Velferð - 01.07.2007, Blaðsíða 23
c?
HjartaHeill
Merki og nafn
samtakanna vinna á
Hjartaheill er nafn Landssamtaka hjartasjúklinga og var nafninu
breytt á landsþingi samtakanna haustið 2004.
Mðrgum þótti nafnið fremur óþjált og dálitið neikvætt þegar
kom að orðinu „sjúklinga“. Margir höfðu lagt heilann í bleyti
þar til einn félagsmanna, Jón Þorvaldsson, kom með þessa
snjöllu hugmynd um HjartaHeill.
Landssamtök hjartasjúklinga voru stofnuð 8. október 1983.
Stofnfélagar voru 230, flestir hjartasjúklingar, vandamenn
þeirra og velunnarar, en einnig voru þar læknar og
hjúkrunarfólk.
Markmið Hjartaheilla eru:
• Að sameina félagsmenn til baráttu fyrir hagsmunamálum
hjartasjúklinga og gæta réttar þeirra á öllum sviðum.
• Að vinna að úrbótum á sviði heilbrigðisþjónustu og bættri
félagslegri aðstöðu hjartasjúklinga.
• Að afla fjár, sem varið er til velferðarmála hjartasjúklinga
og hrinda í framkvæmd markmiðum samtakanna.
• Að efla rannsóknir og fræðslu varðandi hjartasjúkdóma.
• Að bæta aðstöðu og tækjakost á sjúkrastofnunum til
rannsókna og lækninga á hjartasjúkdómum og skapa
aðstöðu til endurhæfingar.
• Að fylgjast með nýjungum á sviði lækninga og
endurhæfingar vegna hjartasjúkdóma.
• Vinna að kynningu á málefnum hjartasjúklinga meðal
almennings.
• Að stuðla að aukinni sérmenntun starfsfólks á sviði
hjartalækninga og endurhæfingar.
• Að upplýsa hjartasjúklinga um félagslegan rétt sinn m.a.
varðandi skattamál, fjárhagsaðstoð, tryggingamál,
lífeyrisréttindi, læknismeðferð erlendis o.fl.
• Að hafa samstarf við erlend félagasamtök, sem starfa á
svipuðum grundvelli og hliðstæðum markmiðum.
• Að efla samvinnu við innlend félagasamtök sem vinna að
velferðarmálum.
Kynnið ykkur vefsíðu Hjartaheilla og tengla:
www. hj ar taheill. is
Lyfjaval
A P Ó T E K
FAGLEG, TRAUST OG PERSÖNULEG PJÖNUSTA
€T\lCOD€
ÍSLENSKAR
LY FJARANNSÓKNIR ehf.
Með kærri þökk fyrir samstarfið
Velferð 23