Mosfellingur - 10.03.2016, Blaðsíða 2
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Í þá gömlu góðu...
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 31. mars
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn: (blaðamenn og ljósmyndarar)
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.000 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Eurobærinn stendur undir nafni. Mosfellingurinn Greta
Salóme gerði sér lítið fyrir og sigraði í
Söngvakeppni Sjónvarpsins og verður
því fulltrúi Íslendinga á
stóra Eurovision-sviðinu
í Stokkhólmi í vor. Ég
hef sagt það áður, en
það er magnað hvað
Mosfellingar hafa verið
áberandi í tónlistinni á
undanförnum árum.
Því ber að fagna og
við á Mosfellingi
tökum glöð
þátt í því.
Mikill höfðingi er fallinn frá, Páll Helgason tónlistarmaður og
kórstjóri. Hann skilur eftir sig stórt
skarð í tónlistar- og menningarlífi
okkar Mosfellinga. Verðskuldað
var Páll valinn bæjarlistamaður
Mosfellsbæjar árið 2012. Hann kom
að stofnun og stjórnaði fjölda kóra
bæði hér í Mosfellsbæ og víðar. Þessi
gleðigjafi helgaði svo sannarlega líf
sitt tónlistinni og leyfði okkur hinum
að njóta.
Takk, Palli Helga, fyrir allt sem þú hefur lagt til menningar í
Mosfellsbæ.
Músíkalskir Mosfellingar
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2
www.isfugl.is
ÁRGANGAHÓPUR 1965
Um langt árabil var gott
samstarf milli Varmár-
skóla og Myllubakkaskóla
í Keflavík. Heimsóknir
voru gagnkvæmar og
dvalið daglangt. Farið var
í skoðunarferðir og ýmis
fyrirtæki heimsótt. Keppni
í íþróttum var fastur liður,
einnig að kvöldmatur var
á heimilum gestgjafa og
endað á „diskóteki“ fram
eftir kvöldi. Myndin er
tekin við Myllubakkaskóla
í Keflavík þann 10. apríl
1978. Hér eru á ferð 12 ára
gamlir Mosfellingar fædd-
ir 1965, ásamt kennurum
sínum. Þann 21. maí nk.
mun þessi hópur hittast
og minnast þess meðal
annars að 35 ár eru síðan
þau luku námi við
„Gaggó Mos“.
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
HéðAN oG þAðAN
Við Myllubakkaskóla 10. apríl 1978. Fremst: Sverrir, Erlendur Örn, Sæmundur, Þorleifur, Þórir, Gunnar, Bjarki, Guðlaug, Karl Helgi, Erna, Ólöf, Guðrún. 2. röð(krjúpa): Kristján, Sveinn, Hafþór.
3. röð: Sigurjón, Tómas, Kristín, Hjördís, Sigrún, Svava, Arna Björk, Sigurður D, Georg, Ragnar, Guðmundur, Andrés, Guðleif, Gróa, Linda Rán, Alfa, Þóra Erlings. 4. röð: Reynir, Auður, Þyri Huld, Ingibjörg,
Kári, Arna Sigríður, Sigríður, Skarphéðinn, Sverrir, Sigrún, Sigurbjörg, Ingibjörg Hólm, Líney, Þorbjörg, Bjarki, Birgir, Þóra Einars. Með dyggri aðstoð var gerð tilraun til að nafnsetja myndina, kærar þakkir!