Mosfellingur - 12.01.2017, Side 30
- Gaui og Völvan30
Köngulóar-
vefurinn
Ég var að koma heim úr ferðalagi. Fór á staði sem ég hef ekki komið
á áður og á staði sem ég hef áður
heimsótt. Þetta var frábært ferðalag.
Ég lærði margt nýtt og naut þess í
botn að vera með mínum nánustu.
Það hafði líka mikil áhrif á mig í
ferðalaginu að fylgjast með því hvað
við mannfólkið erum orðnir miklir
netfíklar. Ríkir, fátækir, börn, ungl-
ingar, fullorðnir.
Hvert sem maður kemur í dag er síminn í aðalhlutverki. Alls
staðar og alltaf er fólk í símanum.
Wifi er töfraorð ferðalangsins í dag.
Við verðum að vera tengd, alltaf.
Símarnir eru frábærir á margan hátt.
Við getum tekið myndir á þá, skapað
góðar minningar. Notað þá í mikil-
væg og gefandi samskipti. Við getum
geymt og náð í mikilvægar ferða-
upplýsingar í þeim. En við notum
þá miklu meira til að deyfa okkur.
Ég gægðist yfir öxlina á mörgum af
þeim sem voru í símanum, langaði
að sjá hvað þeir væru að stússast.
Langflestir voru á Facebook, að rúlla
í gegnum statusa. Augnaráðið tómt.
Fólk að passa sig að missa ekki af einhverju. Í stað þess að horfa í
kringum sig, upplifa það sem virki-
lega var að gerast, tala beint við þá
sem voru með þeim. Á staðnum. Ég
er núna að loka Facebookinu mínu
og hætta að nota fleiri netmiðla. Ætla
að nota minn tíma í staðinn í hluti
sem virkilega gefa mér orku. Íþróttir,
útivist, lesa bækur. En þetta er ekki
einfalt. Maður er eins og fluga í
köngulóarvef, Facebook heldur utan
um marga þræði í lífi manns með
alla sína hópa og tengingar. Kallar
sterkt á mann. Eins og
eiturlyf á fíkil. Aðal-
áskorunin er að
halda í fólkið sem
maður vill vera í
samskiptum við
án þess að þurfa
að fara í gegnum
Mark Zuckerberg og
félaga. Það mun
takast!
Heilsumolar gaua
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Þverholti 2 • Mosfellsbæ
Fasteignasala
Mosfellsbæjar
Sími: 586 8080
www.fastmos.ishafðu samband E.BAC
K
M
A
N
Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali
Viltuselja...
E
.B
A
C
K
M
A
N
www.fastmos.is
Sími: 586 8080
Þverholti 2
Blaðamaður Mosfellings mælti sér mót
við völvuna sem hafði eitt og annað að
segja um árið 2017. Það fyrsta sem völv-
an nefnir er hve bjart sé yfir Mosfells-
bæ og jákvæð og kraftmikil orka þó að
Mosfellingar fari þó ekki í gegnum árið
áfallalaust.
Eitt og annað sem völvan spáði fyrir
árið 2016 rættist þótt annað eigi eftir að
koma fram.
Völvan vill taka fram áður en hún byrjar
að allar völvuspár einkennist bæði af
því góð og því slæma, og að hver og einn
túlki það eins og hann vilji. Hún segir
jafnframt að spáin sé til gamans gerð þó
að heilmikið sé að marka hana.
Völvan sér loks líf færast í gamla
Kaupfélagshúsið en starfsemin
hugnast þó ekki öllum.
Nýtt fyrirtæki á sviði ferðaþjónustu
mun hefja rekstur í Mosfellbæ á
árinu. Fyrirtækið mun koma með nýjar
áherslur sem ekki hafa áður þekkst.
Nokkurra milljóna króna lottómiði
mun seljast í Kjarnagrilli með vorinu.
Lögreglan mun þurfa að hafa afskipti
af ólöglegu leiguhúsnæði á iðnaðar-
svæði í kringum Mosfellsbæ.
Mikið öngþveiti myndast við forsölu
á Þorrablót Aftureldingar, einhverjir
þurfa að sætta sig við að fá ekki miða og
verða að reyna aftur að ári.
Völvan sér stóran samning bæjaryfir-
valda við enn eitt sjúkrahúsið. Ekkert
verður þó af áformunum frekar en áður.
Breytingar verða á Útsvars-liði
Mosfellsbæjar. Engin leiðindi fylgja í
kjölfarið og mun liðið ná lengra en oft
áður.
Völvan sér einhverjar breytingar við
Blikastaðalandið sem mun fara
misvel í bæjarbúa.
Það verður mikil fólksfjölgun í
Mosfellsbæ á árinu og munu margir
landsþekktir einstaklingar keppast við að
kaupa eignir í bænum.
Völvan sér einhver vandamál í
sambandi við undirheimana sem
tengjast inn í bæjarfélagið, jafnvel erlenda
klíkustarfsemi.
Nýtt Brúneggjamál mun koma upp
en völvan sér ekki hvaða atvinnu-
grein tengist málinu.
Ný starfsemi, sem mun ganga vel,
kemur í gamla skátaheimilið við
Varmá.
Nýja slökkvistöðin við Skarhólabraut
á eftir að sanna gildi sitt svo um
munar.
Völvan sér fyrir sér opinbera
forsetaheimsókn Guðna Th. í
Mosfellsbæinn á árinu.
Kirkjumál verða áberandi á árinu og
ekki er enn fyrirséð hvar ný kirkja
mun rísa.
Völvan skynjar að mikið verðstríð
verði milli apóteka í bænum, sem
mun fara úr böndunum.
Nýtt kaffi- eða veitingahús mun opna
í Álafosskvosinni á árinu. Það mun
verða bæði vinsælt og farsælt.
Frægðarsól mosfellsku hljómsveitar-
innar Kaleo mun halda áfram að rísa
á árinu þrátt fyrir einhverjar breytingar.
Völvan sér mikla aukningu í
gistirýmum fyrir ferðamenn í
Mosfellsbæ en sér ekki alveg hvort um er
að ræða hótel, gistihús eða aukið framboð
af íbúðum á airbnb.
Völvan sér bikar og rauðar treyjur en
er ekki klár á hvaða íþrótt um ræðir.
Ný bygging við golfvöllinn mun verða
mikið í umræðunni og ekki sér fyrir
endann á þeim framkvæmdum.
Kennarar í Mosfellsbæ verða mikið í
fjölmiðlum vegna einhvers máls sem
kemur upp.
Völvan sér mikla og langvarandi
hátíð í kringum 30 ára afmæli
Mosfellsbæjar.
Mosfellsk bruggverksmiðja mun
ryðja sér til rúms.
Eurovision-ævintýri Mosfellinga er
lokið. Völvan sér ekki neinn úr
bæjarfélaginu ná árangri á þeim vettvangi
í nánustu framtíð.
Völvan sér fyrir sér
harðan árekstur.
Björgólfur Thor mun eignast hlut í
fyrirtæki í Mosó sem mun blómstra í
kjölfarið.
VölVa Mosfellings 2017
völvan sér ýmislegt
gerast á árinu
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la