Mosfellingur - 16.03.2017, Blaðsíða 26
- Aðsent efni26
Láttu vaða
Við erum gjörn á að hugsa of mikið um hvað öðrum finnst um
okkur. Hvað hópnum finnst. Hvað
mömmu finnst. Stundum gerum við
hluti mest til þess að geðjast öðrum.
Hluti sem okkur langar ekkert til að
gera og gera engum gott. Við höfum
öll upplifað þetta. Sumir oftar en
aðrir.
Ef þú ert á þessum stað í lífinu hvet ég þig til að gera uppreisn.
Taka þér tíma í að greina hvað það er
sem þig virkilega langar að gera við
lífið og kýla svo á það. Með því ertu
að bæta bæði þig og heiminn, svo
lengi auðvitað sem þú ert heilbrigð
sál sem vilt sjálfum þér og öðrum
vel. Lykilatriði í þessu ferli er að hafa
húmor fyrir sjálfum sér og velta sér
ekki upp úr því hvað öðrum finnst.
Aldur, kyn, menntun eða fæðingar-
staður skiptir ekki máli. Ekki heldur
uppáhaldsíþróttafélag. Það geta allir
látið drauma rætast. Það er alltaf
leið. Og það er ekkert eins gefandi og
styrkjandi að koma draumum sínum
í framkvæmd. Að þora.
Ég gaf út bók í lok síðasta árs. Lét bókardraum rætast. Margra ára
gamlan draum. Það sem hafði stopp-
að mig var álit annarra á bókinni.
Vill einhver lesa bók eftir mig? Og
líka spurningin hvort einhver myndi
kaupa hana. Það tók mig mörg ár að
þora að gera þetta. Og tilfinningin er
geggjuð. Sérstaklega þegar ég heyri
frá einhverjum sem hefur lesið bók-
ina. Næsti draumur tengdur bókinni
er að þýða hana á mörg tungumál,
gefa út rafrænt út um allan heim.
Af hverju? Af því mig langar til þess.
Það eflir mig að koma
draumum í fram-
kvæmd og mig
langar að deila
með öðrum því
sem ég hef lært og
er að pæla. Kíktu á
www.njottuferda-
lagsins.is ef þú vilt
vita meira og fá
stuðning til þess
að láta vaða.
HeiLsumoLar Gaua
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Þverholti 2 • Mosfellsbæ
Fasteignasala
Mosfellsbæjar
Sími: 586 8080
www.fastmos.ishafðu samband E.BAC
K
M
A
N
Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali
Viltuselja...
E
.B
A
C
K
M
A
N
www.fastmos.is
Sími: 586 8080
Þverholti 2
Eins og Mosfellingar þekkja þá
hefur handbolti verið vinsæll í
bænum frá því að Afturelding
komst í efstu deild vorið 1992.
Sumarið 2007 ákváðu þeir
Þorkell Guðbrandsson og Bjarki
Sigurðsson sem báðir voru þá
hættir með Aftureldingu að
stofna utandeildarlið og smala
öllum gömlu kempunum og
nokkrum ungum saman í gott
lið. Liðið fékk nafnið Júmboys
eða breiðu strákarnir á íslensku.
Það er skemmst frá því að
segja að liðið varð afar sigur-
sælt og strax á fyrsta tímabili
vann liðið Íslandsmeistartitil
utandeildar sem taldi þá 18 lið
samtals. Árið eftir vann liðið
alla þá bikara sem í boði voru
og samtals urðu titlarnir 10 á
þessum 6 árum sem liðið spilaði
í utandeildinni.
Liðsmenn voru á aldrinum 20
til 69 ára. Árið 2013 fannst liðs-
mönnum mál að linnti og leyfðu
öðrum liðum að komast að.
10 ára afmæli Júmboys fagnað með stæl • Sigursælasta lið Mosfellsbæjar frá aldamótum
Sigursælar handboltakempur
Jón Andri, Siggi Sveins, Þorkell Guðbrands, Gunnar Guðjóns, Einar Braga, Jóhannes, Bjarki Sig, Baldvin, Svanþór
og Ástþór. Fyrir framan eru Sveinbjörn og Daði Hafþórs. Einhver kunnugleg andlit vantar þó á myndina.