Mosfellingur - 09.11.2017, Blaðsíða 25
Aðsendar greinar - 25
Yndislegt líf
Sungið fyrir Umhyggju
til styrktar Umhyggju, félagi langveikra barna
í Langholtskirkju, sunnudaginn 19. nóvember kl. 16:00
Tökum þessa stund frá, hlýðum á frábæra
listamenn og styrkjum gott málefni.
Stórtónleikar
Fram koma:
Kaffi og konfekt í hléi
Aðgangseyrir kr. 2,500.-
Kammerkór Reykjavíkur
Kór Árbæjarkirkju
Góðir grannar
Ópus 12
Húnakórinn
Söngfuglar
Karlakór Kjalnesinga
Þrjár klassískar
Margrét Einarsdóttir
Viðar Gunnarsson
Signý Sæmundsdóttir
Ólafur M. Magnússon
Mikill árangur hefur náðst í forvörnum hér á landi
á síðustu 20 árum í að draga úr unglingadrykkju og
reykingum ungmenna.
Það er margt sem skýrir þennan árangur en
nefna má gott forvarnarstarf, aukna þátttöku barna
í skipulögðu íþrótta – og tómstundastarfi og síðast
en ekki síst samverustundir með fjölskyldunni. Í
dag glímum við við nýjar áskoranir en kvíði og van-
líðan er að aukast á meðal barna og unglinga eða
loks farið að opna augun fyrir þeim vanda.
Hagir og líðan barna
Mosfellsbær hefur líkt og mörg önnur sveitarfélög lát-
ið gera kannanir á högum og líðan barna frá 5.- 10. bekk.
Einnig eru gerðar kannarnir varðandi notkun á áfengi og
tóbaki. Niðurstöður síðustu ára sýna að mikill árangur hef-
ur náðst og hefur Mosfellsbær stutt vel við íþrótta- og tóm-
stundastarf í bænum.
Á síðust vorönn var lögð könnun fyrir nemendur í 5.
– 7. bekk um hagi og líðan og voru niðurstöður kynntar
fyrir fræðslunefnd. Niðurstöður þessarar könnunar eru
ekki góðar og kemur fram að börnin vilji meiri tíma með
foreldrum sínum, að mörg börn eiga ekki vini og of
mörgum börnum líður illa. Þetta er ekki gott. Sagt
er að miðstigið, 5. – 7. bekkur, sé hið nýja ungl-
ingastig. Á miðstiginu eru börnin farin að máta sig
við aðra og það sem skiptir máli í lífinu er góð fjöl-
skylda, góð sjálfsmynd, góðir félagar og góð líðan
í skólanum. Ef þetta þrennt er í lagi gengur námið
betur. En því miður er það ekki alltaf raunin og þá
verður fullorðna fólkið að grípa inní.
Matartíminn er mikilvægur
Börn eru á ábyrgð foreldra en að segja að það þurfi heilt
þorp til að ala upp barn er ekki orðum aukið. Reglur á
heimilinu eins og matartími og háttatími eru börnum afar
mikilvægar. Matartíminn er mikilvægur því þá gefst tæki-
færi til að ræða saman og þjálfa góð samskipti.
Börn eru ekki sérfræðingar í samskiptum og þurfa þjálf-
un í þeirri list. Börn þurfa hlustun, fá að kvarta og væla
undan öllu. Það er allt í góðu. Þau þurfa ekki endilega svör
en sannarlega hlustun. Fái barnið hlustun og virðingu í
samskiptum lærir það að treysta þeim fullorðna og tekur
framkomuna til fyrirmyndar sem eykur líkur á að barnið
velji rétt. Fjölskyldan er mikilvægust sama hvernig hún er
samsett og eldhúsborðið þarf ekki að vera merkilegt.
Við foreldrar
Gott foreldrastarf í skólunum, samstaða í bekk, umburð-
arlyndi og gleði bætir líðan barna í skólanum. Í grunnskól-
um Mosfellsbæjar hefur nýtt fólk boðið sig fram í stjórnir
foreldrafélaganna og þar ríkir mikill metnaður. Foreldra-
starfið er mikilvægur stuðningur við störf umsjónarkenn-
arans og við félagstarfið í skólunum.
Allir nemendur eiga að finna að þeir eru velkomnir og
tilheyra hóp þar sem virðing er borin fyrir bekkjarfélagan-
um. Skólinn er líka staður þar sem vönduð samskipti eru
æfð og stunduð. Góður bekkjarandi og heilbrigð skóla-
menning er gríðarlega mikil forvörn. Þar spila kennarar
stærsta hlutverkið.
Það er einlæg trú mín að foreldrastarfið í grunnskólum
bæjarins eigi enn eftir að eflast og styrkjast, börnum okkar
til framdráttar.
Kolbrún G. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi og
formaður fræðslunefndar Mosfellsbæjar.
Máttur eldhúsborðsins
www.fastmos.is
Sími: 586 8080
Örugg
og góð
þjónusta
Útgáfudagar
til áraMóta
30. nóveMber
21. deseMber
Mosfellingur er borinn út í hvert
hús og fyrirtæki í Mosfellsbæ,
Kjalarnesi og Kjós.
Skilafrestur efnis/auglýsinga er til
hádegis á mánudegi fyrir útgáfudag.
mosfellingur@mosfellingur.is
Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080
Einar Páll Kjærnested • lögg. fasteignasali • www.fastmos.is
eign vikunnar
MOSFELLINGUR
13. tbl. 16. árg. fimmtudagur 19. október 2017 DrEift frítt inn á öll hEiMili og fyrirtæKi í MoSfEllSbæ, á KjalarnESi og í KjóS
Ástu-Sólliljugata - fjórbýlishús
Nýjar fullbúnar 5 herbergja íbúðir með sérinngangi í
fjórbýlishúsi. Fjögur svefnherbergi, baðherbergi/þvottaher-
bergi, forstofa, rúmgóð geymsla með glugga, eldhús, stofa
og borðstofa. Rúmgóðar svalir eða steypt verönd í suðvestur
með fallegu útsýni. Steypt bílaplan og bakgarður tyrfður.
Íbúð 01-01. 166,1 m2, 5 herbergja íbúð V. 58,9 m.
Íbúð 01-02. 165,7 m2, 5 herbergja íbúð V. 58,9 m.
Íbúð 02-01. 171,8 m2, 5 herbergja íbúð V. 62,9 m.
www.fastmos.is
www.fastmos.isFyrir bæjarráði Mosfellsbæjar liggur nú til samþykktar tillaga um byggingu 3.200 fermetra fjölnota íþróttahúss
sem staðsett verði austan við núverandi íþróttamannvirki
við Varmá. Um er að ræða svokallað hálft yfirbyggt
knatthús þar sem eldri gervisgrasvöllur að Varmá er nú.
tæplega 500 börn og unglingar æfa knattspyrnu
Mosfellsbær mun byggja og eiga húsið og er áætlaður
byggingarkostnaður 308 milljónir króna. Uppbyggingin
er í takt við framtíðarsýn Aftureldingar en tæplega 500
börn og unglingar iðka knattspyrnu hjá félaginu og hefur
þeim farið hratt fjölgandi undanfarin ár.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við húsið hefjist
á næsta ári.
Ráðist verður í byggingu fjölnota íþróttahúss •Framkvæmdir hefjast á næsta ári
Knatthús að Varmá að veruleika
tölvugerð mynd
af útliti hússins
R É T T I N G AV E R K S TÆ Ð I
Jóns B. ehf
Flugumýri 2, Mosfellsbæ
Símar: 566 7660 og 697 7685 jonrett@internet.is
www.jonb.iS
Þjónustuverkstæði
Bílaleiga
á staðnum
cabaS
tjónaskoðun
ný
skiptum um framrúður
Mosfellingurinn Steingrímur Bjarnason akstursíþróttamaður
Hef alltaf haft mikinn
áhuga á mótorsporti 22
laust við kaupsamning
knatthúsið mun rísa
næst íþróttahúsinu4
Þverholti 2