Mosfellingur - 02.02.2017, Blaðsíða 20
Hulda tók á móti mér í húsakynn-um Rauða Krossins í Þverholti. Námskeiði í ensku fyrir hælisleit-
endur var að ljúka og eftir að þeir höfðu
kvatt settumst við niður og byrjuðum að
spjalla. Ég tók strax eftir því hvað Hulda
hefur einstaka nærveru, hún er hlý,
brosmild og gefandi.
Rauði krossinn í Mosfellsbæ sinnir ýms-
um verkefnum í nærsamfélaginu ásamt
því að taka þátt í verkefnum á landsvísu.
Kjalarnes og Kjós tilheyra líka starfs-
svæði deildarinnar svo svæðið er býsna
víðfemt.
Hulda Margrét er fædd í Kaupmanna-
höfn 24. nóvember 1976. Foreldrar hennar
eru þau Guðrún Edda Guðmundsdóttir og
Finnbogi Rútur Hálfdánarson en þau eru
bæði lyfjafræðingar. Hulda á tvö yngri syst-
kini, Guðrúnu fædda 1981 og Guðmund
Sigurð fæddan1985.
Foreldrar Huldu fluttu frá Danmörku til
Reykjavíkur þegar Hulda var á fyrsta ári.
Þau byggðu sér svo hús í Mosfellsbæ og
fluttu þangað þegar hún var á sjötta ári.
„Ég lék mér mikið úti þegar ég var barn.
Á sumrin var ég nær öll kvöld úti á auða
svæði eins og við kölluðum leiksvæðið á
milli Bergholts og Barrholts. Þar voru spil-
uð heilu fótboltamótin með krökkunum úr
hverfinu.“
Frábært að alast upp í Mosó
„Það var frábært að alast hérna upp. Ég
gekk í Varmárskóla eins og öll börn í Mos-
fellsbæ í þá daga. Ég lærði á píanó og söng
í barnakórnum í nokkur ár en íþróttirnar
áttu hug minn allan og ég hætti í tónlist-
inni og æfði fót- og handbolta af kappi all-
an grunnskólann.
Ég útskrifast úr Menntaskólan-
um við Sund 1996. Námið lá vel
fyrir mér og þetta var skemmtilegur
tími. Ég var enn á kafi í fótboltan-
um og æfði af krafti öll menntaskólaárin.“
Lærði að standa á eigin fótum
„Að loknu stúdentsprófi ákvað ég að
taka mér árs frí og hugsa málið hvað ég
vildi læra. Ég flutti til Brussel til að gerast
au-pair og læra frönsku. Það var mikil og
góð lífsreynsla og ég lærði að standa á eigin
fótum. Stuttu eftir að ég flutti út kynntist ég
manninum mínum, Allani Richardson.
Eftir tæpa árs dvöl í Brussel ákvað ég að
fara í háskólanám til Amsterdam. Ég valdi
alþjóðasamskipti með þróunarlandafræði
sem aukagrein og útskrifaðist með meist-
arapróf árið 2003.
Það var ekki auðvelt að fá
vinnu tengda náminu í Hol-
landi, ég vann sem aðstoð-
armaður bókara þar til við
fluttum heim til Íslands í ágúst 2004.“
Gaman að taka þátt í uppbyggingunni
Við komuna til Íslands hóf Hulda störf
sem upplýsingafulltrúi á Gljúfrasteini,
heimili Halldórs Laxness, sem búið var að
breyta í safn. „Ég vann á Gljúfrasteini í tæp
tólf ár. Það var lærdómsríkur tími og virki-
lega gaman að fá að taka þátt í uppbyggingu
á safninu alveg frá upphafi en það opnaði
haustið 2004. Verkefnin voru fjölbreytt, allt
frá því að taka á móti gestum, skrifa greinar
og skipuleggja viðburði og svo fór maður í
snjómokstur ef svo bar undir,“ segir Hulda
kímin.
Fjögur börn á sjö árum
„Eftir komuna til landsins bjuggum við
hjá foreldrum mínum en keyptum okkur
svo íbúð í Leirutanga þar sem við búum
enn. Eiginmaður minn Allan, sem er
menntaður hljóðmaður, fór að vinna sem
frístundaleiðbeinandi og skólaliði en hann
starfar í dag á Skálatúni.
Ég var rétt tæplega þrítug þegar frum-
burðurinn, Guðrún Aisha, fæddist 2006.
Hin þrjú fylgdu svo í kjölfarið. Anna Malia
2008, Aron Rútur 2011 og Rakel Elaisa 2013.
Elstu þrjú spila fótbolta með Aftureldingu
og sú yngsta hefur
verið í íþróttaskól-
anum.
Áhugamálin okk-
ar eru að njóta lífs-
ins með fjölskyldu
og vinum og okkur
finnst gaman að
ferðast innanlands
og utan. Draumur-
inn er að komast á
æskuslóðir eiginmannsins
til Aruba í Karíbahafinu og
aldrei að vita nema það verði
að veruleika.“
Tryggir virðingu fyrir
mannlegu lífi
Í lok febrúar á síðasta ári
breytti Hulda um starfsvett-
vang og starfar nú sem verk-
efnastjóri hjá Rauða krossin-
um í Mosfellsbæ í 60% starfi
auk þess sem hún starfar við
þýðingar á sjónvarpsefni.
Hún hefur alltaf haft mikinn
áhuga á samskiptum og mannúðarmál-
um.
„Rauði krossinn á Íslandi er hluti af
stærstu mannúðar- og hjálparsamtökum
heims og reynir að vernda líf og heilsu
berskjaldaðra hópa og tryggja virðingu fyrir
mannlegu lífi. Hreyfingin er borin uppi af
sjálfboðaliðum.
Rauði krossinn í Mosfellsbæ sinnir ýms-
um verkefnum í nærsamfélaginu ásamt því
að taka þátt í verkefnum á landsvísu.“
Skiptifatamarkaður fyrir börn
„Ég held ég geti fullyrt að við hér í Mosó
séum eina Rauðakrossdeildin á landinu
sem er með skiptifatamarkað fyrir börn.
Fólk getur komið með föt sem börnin eru
vaxin upp úr og valið ný í staðinn. Skipti-
fatamarkaðurinn er opinn þegar starfsemi
er í húsinu. Að skiptast á fötum í stað þess
að kaupa alltaf ný snýst um meira en bara
sparnað því það er líka umhverfisvænt.
Rauði krossinn nýtir allan textíl. Jafnvel
götóttir sokkar, gamlar tuskur og ónýtar
gardínur fara ekki til spillis heldur nýtast
í efnisendurvinnslu og er tekið við því í
Sorpu.“
Útbúa fatapakka til
fátækra barna
„Prjónahópurinn, Föt
sem framlag, hittist hér
og prjónar og saumar.
Hópurinn útbýr svo fata-
pakka sem fer til fátækra
barna í Hvíta-Rússlandi.
Sjálfboðaliðar Rauða
krossins sjá um heima-
námsaðstoð fyrir krakka
í 1. til 10. bekk. Heim-
sóknavinir heimsækja
fólk vikulega og hlutverk
þeirra er fyrst og fremst
að veita félagsskap, nær-
veru og hlýju. Hundavinir eru
líka alltaf vinsælir.
Í fyrra byrjuðum við með
gönguhóp og sjálfboðaliði frá
okkur stýrir göngunni. Það eru
allir velkomnir með og gengið
er á rólegum hraða. Þetta er
upplögð leið til þess að kynn-
ast nýju fólki.“
Höfum öll eitthvað að gefa
„Undanfarna mánuði höfum
við opnað fjöldahjálparstöð
í Mosfellsbæ vegna slysa eða
óhappa sem hafa orðið í ná-
grenni við okkur. Með auknum fjölda ferða-
manna er hætt við að óhöppum fjölgi og því
mikilvægt að geta brugðist skjótt við.
Rauði krossinn heldur fjölda námskeiða
á ári hverju eins og í skyndihjálp, neyðar-
vörnum og ýmsu öðru.
Það er auðvelt að gerast sjálfboðaliði,
það er hægt að skrá sig á heimasíðunni
eða hafa samband í tölvupósti eða síma.
Það mikilvægasta sem við eigum er tími og
að gefa af sér gerir sálinni gott. Við höfum
öll eitthvað að gefa. Mosfellingar eru öflug-
ir þegar þeir standa saman og geta áorkað
miklu. Ég hlakka til áframhaldandi sam-
starfs við þá.“
- Mosfellingurinn Hulda Margrét Rútsdóttir20
Hulda 18 ára ásamt foreldrum og systkinum
á fermingardegi Guðrúnar systur hennar.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Myndir: Ruth Örnólfs og úr einkasafni.
Rauði krossinn nýtir allan
textíl. Jafnvel götóttir
sokkar, gamlar tuskur og ónýtar
gardínur fara ekki til spillis
heldur nýtast í efnisendurvinnslu.
Hulda Margrét Rútsdóttir verkefnastjóri hjá Rauða krossinum í Mosfellsbæ segir að með auknum
fjölda ferðamanna sé hætt við að óhöppum fjölgi og því mikilvægt að geta brugðist skjótt við
Að gefa af sér
gerir sálinni gott
HIN HLIÐIN
Hvað pantar þú þér ofan á pizzu?
Pepperóní og sveppi.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
hefur gert? Fertugsafmælisferðin til
Amsterdam með æskuvinkonunum síð-
asta haust var mjög skemmtileg.
Arubaferð 2008 stendur líka upp úr.
Fallegasti staður í Mosfellsbæ?
Mosfellsdalurinn, skartar svo fallegum
litum allan ársins hring.
Hefur þú hent einhverju sem þú sérð
rosalega eftir? Nei, ég þykist vera
mínímalisti og gef eða hendi því sem
ekki nýtist hjá mér.
Hvaða einstaklings lítur þú mest upp
til? Ég vil ekki gera upp á milli en ég
lít upp til fólks sem fylgir eigin sannfær-
ingu, er samkvæmt sjálfu sér og gefst
aldrei upp.
Uppáhaldssjónvarpsefni?
Ég horfi sjaldan á sjónvarp en hafði
gaman af Brúnni og Ófærð.
Hvers getur þú ekki verið án?
Fjölskyldunnar.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Óskipulag, ekki þar með sagt að
ég sé ofurskipulögð samt.
Á 4 Ára
afmælisdaginn
aron rútur, guðrún aisha,
anna malia og rakel elaisa.