Mosfellingur - 28.09.2017, Blaðsíða 20

Mosfellingur - 28.09.2017, Blaðsíða 20
Sigurjón Valsson er vel þekktur inn-an fluggeirans enda búinn að fljúga frá því að hann var unglingur. Í dag stjórnar hann flugdeild Air Atlanta Ice- landic sem sinnir flugi um allan heim. Sigurjón hefur einnig brennandi áhuga á varðveislu flugsögunnar og hefur ansi mörg járn í eldinum hvað það varðar. Sigurjón er fæddur á Selfossi 8. apríl 1973. Foreldrar hans eru Helga Sigurjóns- dóttir og Valur Snorrason. Helga lést árið 2014. Sigurjón á þrjú systkini, Freyju fædda 1978, Snorra Jón fæddan 1979 og Fanneyju Guðrúnu fædda 1982. Hveragerði hálfgerður smábær „Foreldrar mínir bjuggu í Hveragerði þegar ég fæddist en fluttu svo að Hamars- hjáleigu í Gaulverjabæjarhreppi. Þegar ég var fjögurra ára þá fluttum við aftur í Hveragerði og þar ólst ég upp. Hveragerði var á þessum tíma hálfgerð- ur smábær þar sem flestir bæjarbúar könn- uðust hver við annan sem var kostur en á sama tíma stundum galli.“ Hugsaði um skjáturnar hans Sæmundar „Það var ýmislegt brallað á æskuárunum. Ég var nánast alinn upp á hestbaki eða frá því ég gat setið hest þar til ég var 16 ára. Þá tók flugið algerlega yfir, og þá meina ég algerlega, því ég fór ekki á hestbak næstu 20 árin. Það er fyrst núna síðustu ár sem ég hef skroppið á bak en þá eingöngu til þess að fara í göngur. Þar sem foreldrar mínir voru bæði úr sveit og héldu hesta kom það einhvern veginn til að faðir minn var fenginn til að hugsa um kindur samstarfsmanns síns í ull- arþvottastöðinni í Hveragerði um hver jól, til fjölda ára. Þetta varð til þess að í mínum huga eru jólin í „gamla daga“ alltaf tengd því að hugsa um skjáturnar hans Sæmund- ar í Brekku og það voru engin jól nema að stússast í þessu með pabba.“ Kenndi sjálfum sér að lesa „Ég gekk í Grunnskóla Hvera- gerðis og síðan í Gagnfræða- skólann. Í upphafi skólagöngu minnar var lestur ekki mín sterka hlið og þegar ég var 9 ára var ég ekki búinn að ná sömu færni og jafnaldrarnir. Það var eflaust um að kenna „dassi“ af lesblindu ásamt fullt af þrjósku. Ég var sendur í sérkennslu í lestri og fór sú kennsla fram á bókasafninu. Einn dag- inn mætti kennarinn ekki svo ég fór eitt- hvað að ráfa um á milli hillanna. Þá rakst ég á bók sem átti eftir að breyta öllu fyrir mig. Ég tók bókina úr hillunni og opnaði hana. Á fremstu síðu var teikning af mik- illi loftorrustu. Þessi teikning höfðaði til mín á einhvern hátt þannig að mér fannst ég þurfa að lesa það sem stæði í bókinni. Ég fékk hana lánaða, las hana og kenndi þannig sjálfum mér að lesa, alveg óvart. Bókin hét Haukur í hættu.“ Stalst til að fara í flugtíma „Eftir að ég útskrifaðist úr gaggó lá leiðin í Fjölbrauta- skóla Suðurlands. Einn daginn eftir að ég var byrjaður í skólanum stalst ég til þess að taka flugtíma hjá flugskólanum Flugtaki og greiddi fyrir hann með pening- um sem ég var búinn að safna mér. Ég sagði foreldrum mínum ekki frá tím- anum vegna þess að þau voru algjörlega á móti því að ég lærði að fljúga, sérstaklega mamma. Eftir að þetta upplýstist allt saman var samið um að ég fengi að halda áfram í náminu. Ég kláraði einkaflugmannsprófið samhliða náminu í fjölbraut en ég útskrif- aðist árið 1993. Yfir sumartímann vann ég við túnþökutínslu á Núpum í Ölfusi.“ Dró línu í sandinn „Ég var búin að hugsa mér að fara í verk- fræði í HÍ því útlitið í atvinnuflugi var frekar dökkt. Á þessum tíma hafði varla verið ráð- inn flugmaður til Flugleiða í fjöldamörg ár. Flugið togaði samt í mig og á endan- um ákvað ég að skella mér í atvinnuflug- mennsku en var búinn að draga línu í sand- inn. Ef ég yrði ekki kominn með vinnu sem flugmaður þegar ég yrði þrítugur þá biði verkfræðin mín. Ég fékk síðan atvinnuflug- manns- og kennararéttindi vorið 1995 og í ágúst sama ár var ég byrjaður að kenna hjá Flugtaki. Ég flutti frá Hveragerði haustið 1996 en þá flutti ég í höfuðborgina til að sleppa við að keyra svona langt í vinnuna.“ Klúbbur stofnaður af áhugamönnum Frá Flugtaki lá leið Sigurjóns til Íslands- flugs þar sem hann flaug á ATR-42, Do-228 og Boeing 737. Eftir sameiningu Íslands- flugs og Air Atlanta Icelandic hefur hann starfað sem flugstjóri og þjálfunarflugstjóri en er í dag flugrekstrarstjóri félagsins. Hann hefur flogið sem listflugmaður frá árinu 1997, mest á TF-UFO. Sigurjón var lengi vel formaður Flug- klúbbs Mosfellsbæjar eða í 10 ár en klúbb- urinn er með aðsetur á Tungubakkaflug- velli. Klúbburinn var stofnaður 29. maí 1981 af 14 flugáhugamönnum. Á vellinum eru 7 flugskýli, um 20 vélar og klúbbhús félagsmanna. Sigurjón er giftur Lucíu Guðnýju Jör- undsdóttur sjúkraliða og á hann þrjár stjúpdætur, þær Steinunni Mörtu, Hrafn- hildi Völu og Önnu Kolbrá. Markmiðið er að varðveita flugsöguna „Ég byrjaði að stunda vinnukvöld hjá Ís- lenska Flugsögufélaginu þegar ég var ungl- ingur. Áhugi minn á gömlum flugvélum kemur eflaust til af því að Haukur flugkappi sem ég las um í denn var alltaf að fljúga gömlum flugvélum úr seinna stríði. Flugsögufélagið er félag sem var stofnað árið 1977 af áhugamönnum um flugsögu og markmið félagsins er að varðveita flugsögu Íslands. Við erum að safna hlutum sem koma flugsögunni við, allt frá hnífapörum upp í flugvélar, og við þiggjum alla hluti sem tengjast henni með þökkum. Félagið hefur jafnframt gert upp nokkrar flugvélar í gegnum tíðina. Við erum ávallt með mörg járn í eldinum hjá Flugsögufélaginu og okkur vantar alltaf fleiri félaga til þess að leggja okkur lið við varðveislu flugsögunnar.“ Hundrað ára afmæli flugsins Árið 1919 kom fyrsta flugvélin til landsins og var hún af gerðinni Avro 504K. Þessi teg- und af vél var töluvert notuð í fyrri heims- styrjöldinni og þótti henta ljómandi vel til flugkennslu. Árið 2015 var Hið íslenska Avrofélag stofnað. Að baki því standa nokkrir af flugköppum nútímans en Sigur- jón er formaður þess. Þeir félagar ætla að kaupa Avro 504 og sjá til þess að hún fljúgi á hundrað ára afmælisdegi flugsins á Íslandi, 3. september 2019. - Mosfellingurinn Sigurjón Valsson20 Sigurjón með eiginkonu sinni Lucíu Guðnýju. MOSFELLINGURINN Eftir Ruth Örnólfsdóttur ruth@mosfellingur.is Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni. Þessi teikning höfðaði til mín á einhvern hátt þannig að mér fannst ég þurfa að lesa það sem stæði í bókinni. Ég fékk hana lánaða, las hana og kenndi þannig sjálfum mér að lesa. Sigurjón Valsson flugrekstrarstjóri Air Atlanta Icelandic og formaður Íslenska flugsögufélagsins er mikill áhugamaður um flugsöguna og þekkir vel til sögu fyrstu flugvélarinnar sem kom til landsins Flugið togar endalaust í mig á flugi fyrir 20 árum HIN HLIÐIN Hverju myndir þú breyta á Íslandi ef þú ættir þess kost? Útrýma einelti og fátækt. Fullkominn sunnudagur? Vakna seinna en venjulega, líta út um gluggann og sjá logn og sólskin. Fara niður á flugvöll, bulla við félagana, drekka kaffi og fljúga. Fallegasti staður í Mosfellsbæ? Tungubakkaflugvöllur, klárlega. Hvaða matur freistar þín? Lamba- hryggur með öllu sem honum fylgir. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Suð- austanátt og rigning vikum saman. Hvað er besta ráð sem þú hefur nýtt þér? Ég heyrði einu sinni sagt: „Það er fullt af fólki að gera þetta, af hverju ætti ég ekki að geta þetta?“ Þegar ég kem að einhverju sem ég held að sé óyfirstígan- legt kemur þetta oft upp í huga minn. Uppáhaldsflugvél? Ef við tölum um atvinnutæki þá eru það Boeing 747-400 og Dornier Do-228 en skemmtilegasta einkaflugvélin er klárlega CAP-10B. Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Af mörgu er að taka en ég fór í hrikalega skemmtilegan flugtúr með vini mínum Elíasi síðasta haust frá Tungubakkaflugvelli til Hahnweide flug- vallar í Þýskalandi. Farkosturinn var Bonanza flugvél smíðuð 1955 og við tókum viku í þetta. flugstjóri hjá íslandsflugiungur að árum

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.