Mosfellingur - 19.10.2017, Blaðsíða 25

Mosfellingur - 19.10.2017, Blaðsíða 25
www.mosfellingur.is - 25 Veturinn 2014-2015 var leikskólinn Hlíð einn af sex íslenskum leikskólum sem tók þátt í tilraunavinnu með Vináttuverkefni Barnaheilla (Fri for mobberi). Verkefnið kom til Íslands frá Danmörku en það byggir á snemmtækri íhlutun gegn einelti í leikskólum svo að draga megi úr því í yngri bekkjum grunnskóla. Verkefnið skerpir m.a. á gildi góðra samskipta, vináttu og virðingu fyrir öðrum. Gert er ráð fyrir að þátttakendur tileinki sér þau grunngildi sem verkefnið byggir á í allri vinnu og sam- skiptum í leikskólasamfélaginu. Gildin sem verkefnið byggir á og eru samofin öllu leikskólastarfinu eru: 1. Umburðarlyndi, að viðurkenna og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans og að koma fram við alla aðra af virðingu 2. Virðing, að viðurkenna og virða alla í hópnum og gildi margbreytileikans, að vera öllum góður félagi 3. Umhyggja, að sýna öllum börnum áhuga, samkennd, samlíðan og hjálpsemi, að hafa skilning á stöðu annarra 4. Hugrekki, að hafa hugrekki til að bregðast við órétti og að geta sett sér mörk, að vera hugrakkur og góður félagi sem bregst við óréttlæti sem aðrir eru beittir. Efla styrkleika hvers og eins Verkefnið byggir á nýjustu rannsóknum á einelti og er þátttaka barnanna, starfs- fólks og foreldra grundvöllur þess að vel takist til. Samkvæmt verkefninu er einelti slæmt mynstur eða samskipti sem þróast í aðstæðum og umhverfi þar sem umburðar- lyndi skortir gagnvart margbreytileikanum. Alltaf skuli því skoða hópinn sem heild, en ekki einblína á að einhver sé slæmur og annar góður, ekki á geranda og þolanda. Verkefnið byggist því á að efla styrkleika hvers einstaklings og vinna með hópinn í heild, um samskipti, samlíðan, umhyggju, vináttu og vellíðan. Vinátta á því að stuðla að almennri menntun leikskólabarna í hæfni þeirra til að takast á við áskoranir daglegs lífs og í samskiptum við aðra. Verkefnið byggir á að einelti sé á ábyrgð hinna fullorðnu. Hinn fullorðni sem um- gengst börnin daglega er sá sem hefur tækifæri til að fyrirbyggja eineltið - og ber skylda til þess. Vinátta, umhyggja og hugrekki Bangsinn Blær er táknmynd vináttunnar í Vináttuverkefninu. Hann minnir börnin á að vera góður félagi, huggar þau þegar þau eru sorgmædd og hann hefur í heiðri gildin sem byggt er á. Blær er vinsæll hjá börnunum og hjálpar til við að stuðla að góðum skólabrag og að gæta hvers annars vel. Litlir bangsar sem hvert og eitt barn á tákna samfélag Vináttu. Í leiðbeiningahefti ætlað kennurum er á fræðilegan hátt fjallað um einelti og fjölda hugmynda að verkefnavinnu til að vinna með í leikskólanum. Nuddhefti, samræðu- spjöld, sögubók þar sem fjallað er af kímni, skilningi og jákvæðni um erfiðar aðstæður sem upp geta komið í leikskólanum ásamt tónlistardisk og útikennsluhefti fylgja með verkefninu. Með því að hafa fjölbreytileika verkefna mikinn geta öll börnin sýnt styrkleika sína og lagt sitt af mörkum til að vera góður fé- lagi og sýna vináttu, umhyggju og hugrekki. Reynslan sýnir að börnunum líkar vel við efnið sem fylgir og eiga auðveldara með að setja sig í spor annarra. Í Hlíð er verkefnið unnið með öllum 3-5 ára börnum. Leikskólinn Hlíð hefur góða reynslu af Vináttuverkefninu Beita snemmtækri íhlutun gegn einelti krakkarnir og blær

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.