Mosfellingur - 30.01.2014, Side 14

Mosfellingur - 30.01.2014, Side 14
 - Fréttir úr Mosfellsbæ14 Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um fjárframlög til lista- og menningarstarfsemi 2014 VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja Umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu bæjarins auk reglna um úthlutunina. Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða stofnanir, innan sem utan Mosfellsbæjar. Fjárframlög til lista og menningarmála eru af tvennum toga: • Fjárframlög til almennrar listastarfsemi • Fjárframlög vegna viðburða eða verkefna Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 1. mars 2014 á bæjar- skrifstofu Mosfellsbæjar í samræmi við reglur og leiðbeiningar sem fylgja umsóknareyðublöðum, sem hægt er að nálgast á heimasíðu Mosfellsbæjar. Umsóknum ber að skila rafrænt á net- fangið: mos@mos.is eða beint í gegnum heimasíðu Mosfellsbæjar. Nefndin áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna umsókn umsækjanda að hluta eða alfarið, ef ekki er færi á öðru að mati nefndar. Afgreiðsla nefndarinnar er trúnaðarmál. Niðurstöður menningarmálanefndar Mosfells- bæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 10. apríl 2014 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar. Menningarmálanefnd auglýsir eftir aðilum sem óska eftir fjárframlögum frá nefndinni vegna listviðburða og menningarmála árið 2014. Hér undir falla áður árviss fjárfram- lög til margvíslegrar menningarstarfsemi í bænum, auk nýrra. Í kvöld, fimmtudagskvöldið 30. janúar, verður Laxnesskvöld Kirkjukórs Lágafells- sóknar í Lágafellskirkju kl. 20:00. Jón Magnús Jónsson frá Reykjum, Arn- þrúður Ösp Karlsdóttir og Særún Harðar- dóttir syngja mörg af ástsælustu ljóðum skáldsins við lög ýmissa tónskálda ásamt Kirkjukór Lágafellssóknar undir stjórn Arn- hildar Valgarðsdóttur organista. Brynhildur Ásgeirsdóttir leikur á þverflautu. Félagar úr kirkjukórnum lesa valda kafla úr Heims- ljósi. Óvæntur gjörningur í lok kvöldsins. Aðgangur ókeypis. Kjölur og Bakkakot verði Golfklúbbur Mosfellsbæjar Stefnt að sameiningu golfklúbbanna tveggja Á dögunum var skrifað undir viljayfirlýs- ingu um sameiningu golfklúbbanna í Mos- fellsbæ, Kjalar og Bakkakots, í nýjan klúbb undir nafninu Golfklúbbur Mosfellsbæjar. Formenn klúbbanna, fyrir hönd stjórna þeirra, ásamt Haraldi Sverrissyni bæjar- stjóra, undirrituðu viljayfirlýsinguna þar sem stefnt er að sameiningarviðræðum á árinu 2014. Nýr klúbbur mun halda úti tveimur vallarsvæðum og halda þeim við með sambærilegum hætti og verið hefur. Bæjarfélagið mun gera samning við Golf- klúbb Mosfellsbæjar um uppbyggingu á golfvallarsvæðum klúbbsins í bæði Mos- fellsdal og Mosfellsbæ og mun sú uppbygg- ing hefjast á árinu 2014. Verði sameining golfklúbbanna samþykkt á aðalfundum félaganna munu stjórnir þeirra ásamt Mosfellsbæ ganga frá form- legu þríhliða samkomulagi um sameiningu klúbbanna og stuðningi bæjarfélagsins við hinn sameinaða klúbb. Á myndinni eru Guðjón Karl Þórisson, formaður Kjalar, Harald- ur Sverrisson, bæjar- stjóri og Gunnar Ingi Björnsson, formaður Golf- klúbbs Bakka- kots. Laxnesskvöld Kirkjukórs Lágafellssóknar í Lágafellskirkju Saungskemmtun í kvöld Þórgunnur Guðgeirsdóttir (Hogga) hefur opnað yogastúdíó í Kjarnanum (við hliðina á dýralækninum). „Ég er búin að iðka yoga síðan 1996. Fór á námskeið hjá Yogi Shanti Desai sem er indverskur gúrú, segir Hogga sem er útkrifuð jógakennari frá Jógastúdíó og Guðjóni Bergmann. „Ég býð upp á námskeið, opna tíma, einka- kennslu o.fl. í power-, hatha- og core vinyasa yoga. Verð svo með meira skemmtilegt eftir því sem fram líða stundir. Allir fá að sjálfsögðu ókeypis prufutíma,“ segir Hogga. Nánari upplýsingar á Facebook „Yoga hjá Hoggu“ og í síma 845-9280. Opnar yogastúdíó í Kjarnanum

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.