Mosfellingur - 21.12.2017, Qupperneq 38
- Aðsendar greinar38
Í lok nóvember síðastliðins var
samþykkt fjárhagsáætlun Mosfells-
bæjar 2018-2021.
Við lestur og greiningu henn-
ar kemur í ljós að fjárhagsstaða
bæjarins hefur styrkst verulega á
undanförnum árum, skuldir hafa
lækkað og tekjur aukast.
Það er mjög ánægjuleg stað-
reynd og ljóst að meirihluti bæjarstjórnar,
undir stjórn Sjálfstæðisflokksins, og starfs-
menn bæjarins hafa verið og eru að vinna
gott starf í þeim fjölmörgu verkefnum og
málaflokkum sem tilheyra rekstri á bæjar-
félagi eins og Mosfellsbæ.
Sökum batnandi fjárhagsstöðu er hægt
að auka framlög til ýmissa mikilvægra verk-
efna bæjarins á næsta ári auk þess að létta
skattaálögum á bæjarbúa og er það vel.
Ánægja meðal Mosfellinga
Í Mosfellsbæ er gott að búa og sýna kann-
anir að íbúar Mosfellsbæjar eru ánægðast-
ir með bæinn sinn þegar mælt er viðhorf
íbúa til þjónustu í 19 stærstu sveitarfélög-
um landsins.
Það eru væntanlega margir þættir sem
eiga þátt í þessari ánægju íbúa Mosfells-
bæjar og mikilvægt fyrir bæjaryfirvöld að
halda áfram á sömu braut, hlusta áfram á
íbúana og leggja kapp á að auka enn frekar
lífsgæði Mosfellinga.
Þessar kannanir vekja athygli og útkoma
þeirra á eflaust þátt í því að ungt fjölskyldu-
fólk velur í miklum mæli að flytja í bæinn
og er það ánægjuleg þróun.
Ört stækkandi bæjarfélag
Mikil fjölgun bæjarbúa undanfarin miss-
eri og á komandi árum er á sama tíma mjög
krefjandi verkefni fyrir bæjaryfirvöld. Mikill
og hraður vöxtur á fjölda íbúa kallar á mikl-
ar framkvæmdir sem þarf að vinna hratt og
vel í að koma í framkvæmd. Hér má nefna
skólamál, leikskólamál, íþróttaaðstöðu og
umhverfismál, svo eitthvað sé nefnt.
Mosfellsbær er í fararbroddi á landinu
sem heilsueflandi bær. Þessi heilsumiðaða
stefna bæjaryfirvalda hefur aldrei verið
mikilvægari en nú.
Það forvarnarstarf fyrir börn, unglinga og
fullorðna sem unnið er í skólum, íþróttafé-
lögum og á fleiri stöðum í bænum er ómet-
anlegt og oft á tíðum vanmetið.
Þessi málefni eru reyndar ofar-
lega á forgangslista bæjaryfirvalda
eins og kemur fram í fjárhagsáætl-
un, en betur má ef duga skal.
Það er því, að mínu mati, verk-
efni næstu missera að bæta enn
meira fjármagni í þessa mála-
flokka, bæta verulega íþróttaað-
stöðu í bænum, efla enn frekar aðstöðu,
tækjakost o. fl. í skólum og leikskólum bæj-
arins ásamt fleiri þáttum í grunnþjónustu
okkar ört stækkandi bæjarfélags.
Spennandi verkefni framundan
Umhverfismál skipta okkur Mosfellinga
mikill máli og þau málefni þurfa að vera í
brennidepli nú sem fyrr samfara stækkun
bæjarfélagsins.
Samgöngumál eru mjög stór og mikilvæg-
ur málaflokkur og ljóst að breytingar á þeim
verða miklar á næstu árum með stöðugt
aukinni umferð bæði á höfuðborgarsvæð-
inu sem og innanbæjar í Mosfellsbæ.
Það er því ljóst að bæjaryfirvöld þurfa
að leggja mikla áherslu á þau mál eins og
stendur til að gera, t.d. með mótun um-
hverfis- og samgöngustefnu bæjarins.
Fram undan eru mörg spennandi verk-
efni og miklar framkvæmdir eru á verkefna-
lista Mosfellsbæjar og því mikilvægt að vel
sé haldið á málefnum sveitafélagsins.
Óska eftir stuðningi í 2.-3. sæti
Ég hef ákveðið á að bjóða fram þekkingu
mína og reynslu í rekstri, í mannauðs-
málum, auk áralangs sjálfboðaliðastarf í
íþrótta- og félagsmálum til þjónustu við
íbúa Mosfellsbæjar á næsta kjörtímabili.
Ég gef kost á mér í 2.-3. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ sem fer
fram 10. febrúar 2018. Ég sækist þar með
eftir að bætast í öflugan hóp bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, til að
vinna með þeim áfram að framförum og
bættum lífsgæðum í Mosfellsbæ.
Ég óska Mosfellingum gleðilegra jóla og
velgengni í leik og starfi á komandi ári.
Ásgeir Sveinsson,
framkvæmdastjóri hjá Halldóri Jónssyni ehf. og
formaður Aftureldingar karla í handbolta.
Höldum áfram á réttri leið
Kjör íþróttaKonu
og íþróttaKarls
Mosfellsbæjar 2017
Útnefning íþróttakonu og -karls Mosfellsbæjar 2017 fer fram í
Íþróttamiðstöðinni að Varmá fimmtudaginn 18. janúar 2018 kl. 19:00.
Þeir sem eru gjaldgengir sem íþróttakarl og íþróttakona Mosfellsbæjar skulu
koma úr röðum starfandi félaga í bænum eða vera íbúi í Mosfellsbæ sem stundar
íþrótt sína utan Mosfellsbæjar, enda sé íþróttin ekki í boði innan bæjarins.
Allar útnefningar og ábendingar sendist á dana@mos.is
Einnig er óskað eftir útnefningu og ábendingum um íþróttafólk sem hefur orðið
Íslandsmeistarar, deildarmeistarar, bikarmeistarar, landsmótsmeistarar
og hefur tekið þátt í og/eða æft með landsliði.
Vinsamlegast sendið útnefningar á dana@mos.is fyrir 23. desember 2017.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Guðmundsson íþróttafulltrúi Mosfellsbæjar í síma 6600750.
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar
2016
Síðasta fjárhagsáætlun þessa kjör-
tímabils var afgreidd úr bæjarstjórn
í byrjun desember. Allar ytri að-
stæður Mosfellsbæjar, líkt og ann-
arra sveitarfélaga í landinu, eru al-
mennt hagfelldar og horfur góðar.
Þess sést stað í fjárhagsáætlun
bæjarins og útkomuspám ársins
2017. Í fjárhagsáætlun ársins 2018
er að finna ýmis verkefni og fram-
kvæmdir sem eru til hagsbóta fyrir
íbúa Mosfellsbæjar, verkefni sem
hafa verið rædd á vettvangi kjör-
inna fulltrúa á kjörtímabilinu og
mikið sammæli ríkir um innan
bæjarstjórnar.
Bæjarfulltrúar Samfylkingar-
innar lögðu fram nokkrar tillögur við fyrri
umræðu um áætlunina og óskuðu eftir að
þær yrðu skoðaðar milli umræðna og áhrif
þeirra á fjárhagsáætlun reiknuð út. Meðal
tillagna okkar var hækkun frísundaávís-
unar í 50 þúsund krónur fyrir hvert barn,
lækkun leikskólagjalda og sérstök fjárveit-
ing í að hefja gerð s.k. græns skipulags fyrir
Mosfellsbæ.
Þá var gengið frá því að tillaga okkar um
gjaldfrjálsan hafragraut að morgni dags í
grunnskólum yrði útfærð sem tilraunaverk-
efni fyrir afmarkaðan hóp til að sjá hvern-
ig best verði staðið að verkefninu. Þessar
tillögur Samfylkingar hlutu jákvæðar und-
irtektir hjá meirihluta Vinstri grænna og
Sjálfstæðisflokks og rötuðu inn í lokaútgáfu
fjárhagsáætlunar sem samþykkt var.
Sú niðurstaða ber vott um hverju hægt
er að áorka með samtali bæjarfulltrúa, sé
viljinn fyrir hendi. Undanfarin ár
hefur mikið verið rætt um að taka
þyrfti upp ný vinnubrögð í stjórn-
málum. Hatrömm átök milli fylk-
inga spilli framgangi góðra mála
og skapi vantraust almennings í
garð þess fólks sem gegnir störfum
kjörinna fulltrúa og stjórnmálanna
almennt. Viljinn til að hlusta og
ræða saman skiptir höfuðmáli í
breyttum stjórnmálum.
Ágreiningur heldur vissulega
áfram um þau atriði sem skilja
fólk að í samræmi við skoðanir
þeirra og pólitíska lífssýn. En átök-
in þurfa ekki og eiga ekki að vera á
persónulegum eða niðrandi nót-
um. Þvert á móti á að takast á með
málefnalegum rökum og bera virðingu fyr-
ir því að önnur sjónarmið um málefni eiga
fullkominn rétt á sér í lýðræðislegri um-
ræðu. Þannig er ágreiningur á hinu pólit-
íska sviði í raun grunnurinn að því lýðræð-
islega skipulagi sem við búum við.
Lítið vitum við um hvað framtíðin ber í
skauti sér en þó er vitað að sveitarstjórnar-
kosningar verða haldnar í lok maí 2018. Við
munum halda áfram að vinna okkar störf
innan bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þannig
að Samfylkingin geti gengið hnarreist til
þeirra kosninga.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar senda
bæjarbúum öllum bestu óskir um gleðilega
jólahátíð, farsæld og frið á nýju ári.
Anna Sigríður Guðnadóttir
Ólafur Ingi Óskarsson
Fjárhagsáætlun og
lýðræðisleg umræða
Sú hefð hefur skapast í eldri deild Varmárskóla í desember að nemendur skreyta hurð-
ina á umsjónarstofum sínum.
Óhætt er að segja að aldrei hefur verið jafn mikið lagt í skreytingarnar eins og þetta
skólaárið. Valið var sérstaklega erfitt þar sem hurðarnar voru allar mjög flottar.
Skreytingakeppni í Varmárskóla
1. sæti - 10.hlb 2. sæti - 8. th
Næsta blað kemur út: 11. jaN
Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir
kl. 12, mánudaginn
8. janúar 2018.
HáHolti 13-15 - Sími: 416 0100
Gleðileg jól
og takk fyrir viðskiptin á árinu