twitter og á Snapchat. Um leið átt-
aði ég mig á því að þetta ljóta orða-
val er það sem er líka notað á öðrum
samskiptamiðlum.
Mig langar að biðja allt það fólk
sem er að tjá sig á opnum sam-
skiptamiðlum, eins og til dæmis á
Twitter sem er vinsæll samskipta-
miðill, að hafa í huga hvaða orð
eru valin. Það fer ekki mikið fyrir
málefnalegum umræðum á þessum
opnu samskiptamiðlum. Það er of
áberandi að fólk svari hvort öðru
með: „Ertu fatlaður eða ertu mongo-
líti.“ Til þess síðarnefnda var vægast
sagt vísað á mjög óviðeigandi hátt í
fjórða sjónvarpsþættinum af Ófærð
þegar einn leikarinn sagði: „Hann er
svona korter í Downs.‘‘ Sem betur
fer brást fólk við og tjáði sig um að
þetta væri bæði niðrandi og særandi
fyrir foreldra sem eiga börn með
Downs.
Við þurfum alltaf og allstaðar að
passa okkur á því hvað við segjum
við fólk, um fólk og hvaða orð og
setningar við notum í samskiptum
hvar sem við erum og þá sérstaklega
á opinberum vettvangi. Mér finnst
t.d. hugmynd fyrir þjóðina að hætta
að nota niðrandi orð um vini eða
ættingja eða sem eitthvert flipp. Það
lýsir meira innri manni þess sem
notar niðrandi orð um annað fólk
heldur en að það lýsi á einhvern hátt
þeim sem talað er svona niðrandi
um. Svona framkoma er allavega
undir engum kringumstæðum í lagi
og alls ekki fyndin.
Við ættum að sameinast um það
sem samfélag árið 2019 að vanda
okkur betur í samskiptum og tala af
virðingu um fólk og við fólk og segja
ekki annað en það sem við viljum að
sé sagt um okkur.
Gætum að orðavali okkar
Freydís
Kjartansdóttir
nemi við
Háskólann á
Akureyri
7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
2
-A
D
9
0
2
2
4
2
-A
C
5
4
2
2
4
2
-A
B
1
8
2
2
4
2
-A
9
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K