Mosfellingur - 30.01.2014, Side 10
Theódór sækist eftir
5. sæti á lista
Theódór Kristjánsson sækist eftir 5.
sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Mosfellsbæ sem fram fer laugar-
daginn 8. febrúar
næstkomandi.
Hann hefur tekið
virkan þátt í sveit-
arstjórnarmálum
í bænum frá árinu
2006, er formaður
íþrótta- og
tómstundanefnd-
ar, varabæjarfulltrúi og í stjórn
skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Theódór er kvæntur Maríu Páls-
dóttur og eiga þau þrjú börn.
- Til hamingju með afmælið Skálatún10
Tryggðu þér áskrift og fylgstu með Mosfellingnum
Jóhönnu Engelhartsdóttur breyta lífi sínu til frambúðar!
SKJARINN.IS | 595 6000
TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT!
FIMMTUDAGA
KL. 20.40
#AframJohanna
Óbreytt gjaldskrá
í leikskólunum
ASÍ birti á dögunum verðkönnun
á leikskólagjöldum 15 stærstu
sveitarfélaganna. Fyrstu niður-
stöður innihéldu villu í gjöldum
Mosfellsbæjar en tölurnar hafa nú
verið lagfærðar og kemur í ljós að
gjaldskrá Mosfellsbæjar er langt í frá
hæst, líkt og haldið var fram, fyrir 8
tíma vistun með fæði. Sveitarfélagið
raðast talsvert aftar í samanburðin-
um og er með óbreytta gjaldskrá frá
fyrra ári. Í þessu samhengi er vert
að taka fram að fyrir 9 tíma vistun
eru gjöldin enn hagstæðari í Mos-
fellsbæ en í öðrum sveitarfélögum.
Þess má einnig geta að í saman-
burðartölum SSH á skólamáltíðum
er Mosfellsbær með lægsta verðið
á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er
verðskrá fyrir frístundasel þannig að
grunngjald er næst lægt í Mosfells-
bæ ásamt því að boðið er upp á
klukkustundargjald eftir fyrstu 20
klukkustundirnar en það er ekki
gert annarsstaðar. Bæjarstjórn
samþykkti nú í desember að hækka
frístundaávísanir úr 18 þúsund
krónum upp í 25 þúsund krónur
og tekur hækkunin gildi frá og með
næsta hausti og verða slíkir styrkir
þá svipaðir og í öðrum sveitarfélög-
um á höfuðborgarsvæðinu.
Bætist í hópinn í
Handverkshúsinu
Breytingar verða í Handverkshúsinu
í Þverholti í febrúar. Nýjar konur
bætast í hópinn með nýjar vörur t.d
fatnað og myndlist. Einnig er áætlað
að hafa ýmiskonar námskeið í boði
t.d. myndlist (olía og akríl) post-
ulínsmálun, trétálgun, tréútskurð,
beinútskurð, bútasaum og margt fl.
Fyrirhuguð eru ýmiskonar konu-
kvöld í léttum dúr, föndur eða mæta
saman og taka lagið (söngur bætir
og kætir). Pláss er fyrir tvær konur í
föstu plássi til viðbótar á vinnustofu
í myndlist eða öðru. Upplýsingar
veita: Ásdís í síma 864-1202 og
Sigrún í síma 894-0536
Í dag eru 60 ár liðin frá stofnun Skálatúns.
Stórstúka Íslands keypti jörðina Skálatún
í Mosfellssveit árið 1953. Það var svo 30.
janúar árið 1954 sem sjálfseignarstofnunin
Skálatúnsheimilið var stofnuð. Þann dag
fluttu fyrstu þrjú börnin á Barnaheimili
Templara við Skálatún eins og það hét þá
og ætlunin var að þar myndu búa 17 börn
og unglingar.
Í upphaflegri skipulagsskrá segir að
tilgangur Skálatúnsheimilisins væri að
reka barnaheimili, sérstaklega fyrir börn
með þroskahömlun, fyrir alla aldurshópa.
Fyrstu sex ár Skálatúns var aðeins eitt
íbúðarhús þar sem bjuggu saman 23 íbúar
ásamt flestum starfsmönnum heimilisins.
Styrktarfélag vangefinna, nú Ás styrktarfé-
lag, var stofnað árið 1958 og tveimur árum
síðar gerðist það eignar- og rekstraraðili
að starfseminni en Skálatún var þó áfram
sjálfseignarstofnun.
Miklar breytingar hafa átt sér stað
Fram til ársins 1982 var stundaður bú-
rekstur á Skálatúni en þá var hann lagð-
ur af og húsakostur nýttur til annarrar
starfsemi Skálatúns. Á þessum árum fékk
Skálatúnsheimilið styrk frá ríkinu auk þess
sem einstaklingar og fyrirtæki hlúðu að
heimilinu.
Frá þessum tíma og til dagsins í dag hafa
átt sér stað miklar breytingar á húsnæði og
starfsemi Skálatúns, starfsemin hefur fylgt
þeirri þróun sem á sér stað í málefnum
fatlaðra. Í dag eru fimm herbergja sambýli
og tvö hús með samtals tíu íbúðum en það
eru 37 íbúar búsettir í Skálatúni.
Þá er einnig á staðnum dagþjónusta,
sundlaug, vinnustofur og skrifstofur. Margs
konar búsetuform eru í boði í Skáltúni er
það gert til þess að koma til móts við þarfir
hvers og eins og þá þróun sem hefur verið
í búsetumálum fólks með þroskahömlun.
Vaxandi hluti starfseminnar er dagþjónusta
og vinna.
Markmiðið að tryggja jafnrétti
Í stefnu og hugmyndafræði Skálatúns er
lögð áhersla á einstaklinginn og að veita
einstaklingsmiðaða þjónustu, tryggja
jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra
þjóðfélagsþegna og skapa skilyrði til að lifa
eðlilegu lífi með vísan til laga um málefni
fatlaðra og þeim alþjóðlegu skuldbinding-
um íslenskra stjórnvalda við samning SÞ
um réttindi fatlaðs fólks. Skálatún mætir
þessu ákvæði með rekstri sjálfstæðrar bú-
setu og sambýla.
Sjálfsákvörðunarréttur er lykill að lífs-
gæðum því hverjum manni er nauðsynlegt
að fá að velja og hafa áhrif á eigið líf. Það er
á ábyrgð starfsfólks að örva og þjálfa sjálfs-
ákvörðunarrétt einstaklingsins og stuðla
að því að fólk þekki valmöguleika sína og
afleiðingar þeirra.
Fjölbreytt starfsemi
Dagþjónusta er samþætt í Skálatúni og
skiptast í vinnustofur og Skjól. Dagþjón-
ustu/vinnu sækja 43 einstaklingar sem
ýmist eru búsettir í Skálatúni eða annars
staðar á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Þá
sækir hluti fólks sem búsett er í Skálatúni
dagþjónustu eða vinnu annars staðar.
Á vinnustofunum er fjölbreytt starfsemi
þar sem meðal annars er unnið að pökkun
í neytendaumbúðir fyrir ýmis fyrirtæki. Eitt
af verkefnum Vinnustofanna er skönnun á
ljósmyndum eða slides-myndum.
List og handverk skipa stóran sess í starf-
semi vinnustofanna og í handavinnustofu
er unnið við vefnað, kortagerð og hönnun
ýmissa textílmuna. Afraksturinn er til sölu í
galleríinu á staðnum sem er opið alla virka
daga. Fyrir jólin er svo haldinn veglegur
jólamarkaður .
Skjólið hefur það að markmiði að veita
fjölbreytta einstaklingsmiðaða þjónustu
og veita tilboð sem byggja á löngunum og
vali hvers og eins. Lagt er upp úr að mæta
félagsþörf og að fólk upplifi vellíðan og
slökun.
Nýlega voru tekin í notkun skynörvun-
arherbergi sem byggja á hugmyndafræði
„Snoezelen“. Styrkur úr Líknarsjóði Ögnu
og Halldórs Jónssonar gerði uppbyggingu
þeirrar aðstöðu mögulega. Megináherslan
er á skynjun og samveru og að einstakling-
urinn njóti sín á eigin forsendum og nái
slökun og örvun á skilningarvitum.
Fyrstu börnin fluttu á Skálatún 30. janúar 1954 • Margs konar búsetuform í boði í dag
Skálatún 60 ára í dag
hressir íbúar á skálatúni
ætla að fagna afmæli í kvöld
myndir úr starfinu
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la