Mosfellingur - 16.03.2017, Blaðsíða 21
www.mosfellingur.is - 21Myndir: Ruth Örnólfs, Ljósmyndastofa Páls A. Pálssonar og úr einkasafni.
Íslenska ullin er einstök
Íslenskt sauðfé hefur gefið Íslendingum skjólmikla ull sem
náttúran hefur þróað eftir veðri og vindum í meira en 1000 ár.
fjölskylduvæn ísbúð
í hjarta mosfellsbæjar
Verið hjartanlega
velkomin
HáHolti 13-15 • s. 564 4500
Opið alla daga kl. 12:00-23:00
Útivist og greiður aðgangur að óspilltri
náttúru er ein ástæða þess að fólk velur
að búa í Mosfellsbæ. Í bæjarlandinu er
svo sannarlega fjölbreytt náttúra, bæði
fjara og fjöll og allt þar á milli. Það hafa
margir bæjarbúar notið þess að hafa
þessa útivistarmöguleika alveg við bæj-
ardyrnar og oft þarf ekki að fara langt til
að viðra okkur eða stunda útivist.
Hvernig getur öll fjölskyldan notið
þess að vera saman úti? Best að hafa
markmiðin eða áfangastaðina ekki of
krefjandi heldur fara styttra og njóta
þess að vera saman – og hafa gaman!
Börnin segja oft: Viltu koma út að leika?
Það er eitthvað sem við Mosfellingar
ættum að gera meira af, bæði börn og
fullorðnir; já, heilu fjölskyldurnar.
Í Mosfellsbæ eru skipulögð fjölmörg
útivistarsvæði, bæði lítil og stór; allt
frá róluvöllum til stikaðra gönguleiða á
hæstu tinda. Að fara út á róló og leika
sér þar með börnunum er eitthvað sem
börnin kunna að meta. Þá geta þau sýnt
pabba og mömmu hvað þau eru klár og
að þau kunni á leiktækin.
Ævintýragarðurinn er frábært svæði
sem verið er að byggja upp á bökkum
Varmár. Fyrir utan að geta notað stígana
til gönguferða og leikið sér í skátaleik-
tækjunum þá er ýmislegt fleira hægt að
gera. Á hlýjum sumardögum er gaman
að vaða eða busla í ánni og það er hægt
að gera á nokkrum stöðum þar sem að-
gengi er auðvelt. Aðeins ofar upp með
Varmá er Stekkjarflöt. Þar er stórt og gott
tún til útileikja. Hvernig væri að rifja
upp gamla takta og fara í Stórfiskaleik,
Brennó eða Hlaupa í skarðið?
Skógræktarsvæðin í Mosfellsbæ eru
sannkallaðir ævintýraheimar. Bæði í
Hamrahlíð og í Reykjalundarskógi hef-
ur áratuga skógrækt gefið af sér frábæra
staði til að njóta útiveru í skjóli milli
hárra trjáa. Þar er auðvelt að láta tím-
ann líða og fara í allskonar leiki, fara
í ratleik eða leggja þrautir hvert fyrir
annað. Upplagt er að nota reiðhjólin til
að komast á þessi svæði, fyrir utan að
gaman er að fara saman í hjólatúra um
þá fjölmörgu stíga og slóða sem eru í
bæjarlandinu.
Leirvogurinn með sinni fjölbreyttu
fjöru er áhugaverður staður. Þar er
gaman að skoða fuglalífið, sérstaklega á
vorin, tína skeljar og kuðunga og busla í
sjónum á hlýjum dögum.
Hafravatn er einstök náttúruperla þar
sem hægt er að vera á bátum, veiða eða
leika sér í sandfjörunni sem er að finna
á nokkrum stöðum við vatnið.
Í þessari stuttu grein er aðeins minnst
á lítinn hluta þess sem fjölskyldan get-
ur gert skemmtilegt og uppbyggilegt úti
undir berum himni hér í bænum okkar.
Þann 29. mars n.k. verður fyrirlestur og
kynning sem ber yfirskriftina „Gaman
saman úti“. Þar verður einmitt fjallað
um þá fjölmörgu útivistarmöguleika
sem eru í boði hér í Mosfellsbæ. Byrj-
ar kl: 20.00 í Listasalnum í Kjarna. Allir
velkomnir.
ÆvarAðalsteinsson,
tómstunda-ogfélagsmálafræðingur
Gaman saman úti –
það þarf ekki að fara langt
SkólaSkrifStofa moSfellSbæjar
Skóla
hornið