Mosfellingur - 19.10.2017, Blaðsíða 32

Mosfellingur - 19.10.2017, Blaðsíða 32
Þjónusta við mosfellinga - Aðsendar greinar32 Íslenska ullin er einstök Sjá sölustaði á www.istex.is Almenn lögfræðiráðgjöf Innheimtumál - Slysamál - Skilnaðarmál Erfðamál - Skipti dánarbúa Persónuleg þjónusta Margrét Guðjónsdóttir hdl. Háholti 14 - Sími 588 1400 - mglogmenn@mglogmenn.is - www.mglogmenn.is MG Lögmenn ehf. Það eru sannarlega óvenjulegir tímar í stjórnmálum. Við göngum aftur til þing- kosninga, í annað sinn á einu ári. Tímarnir eru ekki óvenjulegir af því að ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokk inn- anborðs sprakk í þriðja skiptið í röð, það virðist orðið að venju í íslensku samfé- lagi að ríkisstjórnir sem Sjálfstæðisflokk- urinn er í forsvari fyrir eða sitji í, springi og skapi óreiðuna sem formanni Sjálfstæðis- flokksins er tíðrætt um og óttast hvað mest. Nei, tímarnir eru óvenjulegir því að efnahags- legar ástæður eru ekki ástæða þess að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins hélt ekki velli núna, heldur femínísku baráttu-bylgjurnar gegn kynjaofbeldi og kynferðisafbrotum gegn börnum. Leyndar- hyggjan og samtryggingin var skoruð á hólm. Þolendur hryllilegra kynferðisafbrota sýndu ótrúlegt hugrekki og þrautseigju. Stigu fram og neituðu að gefast upp fyrir þöggun og leynd. Þau, ásamt fjölmiðlum, héldu áfram að krefjast upplýsinga og gagnsæis. Kröfðust þess að hlust- að sé á þau á æðstu stöðum íslensks stjórnkerfis. Fólk hafði hátt. Fyrir þetta hugrekki og magnaða þrautseigju þolenda kynferðisofbeldis nú og áður, ber okkur að þakka margfalt fyrir. Við í Vinstri hreyfingunni grænu framboði styðjum femíníska baráttu, enda erum við kven- frelsisflokkur sem frá stofnun hefur barist fyrir því að útrýma kynbundnu ofbeldi í hvívetna, viljum styrkja réttarstöðu þolenda kynferðisof- beldis og barist fyrir jafnrétti kynjanna á öllum sviðum samfélagsins og efla fræðslu um jafn- réttismál. Þeirri baráttu munum við í Vinstri grænum halda áfram að leggja lið af krafti. Við erum líka grænn flokkur og teljum að íslenskt samfélag þurfi að leggja miklu meiri þunga en nú á umhverfismálin. Ísland á að verða kolefnishlutlaust 2040, hverfa frá áform- um um olíuvinnslu og strika frekari áform um mengandi stóriðju út af borðinu. Ís- land á að beita sér á alþjóðavettvangi fyrir því að halda hlýnun jarðar undir 1,5°C. Tryggja þarf umhverfisákvæði í stjórnarskrá, að náttúruauðlindir séu í þjóðareign og nýting þeirra sé í sátt við umhverfi og náttúru. Efla þarf almenn- ingssamgöngur - á borð við Borgarlínu sem þarf að halda áfram vinnu við - sem og fleiri græn mál. Umhverfisvernd og virðing fyrir náttúrunni á að vera í öllum ákvarðanatökum enda mál framtíðarinnar og komandi kynslóða. Við í Vinstri grænum viljum leiða ríkisstjórn þar sem forgangsröðun opinberra fjármuna er sanngjarnari. Við viljum efla heilbrigðisþjón- ustuna af alvöru og styðja betur við menntun. Velferðin á Íslandi á að jafnast á við það besta á Norðurlöndum og vera fyrir okkur öll, óháð efnahag. Gerum skattkerfið réttlátara, léttum skattbyrðinni af þeim tekjulægstu og þau sem eru mest aflögufær greiði sanngjarnari hluta til samfélagsins. Hækkum lægstu laun og styttum vinnuvikuna án launaskerðingar. Setjum strax meira fjármagn í háskólana og heilbrigðis- þjónustuna, gerum betur við eldri borgara og hækkum frítekjumarkið. Hlúum að ungum fjöl- skyldum með raunverulegu vali á húsnæði og lengjum fæðingarorlofið. Við getum þetta allt. Þetta er bara spurning um pólitískan vilja. Við stöndum frammi fyrir nýjum tímum. Það er ákall í samfélaginu um meiri heiðarleika og traust í stjórnmálum. Við í VG hlýðum því ákalli og trúum að hægt sé að gera miklu betur í ís- lensku samfélagi. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, oddviti VG í Suðvesturkjördæmi. Við getum gert miklu betur Lengi vel skildi ég ekki stjórnmál. Fyrir mér voru þau veruleiki fyrir miðaldra punga sem lifðu fyrir völdin ein. Eft- ir menntaskólagönguna tók ég mig til og kynnti mér stefnur flokkanna. Þær reyndust afar svipaðar, allir vildu betra samfélag. Hins vegar voru áherslurnar á hvað fælist í betra samfélagi ekki alltaf þær sömu. Sem ungur kjósandi legg ég áherslu á jöfn tækifæri í samfélagi, stöðugt gengi, lægri vexti og þar af leiðandi betri kjör í húsnæðismálum. Menntamálin eru mér einnig afar hugleikin. Það var ekki fyrr en fyrir tveimur árum sem ég gat loksins sagt að ég væri sammála stefnu flokks. Sá flokkur heitir Viðreisn, en Viðreisn er fyrsti frjálslyndi flokkurinn á Íslandi síðan 1929. Ég velti lengi fyrir mér hvers vegna frjálslyndi skipti mig svona miklu máli og af hverju ég væri svona sammála stefnu Viðreisnar. Ég komst að því að flokkur sem er reiðubúinn að halda huganum opnum fyrir hugmyndum sem fælust í breytingum á núverandi ástandi í samfélaginu. Það skiptir mig miklu máli, enda tel ég liggja í augum uppi að margt mætti bæta til hins betra. Viðreisn er flokkur sem berst fyrir jöfnum tækifærum, stöðug- leika og betri kjörum allra stétta. Flokk- ur sem berst fyrir kerfisbreytingum og sátt í samfélaginu. Flokkur sem leggur áherslu á jöfn tækifæri, þar sem allir standa jafnfætis í samfélaginu. Eitt helsta stefnumál Viðreisnar er gjaldeyrismálið en það felst í því að taka upp evruna eða tryggja stöðugt gengi með myntráði. Þar af leiðandi yrðu vextir á húsnæð- islánum ekki 7-8% heldur um 2%. Sem ungur kjósandi skiptir það mig miklu máli að ég geti keypt íbúð á svipuðum kjörum og í nágranna- löndunum. Viðreisn samanstendur af virkilega öflugu og kláru fólki. Flokkur sem nýtir stöðu sína til verka en ekki valda. Þetta eru breytt stjórnmál og er ég virkilega ánægð að loksins sé kominn flokkur sem talar ekki aðeins um breytingar heldur fer í þær kerfisbreytingar er þörf er á. Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir; laganemi, lögreglumaður og skipar 9. sæti í Suðvesturkjördæmi fyrir hönd Viðreisnar. Hvað í fjandanum á ég að kjósa? www.fastmos.is 586 8080 Sími: Örugg og góð þjónusta Hafðu samband Einar Páll Kjærnested Löggiltur fasteignasali Fasteignasala Mosfellsbæjar • Þverholti 2 • S. 586 8080 • www.fastmos.is

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.