Mosfellingur - 27.04.2017, Blaðsíða 25
Fuglaskoðunarhús í MosFellsbæ
Mosfellsbær hefur komið upp glæsilegu fuglaskoðunarhúsi í Leiruvogi sem stendur öllum fuglaáhuga-
mönnum opið. Leiruvogurinn er einstakur hvað varðar fuglalíf allan ársins hring og því gott að fylgjast
þar með fuglum í sínu náttúrulega umhverfi. Húsið er vel staðsett nálægt leirunni, þar sem fjöldi
vaðfugla heldur til, og úr því er góð yfirsýn yfir Langatanga, sem margar fuglategundir nýta sér sem
hvíldarstað. Inni í húsinu er að finna geinargott upplýsingaskilti um fuglalífið á svæðinu ásamt gestabók
sem gestir eru hvattir til að rita nafn sitt í. Aðstaða fyrir fatlaða er góð og gert ráð fyrir að fatlaðir geti
athafnað sig sjálfir í húsinu.
Fuglaskoðunarhúsið er staðsett við Langatanga neðan við golfvöllinn í Mosfellsbæ. Aðgengi að húsinu
er gott með göngustígum sem liggja meðfram ströndinni eða frá golfskálanum. Lyklar að húsinu fást
afhentir í Íþróttamiðstöðinni Lágafelli, Lækjarhlíð 1a, virka daga frá
kl. 06:30-21:30 og um helgar frá kl. 8:00-19:00. Auk þess eiga sérlegir
fuglaáhugamenn eða félög þess kost að fá lykil til umráða.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Mosfellsbæjar.
www.mos.is/fuglaskodun
HáHolt 14 - sími 586 1210
Verslunin
Verður lokuð
frá 1.- 6. maí
opinn fundur
um bæjarmálin
samfylkingin í mosfellsbæ
verður með opinn fund um
bæjarmálin laugardaginn 6. maí.
Bæjarfulltrúar samfylkingarinnar í mosfellsbæ þau
Anna Sigríður Guðnadóttir og Ólafur Ingi Óskarsson
verða með framsögu og svara fyrirspurnum.
fundurinn verður haldinn í Þverholti 3 milli kl: 11 og 13.
Boðið verður upp á súpu og brauð.
allir velkomnir!
mosfellsbæ
Þjónusta við Mosfellinga - 25