Mosfellingur - 30.01.2014, Síða 8
Eva gefur kost á sér
í 4. sæti í prófkjöri
Eva Magnúsdóttir gefur kost á sér í
4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins í Mosfellsbæ 8. febrúar. Eva er
formaður fræðslunefndar Mosfells-
bæjar og hefur
setið í nefndinni
undanfarin 5 ár.
Hún er jafnframt
varabæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks-
ins í bæjarstjórn.
Eva sat í stjórn
Fimleikadeildar
Aftureldingar í 9 ár, þar af í 8 ár sem
formaður, og leiddi þar uppbygg-
ingu og stækkun deildarinnar.
Eva er forstöðumaður hjá Mílu ehf.
þar sem hún hefur starfað og setið
í framkvæmdastjórn sl. 7 ár. Áður
gegndi hún stöðu forstöðumanns
almannatengsla Símans og var
upplýsingafulltrúi fyrirtækisins.
Eva er með MBA í viðskiptafræði
og stjórnun auk BS gráðu í þjóð-
háttafræði og háskólapróf í hagnýtri
fjölmiðlun. Hún er gift Finni
Sigurðssyni og eiga þau tvær dætur,
16 og 19 ára gamlar.
Karen Anna sækist
eftir 7. sæti
Karen Anna Sævarsdóttir gefur kost
á sér í 7. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Mosfellsbæ 8. febrúar.
Karen Anna er nemi á þriðja ári
við Menntaskólann við Sund.
Hún er einnig
fimleikaþjálfari
hjá Fimleikadeild
Aftureldingar.
Karen Anna hefur
verið í fimleika-
deild Aftureld-
ingar frá árinu
2006 sem iðkandi
og þjálfari. Hún hefur einnig unnið
hjá Mosfellsbæ á hverju sumri frá
árinu 2009. „Ég óska eftir stuðningi
Mosfellinga í 7. sætið til þess að taka
þátt í uppbyggingu og vera rödd
unga fólksins í bænum okkar. Ég
hef mikinn áhuga á að leggja mitt
af mörkum til uppbyggingar öflugs
íþrótta- og félagsstarfs í bæjarfélag-
inu sem er nauðsynlegt fyrir börn
og unglinga sem eru framtíð okkar
Mosfellsbæjar.“
- Vígsla Framhaldsskólans í Mosfellsbæ8
Dóra Lind stefnir á
4. sæti í prófkjöri
Dóra Lind Pálmarsdóttir hefur
ákveðið að gefa kost á sér í 4. sæti
í prófkjöri sjálfstæðismanna í
Mosfellsbæ. Dóra
Lind er 29 ára
gömul og hefur
búið í Mosfellsbæ
frá 16 ára aldri.
„Mér líkar mjög
vel að búa í
Mosfellsbæ og
ég ætla mér að
stofna fjölskyldu hér með mínum
sambýlismanni, honum Maríusi Þór
Haraldssyni.“
Dóra Lind starfar hjá Eflu verkfræði-
stofu á byggingarsviði.
„Ástæður þess að ég valdi Mosfells-
bæ sem mína framtíðarbúsetu eru
þær að hér er vingjarnlegt umhverfi,
stutt í alla þjónustu, stutt í fallegu
náttúruna sem umlykur Mosfellsbæ
og síðast en ekki síst þá býr hér
vingjarnlegt og skemmtilegt fólk.
Ég trúi því að það sé hægt að nýta
mína krafta í að gera Mosfellsbæ að
enn öflugra samfélagi en það er nú
þegar og þess vegna óska ég eftir
stuðningi Mosfellinga í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins.“
Nýtt húsnæði Framhaldsskólans í Mos-
fellsbæ var vígt föstudaginn 24. janúar að
viðstöddu fjölmenni. Með því lýkur tæplega
sex ára vegferð frá því að samkomulag um
stofnun skólans var undirritað þann 19.
febrúar árið 2008 af menntamálaráðherra
og bæjarstjóra Mosfellsbæjar. Skólinn hóf
starfsemi haustið 2009, framkvæmdir við
húsið hófust í júní 2012 og hófst kennsla í
húsinu nú í janúar.
Skólinn tekur um 400-500 nemendur
Vígsluathöfnin var einstaklega glæsileg
og þar var boðið upp á tónlistaratriði að
hætti Mosfellinga. Skólahljómsveit Mos-
fellsbæjar tók á móti gestum, nemendur í
tónlistardeild Listaskólans léku og hljóm-
sveitin Kaleo spilaði nokkur lög.
Guðbjörg Aðalbergsdóttir skólameistari
bauð gesti velkomna, Illugi Gunnarsson,
mennta- og menningarmálaráðherra, hélt
ávarp ásamt Ragnheiði Ríkharðsdóttur
þingmanni og Haraldi Sverrissyni bæjar-
stjóra. Pétur Guðmundsson forstjóri Eykt-
ar afhenti að lokum Guðbjörgu formlega
lyklavöld að húsinu.
Stærð byggingarinnar er um 4100 m2 og
tekur hún um 400-500 nemendur. Húsinu er
skipt í sex kennsluklasa eftir námsgreinum
eða námsgreinaflokkum og í hverjum klasa
eru stór rými, lítil, opin og lokuð. Stundum
er allur hópurinn saman í kennslustofunni
en skiptist líka niður í minni hópa sem
dreifast um klasann. Húsið er einstaklega
glæsilegt og samræmist vel umhverfinu og
áherslum skólans sem eru á umhverfi og
auðlindir.
Mun hafa mikil áhrif á samfélagið
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri, sagði
við þetta tilefni að það hafi verið heillaskref
að stofna skólann og að staða hans ætti eftir
að styrkjast verulega um ókomin ár. „Skól-
inn mun styðja vel við skólasamfélagið sem
fyrir er og efla unga fólkið okkar til góðra
verka. Tilkoma bæði svona glæsilegs húss
og ennfremur þess stóra hóps af fólki sem
kemur til með að starfa hér við kennslu og
nám, í hjarta bæjarins, mun hafa mikil áhrif
á það samfélag sem við búum“.
Mosfellsbær stendur að byggingu skólans
ásamt ríkinu og leggur til 40% stofnkostn-
aðar. Framkvæmdasýsla ríkisins sá um
eftirlit með framkvæmdunum fyrir hönd
mennta– og menningarmálaráðuneytisins
og Mosfellsbæjar. Aðalverktaki hússins er
Eykt ehf.
a2f arkitektar – arkitekta– og
samræmingarhönnun, Birkir
Einarsson – landslagshönnun, Bryndís
Bolladóttir – listskreyting, Drekafluga
– lýsingarhönnun, Efla – hljóðhönnun,
Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar
– rafmagnshönnun, Verkís – burðarþols-
og lagnahönnun, umhverfisvottun, VSI
öryggishönnun og ráðgjöf - brunahönnun.
Hönnun
Fimmtudaginn 6. febrúar verður
opið hús í skólanum kl. 16-19.
Opið Hús 6. febrúar
Skólinn hóf starfsemi í Brúarlandi 2009 • Lyklar að nýja húsnæðinu afhentir við athöfn
Framhaldsskólinn flytur í
nýtt og glæsilegt húsnæði
skólameistarinn tekur
við lyklunum úr höndum
forstjóra eyktar
M
yn
di
r/
H
ilm
ar
ánægð með ný húsakynni
M
yn
di
r/
a2
f a
rk
ite
kt
ar