Mosfellingur - 18.05.2017, Blaðsíða 13

Mosfellingur - 18.05.2017, Blaðsíða 13
www.mosfellingur.is - 13 Heilsudagurinn í Mosfellsbæ fiMMtudaginn 1. júní Kl. 06:00 Morgunstund gefur gull í mund Hefjum daginn með hressandi morgungöngu með Ferðafélagi Íslands. Lagt verður upp frá bílastæðinu við Mosfellskirkju og gengið á bæjarfellið okkar Mosfell. Auðveld ganga, ekkert þátttökugjald og allir hjartanlega velkomnir. Kl. 19:30 Heilsa og hollusta fyrir alla 2017 Áhugavert og skemmtilegt málþing í Framhaldsskólanum þar sem mikilvægi samvinnunnar svífur yfir vötnum. Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og starfsmaður karlalandsliðsins í knattspyrnu, mun skyggnast á bak við tjöldin á EM og útskýra hversu miklu máli hver einstaklingur skiptir í sterkri liðsheild, við heyrum einnig frá fulltrúum skólanna okkar og síðast en ekki síst kemur í ljós hver hlýtur lýðheilsuviðurkenninguna GULRÓTINA 2017! Boðið verður upp á léttar veitingar. aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir! Heilsueandi Samfélag í Mosfellsbæ Vertu með! www.heilsuvin.is heilsu hornið

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.