Mosfellingur - 22.08.2017, Blaðsíða 33
12:00 - 17:00 WINGS AND WHEELS - TuNGubAkkAfLuGvöLLur
Fornvélasýning: Gamlar flugvélar, dráttarvélar úr Mosfellsbæ, mótorhjól, fornbílar
og flugsýning. Heitt á könnunni fyrir gesti og karamellukast fyrir káta krakka.
12:00 HÓPAkSTur uM MOSfELLSbÆ
Ferguson-félagið stendur fyrir hópakstri dráttarvéla og fornbíla.
Lagt er af stað frá Tungubakkaflugvelli og keyrður hringur um Mosfellsbæ.
12:00-17:00 kAffIHúS MOSvErjA
Skátafélagið Mosverjar opnar kaffihús í Skálanum í Álafosskvos.
Boðið upp á heitar vöfflur, kaffi og kakó.
12:00 - 17:00 úTIMArkAÐur Í ÁLAfOSSkvOS
Markaðstjöld full af fjölbreyttum varningi og ýmsar uppákomur á sviði.
12:00 Blaðrarinn mætir á svæðið með blöðrudýr fyrir börnin
12:30 Skósveinar (Minions) á vappi um svæðið
13:00 Krakkar úr Krikaskóla syngja
13:30 Kammerkór Mosfellsbæjar
14:00 Brassbandið Búbbert
14:30 Mosfellskórinn
15:00 Leikgleði flytur lög úr „Besta sýning ársins“.
15:30 Hljómsveit Ready (úr Tónlistardeild Listaskólans)
16:00 Hljómsveitin Piparkorn (úr Tónlistardeild Listaskólans)
13:00 – 17:00 vINNuSTOfur OPNAr Á ÁLAfOSSvEGI
Vinnustofur ljósmyndaranna Bjarkar Guðbrandsdóttur og
Guðbjargar Magnúsdóttur og myndlistarkonunnar Ólafar
Oddgeirsdóttur verða opnar á neðri hæð Álafossvegar 20.
13:00-15:00 EIrHAMrAr
– fÉLAGSSTArf ALDrAÐrA
Mosfellingar, FaMos-félagar og aðrir gestir velkomnir
í heimsókn í þjónustumiðstöðina á Eirhömrum.
Fjölbreytt vetrardagskrá kynnt.
Kaffi á könnunni og Vorboðarnir taka lagið um kl. 13:00.
13:00-13:30 bArNADAGSkrÁ
Á TúNINu vIÐ HLÉGArÐ
Bíbí og Björgvin syngja töfrandi lög ævintýranna. Björgvin
Franz mætir ásamt hinni heimsfrægu óperusöngkonu
Bíbí Markan. Dans, söngur og grín fyrir alla fjölskylduna.
Aðgangur frír.
13:00 - 16:00 SkOTTMArkAÐur vIÐ kjArNA
Mosfellingum gefst kostur á að koma með alls kyns gull
og gersemar úr skápum og bílskúrum og bjóða gestum
og gangandi til sölu. Einnig er handverksfólk velkomið.
Nánari upplýsingar um viðburð á Facebook. Skráning hjá
Elísabetu í síma 898 4412.
14:00 ÁLAfOSS – STÁLúLfur AÐ vArMÁ
Knattspyrnuliðið Álafoss mætir Stálúlfi á
gervigrasinu að Varmá. Leikurinn er partur
af Íslandsmótinu í 4. deild.
14:00 - 24:00 TÍvOLÍ vIÐ MIÐbÆjArTOrG
14:00 - 17:00 LISTASALur MOSfELLSbÆjAr
Sýning Rögnu Fróða í Listasal. Listamaðurinn verður
á staðnum, spjallar við gesti og gangandi um
sýninguna og fremur gjörning kl. 15.00.
14:00 - 16:00 kjúkLINGAfESTIvAL
- kjúkLINGArÉTTIr fYrIr ALLA
Stærstu kjúklinga- og matvælaframleiðendur landsins
kynna afurðir sínar og gefa smakk við íþróttamiðstöðina
að Varmá. Matur og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Ýmis skemmtiatriði, Biggi Haralds, harmonikkuleikur,
Mas Wrestling, uppistand og fleira.
14:00 - 16:00 ÍÞrÓTTAMIÐSTöÐIN AÐ vArMÁ -
AfTurELDING kYNNIr vETrArSTArfIÐ
Kynning á vetrarstarfi Aftureldingar.
Fulltrúar deilda verða á svæðinu og kynna
starfsemi sína. Aftureldingarbúðin verður opin.
14:00 - 17:00 vöffLukAffI Í fMOS
Nemendafélag Framhaldsskólans í Mosfellsbæ verður með vöfflukaffi
í skólanum og rennur ágóðinn til Reykjadals þar sem Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra rekur sumar- og helgardvöl fyrir fötluð börn og ungmenni.
Kammerkór Mosfellsbæjar syngur kl. 15:30.
14:00 - 17:00 STEkkjArfLöT – HOPPukASTALAr
Frítt fyrir káta krakka.
15:00 - 16:00 STEkkjArfLöT – HESTAfjör
Teymt undir börnum í boði Hestamannafélagsins Harðar.
15:00 - 18:00 OPIÐ HúS Á rEYkjAvEGI 84
Opið hús á leirvinnustofu Helgu Jóhannesdóttur, Reykjavegi 84.
Kaffi á könnunni og snapsakynning frá Eimverk Distillery,
í stuðlabergsstaupum. Allir hjartanlega velkomnir.
16:00 vArMÁrvöLLur – AfTurELDING - MAGNI
Knattspyrnulið Aftureldingar tekur á móti Magna frá Grenivík. Leikur í
Íslandsmótinu í knattpyrnu – 2. deild karla. Baráttuleikur í efri hluta deildarinnar.
16:30 kArMELLukAST Á fLuGvELLINuM TuNGubökkuM
17:00 - 21:00 GöTuGrILL Í MOSfELLSbÆ
Íbúar í Mosfellsbæ halda götugrill í vel skreyttum götum bæjarins
21:00 - 23:00 STÓrTÓNLEIkAr Á MIÐbÆjArTOrGI
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem Mosfellsbær býður öllum upp
á tónleika á Miðbæjartorginu.
Kynnar verða þeir Steindi Jr. og Dóri DNA.
Fram koma: Skólahljómsveit Mosfellsbæjar, Jógvan Hansen,
Diddú, Stefanía Svavars, Stormsveitin, Stefán Hilmars, Páll
Óskar, Biggi Haralds, Áttan og Stuðlabandið.
Rauðakrosshópurinn sinnir gæslu ásamt
björgunarsveitinni Kyndli.
23:00 björGuNArSvEITIN kYNDILL
MEÐ fLuGELDASÝNINGu
22:30 – 01:00 EINAr ÁGúST Á HvÍTA rIDDArANuM
Hinn eini sanni Einar Ágúst mætir með gítarinn
og syngur fyrir hressa sveitunga. Frítt inn.
23:30 - 04:00 STÓrDANSLEIkur
MEÐ PÁLI ÓSkArI AÐ vArMÁ
SuNNuDAGur 27. ÁGúST
7:00 - 22:00 HLÍÐAvöLLur – frÍTT Í GOLf
Golfklúbbur Mosfellsbæjar býður Mosfellingum að spila frítt á
Hlíðavelli. Bóka þarf rástíma á golf.is eða í afgreiðslu GM og er
nauðsynlegt að viðkomandi hafi þekkingu og getu til að leika á
vellinum og fari eftir öllum þeim reglum sem þar gilda.
8:00 - 17:00 MOSfELLSbAkArÍ
Mosfellsbakarí í hátíðarskapi alla helgina og býður gestum
og gangandi upp á ilmandi ferskt brauð, bakkelsi og frábæra
stemningu. Litríkar hverfamúffur, hátíðarkaka og frábærar
hátíðarvöfflur.
9:00 - 17:00 ÍÞrÓTTASvÆÐIÐ Á TuNGubökkuM
Fótboltamót Aftureldingar og Weetos, 6. og 7. flokkur
karla og kvenna.
13:00 - 17:00 HúSDÝrAGArÐurINN
Á HrAÐASTöÐuM Í MOSfELLSDAL
Geitur, refur, kettlingar, grís, kálfur, hænur, kanínur,
naggrísir og mörg önnur húsdýr. Aðgangur 600 kr.
11:00 GuÐSÞjÓNuSTA Í MOSfELLSkIrkju
Fögnum og höldum hátíð. Guðsþjónusta í dal skáldanna,
Mosfellskirkju í Mosfellsdal kl.11:00. Sr. Arndís Bernhardsdóttir
Linn þjónar fyrir altari og prédikar. Karl Tómasson, Jóhann
Helgason og Guðmundur Jónsson annast tónlistarflutning
ásamt Kjartani Ognibene organista og kirkjukór Lágafellskirkju.
Hjartanlega velkomin!
14:00 - 17:00 STEkkjArfLöT - HOPPukASTALAr
Frítt fyrir káta krakka.
14:00 HLÉGArÐur - HÁTÍÐArDAGSkrÁ
Umhverfisnefnd veitir umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar
2017.
Útnefning bæjarlistarmanns Mosfellsbæjar 2017.
Verðlaunaafhending vegna ljósmyndasamkeppni
í tilefni 30 ára afmælis Mosfellsbæjar.
Karlakórinn Stefnir flytur nokkur lög.
Heitt á könnunni og allir velkomnir.
16:00 GLjúfrASTEINN - STOfuTÓNLEIkAr
Tónlistarkonan Sóley flytur lög af nýjustu plötu sinni, Endless Summer,
í bland við gömul lög. Meðleikarar hennar verða Albert Finnbogason
á bassa og Katrín Helga Andrésdóttir á hljómborð. Aðgangseyrir: 2.000 kr.
17:00 bESTA SÝNING ÁrSINS Í bÆjArLEIkHúSINu
Afrakstur fjögurra vikna námskeiðs hjá Leikgleði í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ.
Söngleikur sem var saminn af leikhópnum í samstarfi við Elísabetu Skagfjörð.
Miðaverð 1.000 kr. Miðapantanir í síma 5667788.
Bæjarhátíð MosfellsBæjar 25.-27. ágúst
laugardagur 26. ágúst11:00
GALLErÍ HvIrfILL Í MOSfELLSDAL
Bjarki Bjarnason les úr væntanlegri ævi-
sögu Guðrúnar Tómasdóttur söngkonu.
13:30
AMSTurDAM 6 vIÐ rEYkjALuND
Kvennakórinn Stöllurnar og María Guð-mundsdóttir bjóða til árlegrar garðveislu.
14:00
NjArÐArHOLT 10
Létt og lifandi tónlist í garðinum
í Njarðarholti 10. Allir velkomnir
á garðtónleika Í túninu heima.
15:00
AkurHOLT 21
Siggi Hansa og fjölskylda bjóða upp á
tónleika í garðinum í Akurholti. Hljómsveit hússins leikur og fær til sín góða gesti.
16:00
ÁLMHOLT 10
Davíð Ólafsson óperusöngvari býður
til útitónleika. Meðal gesta verða Einar
Dagur, Hallveig Rúnarsdóttir, Fjölnir
Ólafsson og Óperukór Reykjavíkur undir
stjórn Garðars Cortes. Davíð og Stefán
taka svo fjöldasöng ásamt Helga Hannes-syni píanóleikara.
16:00
DALATANGI 15
Ari Brimar býður til tónleika með
Kallabandinu. Bandið skipa: Brynjar
Þór Jakobsson gítar, Hjörleifur Ingason hljómborð, Ari Brimar bassi/söngur og Brynjólfur Pétursson trommur. Framreidd verða lög eftir CCR, Santana og fleiri.
16:00
HAMArSTEIGur 9
Hjónin Sigríður Stephensen og Pálmar
S. Ólafsson bjóða til tónleika við heimili
sitt að Hamarsteigi 9. Þar mun 18 manna „Big-band“ stórsveit Öðlinga spila ásamt söngkonunni Hjördísi Geirsdóttur.
16:30
SkÁLAHLÍÐ
Útitónleikar í garðinum heima. Tríóið
Kókos skemmtir í brekkunni fyrir neðan
Skálahlíð. Dægurlög sem allir þekkja.
Mosfellingar bjóða heim