Mosfellingur - 30.11.2017, Blaðsíða 4

Mosfellingur - 30.11.2017, Blaðsíða 4
Hjalti Úrsus Árnason hefur birt á Facebook heimildarmyndina „Fall Risans - rangar sakargiftir“. Þar er fjallað um rannsókn lögreglu og dómsmál á hendur syni hans, Árna Gils. Hjalti sviðsetur atburðarás í meintri morðtilraun sem sonur hans er dæmdur fyrir. Þeir feðgar bera lögreglu og saksókn- ara þungum sökum og segja að verið sé að fremja dómsmorð á Árna. „Ég geri þessa heimildarmynd til að upp- lýsa fólk og birti gögn úr rannsókn málsins. Það er mikilvægt að vekja athygli á málinu,“ segir Hjalti. „Ekki gleyma Árna Gils.“ „Ég var leiddur í gildru” „Ég hélt fyrst að hann væri sekur, eins og ég segi í myndinni. Það hefði þá verið ákveðin staða en maður er með sterka rétt- lætiskennd.“ Árni var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í mars. Síðan eru liðnir 270 dagar og var áfrýjun málsins tek- in fyrir í Hæstarétti á mánudag. Í ákærunni kemur fram að hann hafi veist að manni á bílastæði við sjoppu í Breiðholti. Eftir stutt átök hefði hann stungið manninn með hnífi í höfuðið. Árni segist hafa verið að verjast hnífaárás fíkils sem hann hafi aldrei séð áður. „Ég var leiddur í gildru,“ segir Árni en þeir feðgar telja að öllum líkindum tengist málið ásókn brotaþola í bótasjóð ríkisins. Þá lýsir Hjalti því einnig að stúlka sem ber vitni í málinu hafi verið lyfjuð og fengið loforð um að fá helming bóta ef hún breyti ekki röngum framburði sínum. „Brotaþoli kom sjálfur með hnífinn á vettvang og lét hann líka hverfa eftir at- burðinn. Saksóknari hefur sjálfur viður- kennt það.“ Brotaþoli hefur skaðað sig sjálfur „Skaðinn sem brotaþolinn varð fyrir gerðist ekki á þessum vettvangi heldur var hann höfuðkúpubrotinn fyrir,“ segir Hjalti og bendir á að maðurinn hafi ekki leitað sér aðstoðar á spítala fyrr en 40 mínútum síðar. Þá hafi hann verið alblóðugur og í miklu verra ástandi en þegar þeim Árna lenti saman. Ekkert blóð fannst á vettvangi og tæknideild lögreglunnar ekki kölluð til. „Þetta stemmir alls ekki. Hann hefur skaðað sig sjálfur. Þetta er blákaldur raun- veruleiki.“ Styttist í frelsun Árna „Það er verið að fremja á mér réttarmorð og öllum er sama,“ segir Árni Gils og segir sekt sína hafa verið ákveðna á staðnum. Hjalti neitar því ekki að Árni sé búinn að eiga í vandræðum með fíkniefni og áfengi. Hann hafi áður lent í minniháttar útistöð- um við lögreglu og eflaust ekki sá vinsælasti en þess má geta að Árni er 2,05 m á hæð og 180 kg. Málið var tekið fyrir í Hæstarétti á mánu- dag og segir Hjalti niðurstöðu að vænta eft- ir nokkrar vikur. „Það tekur vonandi ekki langan tíma að fá niðurstöðu og ég trúi því ekki að þessi vinnubrögð verði samþykkt. Vonandi styttist í frelsun Árna.“ Glíma við nýtt Geirfinnsmál „Heimildarmyndin hefur vakið gríðalega athygli og ég fæ alls staðar mjög góð við- brögð en fólki er brugðið eins og auðvitað mér sjálfum,“ segir Hjalti. „Þetta er nýtt Geifinnsmál sem er að gerast beint fyrir framan nefið á okkur. Árni er búinn að vera ótrúlega hraustur meðan hann hefur setið inni en fyrir mán- uði síðan fór heilsunni að hraka og andlegt ástand er orðið slæmt. Það slæmt að ég er hræddur um hann. Ef hann verður dæmdur í Hæstarétti munum við fara með þetta fyrir Mannrétt- indadómstól Evrópu,“ segir Hjalti. www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið HelGiHald næStu vikna Sunnudagur 3. desember 1. sunnudagur í aðventu Kl. 11:00 Guðsþjónusta í Lágafellskirkju Sr. Arndís Linn Sunnudagur 10. desember 2. sunnudagur í aðventu Kl. 11:00 Lokastund barnastarfsins í Lágafellskirkju Jólasveinninn kemur í heimsókn Sunnudagur 10. desember Kl. 20:00 Aðventukvöld í Lágafellskirkju Báðir prestar Sunnudagur 17. desember 3. sunnudagur í aðventu Kl. 11:00 Guðsþjónusta í Lágafellskirkju Sr. Arndís Linn SÓkn Í SÓkn – liFandi SaMFÉlaG Sjálfstæðisflokkurinn efnir til prófkjörs Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Mosfellsbæ hefur samþykkt að halda prófkjör fyrir sveitarstjórnar- kosningarnar sem fram fara á næsta ári. Tillaga þess efnis var sam- þykkt á fundi fulltrúaráðsins síðastliðinn fimmtudag. Prófkjörið fer fram laugardaginn 10. febrúar 2018 og framboðsfrestur rennur út fimmtu- daginn 18. janúar. Á fulltrúaráðs- fundinum lýsti Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, því yfir að hann hygðist gefa áfram kost á sér sem oddviti framboðslistans. Upplestrar á Gljúfra- steini á aðventunni Senn líður að aðventu og því komið að árlegum upplestrum á Gljúfra- steini sem nú eru haldnir í þrett- ánda sinn. Upplestrarnir hafa fest sig í sessi í dagskrá safnsins og eru góð slökun í amstri dagsins, fjarri skarkalanum sem oft vill einkenna desember. Í ár kennir ýmissa grasa og mörg fremstu skáld þjóðarinnar verðlauna þá gesti sem leggja leið sína að húsi skáldsins með því að lesa upp úr nýútkomnum verkum sínum. Forskot var tekið á aðventuna síðasta sunnudag þegar upplestraröðin hófst en lesturinn hefst kl. 16 á sunnudögum. Að- gangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir. Þann 3. desember mæta Jón Kalman Stefánsson, Kristín Ómarsdóttir, Oddný Eir og Friðgeir Einarsson. Nánar um dagskrána má finna á gljufrasteinn.is. - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64 Hollvinasamtök Reykjalundar gáfu endurhæfingarstofnuninni nýlega 17 vönduð rúm úr 100% náttúrulegum efnum frá sænska fyrirtækinu Hästens ásamt yfirdýnum, dúnsængum og koddum. Rúmin hafa þegar verið sett upp í herbergjum fyrir dvalargesti á Reykjalundi í stað eldri og um margt úr sér genginna rúma sem þar voru áður. Verðmæti gjafarinnar er um 2,8 milljónir króna og hafa Hollvinasamtökin nú afhent Reykjalundi búnað fyrir rúmlega tíu milljónir króna á þessu ári. Á myndinni má sjá þegar Haukur Leósson (t.v.) formaður Holl- vinasamtaka Reykjalundar afhendir Birgi Gunnarssyni, forstjóra Reykjalundar rúmin formlega í vikunni að loknum stjórnarfundi í samtökunum. Vönduð rúm að verðmæti 2,8 milljónir Hollvinasamtökin gefa reykjalundi 17 rúm haukur og birgir á reykjalundi Hjalti Úrsus sviðsetur meinta morðtilraun sonar síns • Á von á því að Árni verði sýknaður „Nýtt geirfiNNsmál beiNt fyrir framaN Nefið á okkur“ Kombó tilboð PI PA R \ TB W A • S ÍA franskar + coke 0,5 l + Freyju Lakkrís draumur El reno ÁLFHEIMUM GULLINBRÚ NORÐLINGAHOLTI MOSFELLSBÆ AKRANESI BORGARNESI STYKKISHÓLMI SKAGASTRÖND SIGLUFIRÐI ÓLAFSFIRÐI DALVÍK REYÐARFIRÐI NESKAUPSTAÐ HELLU SELFOSSI HÚSAVÍK við erum á olís Grill66.is 999 krónur tilboðiðgildir23. nóvember-3. desember úr heimildarmyndinni hjalti úrsus og árni gils vonast til þess að málið fái farsælan endi Aðventukvöld aðventukvöld lágafellssóknar verður haldið eins og áður annan sunnudag í aðventu þann 10. desember kl. 20:00. Vegleg dagskrá í tónum og tali. allir hjartanlega velkomnir. Vilja reisa búðir fyrir erlenda verkamenn Fyrirtækið Somos ehf. hefur farið þess á leit við Mosfellsbæ að fá leyfi til uppsetningu starfsmannabúða fyrir erlenda starfsmenn félagsins. Í erindi Somos til Mosfellsbæjar kemur fram að félagið hafi útvegað stórum verktökum iðnaðarmenn frá Póllandi. Í því ástandi sem ríkir á húsnæðismarkaði hafi þurft að afla húsnæðis fyrir umrædda starfs- menn annaðhvort utan höfuðborg- arsvæðisins eða í húsnæði sem kosti umtalsvert meira en starfsmennirn- ir eru tilbúnir að greiða.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.