Mosfellingur - 06.04.2017, Blaðsíða 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
sunnudagurinn 9. apríl
- Pálmasunnudagur
Fermingarguðsþjónustur í Lágafells-
kirkju kl. 10:30 og 13:30. Báðir prestarnir
Fimmtudagurinn 13. apríl - Skírdagur
Fermingarguðsþjónustur í Lágafells-
kirkju kl. 10:30 og 13:30. Báðir prestarnir
Föstudagurinn 14. apríl
- Föstudagurinn langi
Guðsþjónusta á Hömrum kl. 14:00
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju kl. 20:00
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
sunnudagurinn 16. apríl
- Páskadagur
Hátíðarguðsþjónusta í Lágafellskirkju
kl. 08:00. Sr. Arndís Linn.
Að lokinni guðsþjónustu er kirkju-
gestum boðið í léttan morgunverð í
safnaðarheimilinu.
Miðvikudagurinn 19. apríl
Helgistund á Eirhömrum kl. 13:30
Sr. Arndís Linn
sunnudagurinn 23. apríl
Fermingarguðsþjónusta í Lágafellskirkju
kl 10:30. Báðir prestarnir
Fermingarguðsþjónusta í Mosfellskirkju
kl. 13:30. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
Nánari upplýsingar á www.lagafellskirkja.is
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64
Þrjár rafhleðslustövar
settar upp í Mosó
Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur
samþykkt að ráðist verði í kaup og
uppsetningu á þremur rafhleðslu-
stöðvum í Mosfellsbæ. Stefnt er að
uppsetningu hæghleðslustöðva við
íþróttamiðstöðvarnar við Lágafell
og Varmá og við FMOS. Hæg-
hleðslustöðvar nýtast vel til að bæta
á hleðslu rafmagnsbíla starfsmanna
eða viðskiptavina í íþróttamiðstöð
eða skóla, en fullhleðsla tekur
nokkrar klukkustundir. Þessar
staðsetningar voru valdar með
það í huga að þær nýttust sem best
íbúum í Mosfellsbæ, starfsmönnum
stórra vinnustaða og ferðamönnum
á leið í gegnum bæinn. Mosfellsbær
hefur hlotið styrk frá Orkusjóði sem
mun nægja fyrir um helmingi þess
kostnaðar sem fellur til.
Opið fyrir umsóknir
í vinnuskólann
Opnað var fyrir skráningar í
Vinnuskóla Mosfellsbæjar þann 23.
mars en umsóknarfrestinum lýkur
7. apríl. Vinnuskóli Mosfellsbæjar
er starfræktur fyrir nemendur í
8., 9. og 10. bekk í grunnskólum
Mosfellsbæjar. Skráning fer fram
í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.
Allir sem sækja um fyrir 7. apríl fá
vinnu. Vinnuskóli Mosfellsbæjar
verður starfræktur á tímabilinu 8.
júní til 16. ágúst. Skólinn verður
lokaður á tímabilinu 26. júlí til og
með 3. ágúst. Daglegur vinnutími
og tímabil fer eftir aldri nemenda
sem má sjá nánar á mos.is. Lögð
er áhersla á að kenna nemendum
að vinna og hegða sér á vinnustað,
umgangast bæinn sinn og auka
skynjun og viðrðingu nemenda fyrir
umhverfinu.
Golfklúbbur Mosfellsbæjar stefnir að því að opna fyrsta áfanga glæsilegrar byggingar í maí
styttist í að íþróttamiðstöð
gM verði tekin í notkun
Miðsvæðis á Hlíðavelli er nú verið að leggja
lokahönd á glæsilega íþróttamiðstöð Golf-
klúbbs Mosfellsbæjar.
Fyrir ári síðan, þann 1. apríl 2016, tóku
ungir kylfingar fyrstu skóflustunguna og í
dag er uppbygging á húsinu á lokasprett-
inum.
Á Hlíðavelli hefur átt sér stað mikil upp-
bygging á 18 holu golfvelli frá árinu 2004.
„Það eru miklir uppgangstímar hjá okk-
ur og nýtt hús mun gjörbylta allri aðstöðu
golfklúbbsins,“ segir Kári Tryggvason nýr
formaður GM. Klúbburinn telur um 1.000
manns í dag og fer ört fjölgandi.
veitingasala og veislusalur
Íþróttamiðstöðin verður 1.200 fm á
tveimur hæðum og mun hýsa alla skrif-
stofu-, félags- og æfingaaðstöðu klúbbsins
til framtíðar. Þá verður tekinn í notkun sal-
ur á efri hæð hússins sem rúma mun 120-
200 manns. Þar verður rekin veitingasala og
veislusalur leigður út.
„Hér eiga allir Mosfellingar eftir að njóta
góðs af góðri aðstöðu og geta mætt hér í
kaffi eða mat. Útsýnið héðan er frábært
og fellur húsið vel inn í landslagið. Stefnt
verður að því að svæðið verði tengt inn á
stígakerfi Mosfellsbæjar og munu þar skap-
ast mörg tækifæri fyrir tengingar við fleiri
íþróttir og útvist í hjarta Mosfellsbæjar.“
æfingaaðstaða fyrir börn og unglinga
„Stefnt er að því að fyrsta áfanga verksins
ljúki nú í næsta mánuði með opnun efri
hæðarinnar. Neðri hæðin með búnings- og
æfingaaðstöðu verður svo vonandi tekin í
notkun fyrir veturinn.
Á sumrin stunda um 200 börn golf og
hefur vantað verulega upp á aðstöðu til
æfinga yfir vetrartímann. Þetta verður því
kærkomið fyrir okkar ungu og efnilegu
kylfinga. Þá gefst möguleiki á því að gera
golf að heilsársíþrótt í Mosfellsbæ við bestu
mögulegar aðstæður.“
Ómetanlegir sjálfboðaliðar
„Hér erum við full eftirvæntingar og
sjálfboðaliðar hafa unnið hörðum höndum
á síðustu mánuðum undir eftirliti verktaka
hússins. Allt gengur samkvæmt áætlun og
tilhlökkunin er mikil.
Félagsandinn er mjög góður og án þess-
ara öflugu sjálfboðaliða sem lagt hafa á sig
hundruð vinnustunda væri þetta einfalda-
lega ekki hægt,“ segir Kári að lokum.
Gamli golfskálinn neðan við Súluhöfða
mun víkja ásamt æfingasvæðinu og þar
mun rísa íbúðagata.
gjörbrEYTT aðsTaða
við hlíðavöll
kári TrYggvason
formaður gm
Stefnir í góða þátttöku í lýðræðisverkefninu Okkar Mosó • Kosningu lýkur á mánudag
Íbúum gefst kostur á að kjósa
Bæjarbúar hafa tekið virkan þátt í lýðræðisverkefn-
inu Okkar Mosó. Kosning stendur yfir og markmið-
ið er að sögn Aldísar Stefánsdóttur, verkefnastjóra
verkefnisins, að slá öll met í íbúakosningunni.
Þau sveitarfélög sem hafa farið í gegnum
verkefnið hafa mest náð 13% kosningaþátttöku.
„Mosfellingar eru þekktir fyrir að setja sér háleit
markmið og við stefnum á að lágmarki 20%. Þarna
ættu flestir að finna eitthvað sem þeim líst á að gera
betur í sínu nærumhverfi,“ segir Aldís.
samráðsverkefni íbúa og bæjarins
Okkar Mosó er samráðsverkefni íbúa og bæj-
arins um forgangsröðun og úthlutun fjármagns
til smærri nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í
Mosfellsbæ.
Verkefnið hófst með hugmyndasöfnun í febrúar
og lýkur í sumar með framkvæmdum á þeim verk-
efnum sem kosin verða af íbúum.
Gert er ráð fyrir 25 milljónum króna til verkefnis-
ins. Bærinn er allur eitt svæði í hugmyndasöfnun
og kosningu. Við úrvinnslu hugmynda verður leit-
ast við að tryggja að verkefni sem kosið verður um
séu landfræðilega dreifð innan sveitarfélagsins.
Allar nánari upplýsingar um verkefnið
er hægt að finna á mos.is/okkarmoso