Mosfellingur - 21.12.2017, Blaðsíða 42
Heiða Karen fæddist 4. október 2017.
Hún vó 3.335 gr og var 50 cm.
Heiða Karen á tvö systkini, Tori Lynn 12
ára og Brand Óla 10 ára. Foreldrar eru
Rósa Dögg Gunnarsdóttir og Gísli Sverr-
isson og býr fjölskyldan í Stórateig.
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
jólin
nálgast
Nú þegar þetta birtist á síðum Mosfell-
ings eru tvær mínútur í jól og flestir
búnir að svona sirka flestu. Hinir sem
eiga allt eftir eru væntanlega að tapa sé
r
og truflast úr jólastressi og allt á síðast
a
snúningi. Flestir hafa eða höfðu venjur
fyrir jólin hvort sem það er jólamaturi
nn
sjálfur eða velja eða skreyta jólatréð,
fara á jólahlaðborð, nú eða í skötuveis
lu
eða eitthvað allt, allt annað.
VIð fjölskyldan eigum okkar hefðir, svo
sem að setja upp sérstakt jólaskraut se
m
er „Made in China“ og vekur furðu og
spurningar hjá þeim sem sjá það og lík
a
að sjálfsögðu hefðbundið skraut sem
verður að fara á sinn stað á hverju ári.
Undanfarin ár er orðin föst hefð hjá m
ér
að fara í skötuveislu hjá Villa og Sigrún
u
og SNILLINGUNUM í Fagverki sem sjá
um að gera það kvöld svakalegt. Ásam
t
mörgum öðrum skemmtilegum hefðum
í kringum jólahátíðina, aðventuna og
áramótin.
Það eru tímamót hjá mér þessi jól því a
ð
nú er ég búinn að skipta um starf eftir
um það bil 8 ár á sama stað. Ég mun af
-
greiða Þorláksmessuskötuna og jóla- o
g
áramótahumarinn yfir afgreiðsluborð
ið
í Hafinu, Hlíðarsmára, þar sem ég er
byrjaður að vinna. Það verður að segja
st
að það er mjög skrítið að skipta um sta
rf
eftir að hafa verið lengi á sama stað. Þá
saknar maður allra föstu kúnnanna og
starfsfólksins sem maður er búinn að
umgangast síðasta áratug, og það eru
margir Mosfellingar sem höfðu vanið
komu sína þangað. En svona er nú lífið
og ég get farið að rífa kjaft í Kópavogin
-
um í staðinn.
Svona í blálokin þá vil ég koma með sm
á
ábendingu. Eins og allir Íslendingar vi
ta
þá lesa jólasveinarnir alltaf Mosfelling
og vil ég nota tækifærið og tala mínu
máli. Það var þarna dagur sem ég átti
víst að fá kartöflu en fékk bara ekkert .
..
hvað var það ... svo er þetta með að fá
tannkrem, svitalyktareyði og sokka ...
Hvað varð um happaþrennurnar, DVD
myndir og jólabjórinn ... nei, nei ég er
bara að grínast, ég er ALLTAF sáttur vi
ð
sveinana 13.
Ég þakka fyrir mig og gleðilega jólahát
íð
og nýtt ár.
högni snær
Í eldhúsinu
Hjónin Ragnheiður
og Óli Valur deila
með okkur uppskrift
að þessu sinni. „Við
deilum með ykkur
blöndu af íslenskri
og japanskri matseld.
Rétturinn er vinsæll
hjá stórfjölskyldunni
og góð tilbreyting milli
kjötrétta jólanna.“
Hráefni
• 5 bollar hrísgrjón
(þvegin og soðin)
• 5 egg (hrærð)
• Salt og hvítur pipar (í hlut-
föllum 7/1) blandað saman
• 1 lítill laukur
(smátt saxaður)
• 1 bakki sveppir
(smátt skornir)
• 2 hvítlauksgeirar
(smátt saxaðir)
• ¼ púrrulauksstilkur (þunnskorinn)
• Beikon 300-400 g (skorið í litla teninga)
• Tasty humargrunnur + 50 ml vatn
(hitað upp saman)
• Steikarolía
• 1,5-2 kg stórir humarhalar
(eða annar fiskur)
• 50 g smjör (bráðið)
• 1 hvítlauksgeiri og steinselja
(smátt saxað)
Aðferð:
Cha-han (steikt
hrísgrjón):
Steikið eggja-
hræru, sveppi, lauk
og beikon hvert í
sínu lagi og takið
til hliðar. Steikið
soðnu hrísgrjónin
á pönnu, humar-
grunni hellt yfir
hrísgrjónin og
velt vel saman.
Eggjum, grænmeti
og beikoni blandað saman
við. Saltað og piprað eftir
smekk.
Humarhalar:
Skerið í mitt bak humars
(ekki alveg í gegn) og
hreinsið að innan (ef
þörf). Bræðið smjör, setjið saxaðan hvítlauk
og steinselju út í og berið á humarinn. Smá
salt og piparblöndu stráð yfir. Setjið humar-
halana inn í 200C heitan ofn í 3 mín, takið
út í 2 mín og setjið aftur inn í ofn í 2-3 mín
(eftir smekk). Raðið humarhölum ofan á
hrísgrjónabeð.
Fyrir 4-6, eftir svengd.
Gott að drekka ískalt hvítvín með
eða mysu :) Njótið.
Ragnheiður og Óli Valur skora á Öldu og Þröst að deila næstu uppskrift með Mosfellingum
hjá Röggu og Óla val
Hrísgrjónaréttur í hátíðarbúningi
- Heyrst hefur...42
týndur köttur
Sherlock er rúmlega eins árs og sást síðast 30. nóvember. Við erum búin að leita
alls staðar en við finnum hann ekki. Hann var ekki með ól þegar hann slapp en er
örmerktur og kann sitt eigið nafn þannig að það mætti prófa að kalla nafnið hans ef
það sést köttur eins og hann. Þorbjörg s. 897-7768, Þrastarhöfða 7.
kliddi.blog.is
heyRst hefuR...
...að strákarnir í Kaleo hafi verið mest
gúggluðu Íslendingarnir á alþjóða-
vísu á árinu 2017.
...að Karen og Siggi Straumur eigi
vona á barni næsta sumar.
...að Árni Gils hafi losnað úr fangelsi
eftir 277 daga dvöl þar sem
Hæstiréttur vísaði máli hans aftur
heim í hérað.
...að uppselt sé á jólatónleika Gretu
Salóme sem fram fara í Hlégarði á
föstudaginn.
...að þrettándabrenna Mosfellinga
fari að þessu sinni fram á sjálfum
þrettándanum 6. janúar sem er á
laugardegi í ár.
...Blaksamband Íslands hafi útnefnt
Mosfellinginn Thelmu Dögg
blakkonu ársins 2017.
...að Mosfellsbær hafi tapað naumlega
fyrir Grindavík í Útsvarinu um
síðustu helgi.
...að Magni, Salka Sól og Eyþór Ingi
séu meðal þeirra sem munu halda
uppi stuðinu á Þorrablóti Aftureld-
ingar í íþróttahúsinu 20. janúar.
...að fasteignasalar séu að bjóða í
heilu og hálfu húsin í Markholti til að
rífa og byggja ný.
...að íþróttagarpurinn Elli Níelsar eigi
fimmtugsafmæli í dag.
...að Litli skiptibókamarkaðurinn 2018
verði haldinn í bókasafninu 20. jan.
...að Samfylkingin ætli að vera með
uppstillingu á sínum lista fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar í vor.
...að Baddi og Matta hafi óvænt látið
pússa sig saman.
...að ungmennaráð Mosfellsbæjar fái
áheyrnarfulltrúa á fundi íþrótta- og
tómstundanefndar í tilraunaskyni.
...að Gugga á Hlaðhömrum hafi orðið
sextug á dögunum.
...að búið sé að fjarlægja mygluna á
3. hæð Kjarna og starfsemi muni
flytjast þangað upp aftur í dag.
...að Dalbúinn Gummi Hreins sé búinn
að semja hugljúfan blús um Costco
drauminn.
...að Snævar Ingi og Vigdís eigi von á
barni á nýju ári.
...að verið sé að bjóða heimilislausum
skammtímahúsnæði í Víðinesi.
...að Mosfellsbær sé búinn að ráða
verktaka til hefta útbreiðslu skógar-
kerfils og lúpínu næsta sumar.
...að knattspyrnumaðurinn efnilegi
Bjarki Steinn, sonur Bjarka Sig, sé
genginn í raðir ÍA.
...að Mosfellsbær hafi hafnað beiðni
Somos ehf. um að reisa starfs-
mannabúðir fyrir erlent vinnuafl á
Tungumelum.
...að hið músíkalska par í Mosfellsdal,
Hafdís Huld og Alisdair, hafi gift sig í
gróðurhúsi um síðustu helgi.
...að hægt sé að taka jólabaðið í
sundlaugum bæjarins sem verða
opnar til hádegis á aðfangadag.
...að jólabingó verði haldið á Hvíta
Riddaranum á föstudaginn.