Fréttablaðið - 07.02.2019, Side 32

Fréttablaðið - 07.02.2019, Side 32
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Línan er framleidd undir merkjum Drew House. Broskallar eru í merki Drew á bolum og hettupeysum. Litirnir eru gulir og ljósbrúnir. Frá því var greint í nóvember að Justin hefði hug á að setja á markað eigið fatamerki. Nafnið Drew sækir hann í sitt eigið nafn þar sem það er millinafn hans. Hönnunin hefur staðið yfir í eitt ár en hefur loksins litið dagsins ljós. Fötin komu í takmörkuðu upplagi og aðeins í Los Angeles í Bandaríkjunum. Þau henta fyrir bæði kynin og kosta frá 48 dollurum fyrir bol sem er um 5.800 krónur upp í 148 dollara fyrir buxur eða 17.800 krónur. Allar vörurnar sem komu fyrst á markað eru uppseldar samkvæmt heimasíðu Drew House. Justin Bieber og eiginkona hans, Hailey Bieber fyrirsæta, hafa verið dugleg að setja innlegg á Instagram um fatalínuna. Justin klæddist lengi vel íslenskri hönnun frá Inklaw Clothing, 66°North og JÖR. Kannski hann hafi fengið einhvers konar hugmyndaljómun í íslensku fötunum. Bieber hefur alltaf verið hrifinn af frjálslegum fatnaði. Bieber er langt í frá sá eini frægi sem hefur hannað tískulínu. Það virðist reyndar vera í tísku um þessar mundir að koma með eigin hönnun á markað. Rihanna hefur nýlega sent frá sér nýtt fatamerki sem hefur verið vel tekið, Nicki Minaj gerði tískulínu fyrir Kmart árið 2013 og er þá aðeins lítið brot nefnt af því fræga fólki sem hefur komið nálægt tískuheiminum. Svo má ekki gleyma Victoriu Beck- ham sem einu sinni gerði garðinn frægan með Spice Girls en er nú einn af vinsælustu tískuhönnuðum heimsins. Bieber verður 25 ára þann 1. mars næstkomandi en var aðeins 14 ára þegar hann var upp- götvaður og er fyrsta alþjóðlega stjarnan sem til verður á YouTube. Fatalína Biebers seldist strax upp Justin Bieber hefur gengið í bros- kallabol eftir sjálfan sig síðan í haust. Nýja línan sem Justin Bieber hannaði seldist upp í hvelli þótt fötin séu ekki ódýr. Stuttbuxur Biebers fyrir þá sem þora. Poppstjarnan deildi þessari á Instagram-síðu sinni. Söngvarinn Justin Bieber hefur hannað sportleg- an klæðnað undir merkinu Drew. Fötin hafa slegið í gegn hjá unga fólkinu þótt verð- miðinn sé í hærra lagi. Fötin eru í anda söngvarans, víð og frjálsleg. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Flott föt, fyrir flottar konur Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15 Kíkið á myndir og verð á Facebook FRÁBÆR útsölulok 60–80% afsláttur Gerið góð kaup á fallegri vöru á frábæru verði Evonia er hlaðin bæti- efnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Myndirnar hér til hliðar sýna hversu góðum árangri er hægt að ná með Evonia. Evonia www.birkiaska.isFyrir Eftir Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 0 7 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 2 -6 D 6 0 2 2 4 2 -6 C 2 4 2 2 4 2 -6 A E 8 2 2 4 2 -6 9 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.