Mosfellingur - 27.04.2017, Blaðsíða 24
- Aðsendar greinar24
Þjónusta við mosfellinga
ÞARF AÐ MÁLA?
Öll almenn málningarvinna
Fagmennska, vönduð vinnubrögð, góð umgengni og reynsla
Einnig smiðir með mikla reynslu af allri smíðavinnu
Fast verð eða tímavinna
Athugaðu hvað við getum gert fyrir þig
Málun og Smíði malunogsmidi@gmail.com S: 860 7896
Traust þjónusta
Öll almenn málningarvinna
Fagmennska, vönduð vinnubrögð, góð umgengni og reynsla
Einnig smiðir með mikla reynslu af allri smíðavinnu
Fast verð eða tímavinna - Athugaðu hvað við getum gert fyrir þig
Málun og Smíði - malunogsmidi@gmail.com - S: 860-7896
Traust þjónusta
a
Háholti 14 • 270 Mosfellsbæ • arioddsson@arioddsson.is
Símar: 895-0383 / 867-7704 / 564-4070
www.arioddsson.is
FAGMENNSKA Í FYRIRRÚMI
MÚRVERK - FLÍSALAGNIR - ALMENN VIÐHALDSVINNA
Fossaleyni 1 | Egilshöll | 571-6111
H Á R O G S N Y R T I S T O FA
Snyrti-, nudd- & fótaaðgerðastofan
Líkami og sál
Þverholti 11 - s. 566 6307
www.likamiogsal.is
Verið hjartanlega velkomin!
Oft eru það aðstandendur og almenn-
ingur sem eru fyrstu viðbragðsaðilar á
slysstað og börn eru ekki síður líkleg til
þess.
Í fyrra var skyndihjálparmaður árs-
ins hjá Rauða krossinum Unnur Lísa
Schram, sem bjargaði lífi eiginmanns
síns þegar hann fór í hjartastopp. Árið
þar á undan var það hin 7 ára gamla
Karen Sæbjörg Guðmundsdóttir, sem bjargaði
lífi móður sinnar. Slys eða veikindi gera ekki boð
á undan sér.
Í dag er fræðsluefni um skyndihjálp ótrúlega
aðgengilegt. Hægt er að heimsækja www.skyndi-
hjalp.is og taka stutt próf um þína þekkingu. Það
er mælt með því að fara á skyndihjálparnám-
skeið á tveggja ára fresti að jafnaði, svo ef það er
lengra liðið frá því að þú sóttir síðast námskeið,
þá er tími til að huga að endurnýjun.
Ég veit, ég veit – ótrúlega margendurtekin
mantra um mikilvægt málefni sem allir ætla að
gera, bara ekki einmitt núna. En það er gott að
hafa þessa hluti á hreinu, mæta í nokkra klukku-
tíma, drekka lítilfjörlegt kaffi og bjarga kannski
lífi einn daginn. Skyndihjálparnámskeið eru
haldin reglulega á höfuðborgarsvæðinu en all-
ar upplýsingar má nálgast á heimasíðu Rauða
krossins á Íslandi: raudikrossinn.is.
Þar að auki gaf RKÍ út skyndihjálpar-
app fyrir nokkrum árum þar sem hægt
er að rifja upp helstu bjargráð og jafn-
vel grípa til í neyð, þótt auðvitað sé best
að þurfa þess ekki. Auðvelt er að sækja
appið (eða fá börnin til þess) og kynna
sér efnið.
Krakkar eru merkilega snjallir og læra
hraðar en amma og afi vilja kannski viðurkenna.
Það er því ekki síður mikilvægt að leyfa börn-
unum að vera með og fara saman yfir helstu
viðbrögð.
Að lokum vil ég minna á að námskeiðið Börn
og umhverfi verður haldið hjá Rauða krossinum
okkar í Mosfellsbæ 8. – 11. maí næstkomandi.
Námskeiðið er ætlað ungmennum 12 ára og
eldri (fædd 2005 og fyrr) og fer vel í umgengni
barna og slysavarnir.
Þetta er tilvalið fyrir þau sem ætla að sjá um
og passa börn í sumar og síðar. Frekari upplýs-
ingar má finna hjá deildinni okkar á Facebook
eða hjá starfsmanni okkar hulda@redcross.is
Allra bestu sumarkveðjur, Signý Björg Laxdal,
varaformaður Mosfellsbæjardeildar RKÍ.
Fyrsta hjálp - er þín fjölskylda tilbúin?
Nú í sumarbyrjun er ástæða til að horfa
um öxl til nýliðins vetrar og einnig fram
á veginn til sumarsins sem bíður okkar
handan hornsins.
Um þessar mundir standa vorverk-
in yfir, fólk sinnir görðum sínum og
sveitarfélagið hefur sett upp gáma þar
sem íbúum gefst kostur á að koma með
garðaúrgang. En um leið og við hugum
að nánasta umhverfi okkar hér og nú
er rétt að hafa í huga að umhverfismál
snerta allar árstíðir og heimsbyggð og
heimabyggð í senn. Hér á eftir verður
drepið á nokkur umhverfismál sem hafa
verið á dagskrá á nýliðnum vetri.
Vistgerðarkort
Fyrir skemmstu kynntu fulltrúar frá
Náttúrufræðistofnun Íslands svokallað vist-
gerðarkort í umhverfisnefnd bæjarins. Um er að
ræða heildstætt yfirlit og lýsingu á náttúrufari
alls landsins þar sem notast er við nýja aðferða-
fræði við flokkun og kortlagningu lífríkisins.
Kortið sýnir útbreiðslu 105 vistgerða og er öll-
um opið á kortasjá NÍ. Landið og náttúran taka
breytingum og er ætlunin að kortasjáin verði
uppfærð eftir því sem ástæða þykir til.
Stígar og slóðar
Undanfarin þrjú ár hefur sérstakur starfshóp-
ur unnið að kortlagningu vegslóða í landi Mos-
fellsbæjar og er lokamarkmiðið að skilgreina
betur hvar má aka á vélknúnum ökutækjum og
hvar ekki. Stíga- og slóðakerfi bæjarins er mjög
víðtækt, einkum á Mosfellsheiði þar sem finna
má margar fornar leiðir. Starfshópurinn hefur
nú lokið starfi sínu og sent lokaskýrslu sína til
bæjarráðs sem vísaði málinu til skipu-
lagsnefndar til frekari úrvinnslu.
Okkar Mosó
Nýlega fór fram íbúakosningin „Okk-
ar Mosó“ þar sem bæjarbúum gafst
kostur á að leggja fram tillögur að verk-
efnum sem unnið yrði að á þessu ári.
Þátttaka var einstaklega góð, margar
athyglisverðar hugmyndir komu fram
og var kosið á milli þeirra. Þau verk-
efni sem bæjarbúar veittu brautargengi
tengjast öll umhverfinu á einn eða
annan hátt og má þar nefna útivistar-
paradís á Stekkjarflöt við Varmá, bekki
fyrir eldri borgara við Klapparhlíð og
fuglafræðslustíg meðfram Leiruvogi.
Opinn fundur umhverfisnefndar
Síðustu ár hefur það verið árlegur viðburður
hjá umhverfisnefnd að halda opinn fund í sam-
ræmi við lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar. Fundur-
inn verður að þessu sinni haldinn fimmtudaginn
11. maí kl. 17 í Framhaldsskólanum í Mosfells-
bæ og mun fjalla um heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna og sjálfbæra þróun. Frummælendur
verða Andri Snær Magnason rithöfundur og
Lúðvík Gústafsson verkefnisstjóri, síðan verða
almennar umræður um þennan viðamikla
málaflokk.
Við hvetjum bæjarbúa til að fjölmenna á
fundinn og taka þátt í samræðum um mál sem
snerta í senn heimsbyggð og heimabyggð.
Gleðilegt sumar, kæru Mosfellingar.
Bjarki Bjarnason, formaður umhverfisnefndar
Mosfellsbæjar. Örn Jónasson, varaformaður.
Heimsbyggð - heimabyggð
Bíldshöfða 14 | Reykjavík | s. 520 3200
www.artpro.is
SumarStarf
Starfsfólk óskast í sumarafleysingar
í matvælavinnslu í Mosfellsbæ.
Frekari upplýsingar í s. 897-3236 eða raggi@nonnilitli.is