Mosfellingur - 16.03.2017, Qupperneq 20

Mosfellingur - 16.03.2017, Qupperneq 20
Listaskóli Mosfellsbæjar var stofn-aður 1. febrúar 2006 en skólinn samanstendur af leikfélagi, mynd- listarskóla, skólahljómsveit og tónlist- ardeild en allar undirstofnanir skólans nema tónlistardeildin eru reknar sem sjálfstæðar einingar. Markmið Listaskól- ans er að samþætta starfsemi þessara stofnana og tryggja tengsl þeirra á milli. Þá er lögð áhersla á að fléttuð verði sam- an starfsemi skólans við grunn- og leik- skóla. Hlutverk skólans er að auka tengsl við aðila utan stofnana bæjarins, ekki síst starfandi listamenn. Það má því segja að Listaskóli Mosfellsbæjar sé regnhlíf yfir fjölbreytta listastarfsemi í Mosfellsbæ. Atli er fæddur í heimahúsi í Hafnarfirði 10. nóvember 1953. Foreldrar hans eru þau Kamma Karlsson ritari og Guðlaugur Atla- son bókbandsmeistari. Atli á fjórar yngri systur, Rósu Láru, Huldu Guðbjörgu, Svölu og Guðlaugu Berglindi. Atli ólst upp í þriggja hæða húsi við Köldukinn í Hafnarfirði. Lára móðuramma hans bjó á efstu hæðinni og hjá henni átti hann sitt eigið herbergi enda mikill ömm- ustrákur. Með ólæknandi hestadellu „Það var mjög stutt fyrir okkur að fara út í náttúruna og áttum við amma marg- an göngutúrinn upp eftir Kaldárselsvegin- um. Þar voru margir frístundabændur með hesta sína og kindur. Var ég gagntekinn af hrifningu á þessum skepnum og dreymdi snemma um að verða bóndi. Ég stundaði fótboltann í FH fram und- ir fermingu, en var svo í sveit á sumrin frá 11-18 ára aldurs. Frá þeim tíma hef ég ver- ið með ólæknandi hestadellu og fékk minn fyrsta hest í sumarkaup þegar ég var 15 ára. Ég hóf skólagönguna í Lækjarskóla en fluttist yfir í Öldutúnsskóla 8 ára. Eftir fermingu lá svo leiðin í Flensborgarskólann þaðan sem ég lauk landsprófi. Árið 1974 útskrifast ég sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík.“ Ný lög tóku gildi Atli hlaut tónlistaruppeldi sitt að stórum hluta í Tónlistarskóla Hafnar- fjarðar og Lúðrasveit Hafnarfjarðar en lauk blásarakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1978, með trompet sem aðal- hljóðfæri. Veturinn 1978-79 kenndi hann við Tónlistarskólann í Hafnarfirði og Tón- listarskóla Seltjarnarness en þar stjórnaði hann líka skólahljómsveitinni. „Haustið 1979 var ég bú- inn að fá skólavist í háskóla í Bandaríkjunum þar sem stóð til að læra útsetningar, upp- tökutækni og hljómsveitarstjórn. Á síðustu stundu tóku ný lög gildi í Bandaríkunum sem gengu út á það að útlendingar áttu að víkja fyrir minnihlutahópum og þar með missti ég af þessu tækifæri.“ Tuttugu ár á Norðurlandi „Ég fékk vinnu á Siglufirði og ætlaði að vera þar í eitt ár en árin á Norðurlandi urðu tuttugu. Á þeim árum stjórnaði ég m.a. Tónlistarskólanum á Akureyri í rúm 5 ár og stofnaði og stjórnaði Tónlistarskóla Eyja- fjarðar í 9 ár. Ég var um árabil 1. trompet- leikari í blásarakvintett Tónlistarskólans á Akureyri og í Sinfóníuhljómsveit Norður- lands. Auk þess stjórnaði ég skólalúðra- sveitum í 20 ár, Lúðrasveit Akureyrar í 18 ár, hljómsveit Félags harmonikkuunnenda við Eyjafjörð í 12 ár, Karlakór Akureyrar í 5 ár og Karlakór Eyjafjarðar í 3 ár, svo maður hefur kom víða við.“ Ráðgjafi í tónlistarfræðslu „Eftir að ég flutti suður árið 1999 var ég kennari og lúðrasveitarstjórnandi á Akra- nesi í tvö ár, skólastjóri í Tónskóla Eddu Borg í eitt ár, ráðgjafi í tónlistarfræðslu í Fræðslumiðstöð Reykjavíkur í tvö ár og hef frá 2004-2006 stjórnað Tónlistarskóla Mos- fellsbæjar og Listaskóla Mosfellsbæjar frá stofnun. Hlutverk tónlistardeildarinnar er að efla almenna tónlistarfræðslu og gera öllum kleift að stunda nám í hljóðfæra- leik og söng sem þess óska. Í skólanum er kennt á öll helstu hljóðfæri, auk söng- náms, en kenndar eru 17 námsgreinar við skólann. Nemendur við skólann eru 210 og kennarar 23. Ég stjórnaði Karlakórn- um Stefni í sjö ár en í dag stjórna ég Grundartangakórnum og Sprett- skórnum. Ég söng líka og stjórnaði um ára- bil karlakvintettinum Galgopum í Eyjafirði og var fjögur ár í Borgarkvartettinum.“ Kindurnar í sumarbeit í Kjósinni „Við hjónin kynntumst 1973 en gengum í það heilaga 8. júlí 1978. Kona mín, Halldóra Bjarnadóttir, er hjúkrunarfræðingur og eig- um við tvo syni, Bjarna sem er fæddur 1983 og Guðlaug fæddan 1985. Bjarni á þrjú börn en kona hans er Telma Dögg Ólafsdóttir. Guðlaugur á tvö börn en kona hans er Ásta María Þrastardóttir. Fjölskyldurnar búa í þremur húsum á Tindum á Kjalarnesi. Við erum hobbýbændur, með hesta og kindur. Því fylgir að sjálfsögðu smala- mennska á haustin því kindurnar okkar eru í sumarbeit í Kjósinni.“ Syngur í tríói með sonum sínum Frá árinu 2003 hefur Atli sungið í tríói með sonum sínum sem heitir Tindatríóið. Synir hans hafa báðir lokið framhaldsprófi í söng frá Listaskóla Mosfellsbæjar og hófu söngferilinn 16 ára gamlir með Karlakórnum Stefni. Atli hefur einnig samið mikið fyrir karlakóra og ýmsa sönghópa, bæði lög og texta auk þess sem hann hefur verið að útsetja. Hann hefur einnig verið ritari og formaður í Sam- tökum tónlistarskólastjóra og varaformaður í Félagi tónlistarskólakennara og stjórnarmaður í Kennara- sambandi Íslands. Á leið til Eyja með barnabarninu „Helstu áhugamál okkar Halldóru snúa að fjölskyldunni og dýrunum svo og ferða- lögum innanlands og utan. Ég hef verið duglegur að ferðast með Topphestum með ferðamenn á sumrin og þá verið kúskur á daginn og kórstjóri á kvöldin. Þá er tromp- etinn yfirleitt með í för. Síðastliðið sumar fór ég norður og suður Kjöl sem aðstoðarmaður með Hjalta og Ásu á Kjóastöðum sem hafa ferjað þúsundir túr- ista fyrir Íshesta í gegnum árin. Þá höfum við hjónin farið í marga góða reiðtúra með félögum í Sprettskórnum. Við eigum líka hlut í jörð við norðanverðan Breiðafjörð, þar sem sumrin eru yndisleg. Elsta barnabarnið æfir fótbolta með Aft- ureldingu og er búinn að semja um það við afa sinn að hann fylgi honum á mót í Vest- mannaeyjum í sumar og að sjálfsögðu gerir afi það,“ segir Atli að lokum er við kveðj- umst. - Mosfellingurinn Atli Guðlaugsson20 Fjölskyldan: Atli, Halldóra, Bjarni og Guðlaugur. MOSFELLINGURINN Eftir Ruth Örnólfsdóttur ruth@mosfellingur.is Myndir: Ruth Örnólfs, Ljósmyndastofa Páls A. Pálssonar og úr einkasafni. Ég hef verið duglegur að ferðast með Topphestum með ferðamenn á sumrin og þá verið kúskur á daginn og kór- stjóri á kvöldin. Þá er trompetinn yfirleitt með í för. Atli Guðlaugsson skólastjóri Listaskóla Mosfellsbæjar hefur verið viðloðandi tónlist í 55 ár Hlutverk okkar að efla tónlistarfræðslu HIN HLIÐIN Hver myndi leika þig í bíómynd? Björn Hlynur Haraldsson. Hver kom þér síðast á óvart og hvern- ig? Svala systir mín með ótrúlegu tilboði. Fallegasti staður í Mosfellsbæ? Reiðvegurinn á bökkum Köldukvíslar í Mosfellsdal. Hvað gleður þig mest? Uppátæki barnabarnanna. Fullkominn laugardagur? Afslöppun, útreiðar og grill. Hvaða litur lýsir þér best? Blágrænn. Hvað heillar þig í fari fólks? Jákvæðni, glaðlyndi, tryggð og hreinskilni. Uppáhaldsverslun? Lífland. halldóra og atli á barðaströnd á fermingardaginn stjórnandi stefnis

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.