Mosfellingur - 30.01.2014, Blaðsíða 22

Mosfellingur - 30.01.2014, Blaðsíða 22
Varmá Fréttarit sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ Heimili: Súluhöfði 9. Starf: Aðstoðaryfirlögregluþjónn. Fæðingardagur: 10. apríl 1968. Maki: María Pálsdóttir. Börn og aldur þeirra: Páll 21 árs, Róbert 18 ára og Sesselja 15 ára. Menntun: Lögregluskóli ríkisins 1990-1992, Iðnskólinn í Reykjavík 1987 til 1990, Menntaskólinn að Laugarvatni 1984 til 1986. Félagsstörf: Ég sat í stjórn Golfklúbbsins Kjalar 2004 til 2008. Frá 2006 hef ég setið í íþrótta- og tómstundanefnd og verið formaður hennar frá 2009. Varabæjarfulltrúi frá 2010 og fulltrúi Mosfellsbæjar í stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Ég hef setið í stjórn Golfsambands Íslands frá 2007 og er formaður afreksnefndar. Áhugamál: Helstu áhugamálin eru líkamsrækt og golf og þá eru félagsstörf einnig afar skemmtileg og ég verð að telja með sem áhugamál. Tölvupóstur: theodor.kristjansson@lrh.is Heimasíða: www.facebook.com/theodor.kristjansson.3 Helstu áherslur: Áherslur mínar snúa að því að kjörnir fulltrúar, starfsmenn og stjórendur bæjarins, fylgi skýrri stefnu og mark- miðum Mosfellsbæjar. Þannig tel ég best tryggt að sameiginleg gildi okkar um gott, réttlátt og heilbrigt samfélag ráði för, hvort sem fjallað er um þjónustu, uppbyggingu skóla, leikskóla, aðstöðu til íþrótta- eða æskulýðsstarfs, menningar eða lista. Theódór Kristjánsson gefur kost á sér í 5. sæti Sturla Sær Erlendsson gefur kost á sér í 6. sæti Heimili: Rituhöfði 4. Starf: Starfsmaður í Fiskbúðinni Mos og nemi. Fæðingardagur: 12. mars 1995. Maki: Á kærustu. Börn og aldur þeirra: Engin. Menntun: Er þriðja árs nemi á félagsfræðibraut á hagfræðikjör- sviði í Menntaskólanum við Sund. Félagsstörf: Hef alla tíð verið virkur í félagsstörfum. Ég var fulltrúi Lágafellsskóla í fyrsta ungmennaráði Mosfellsbæjar. Áhugamál: Ég hef mikinn áhuga á íþróttum og æfði bæði handbolta og fótbolta með Aftureldingu. Ég stunda snjóbretti og hanna og sauma fatnað, auk þess nýt ég þess að bæði teikna og mála. Tölvupóstur: stulli95@hotmail.com Helstu áherslur: Mosfellsbær hefur stækkað hratt á liðnum árum og tel ég mikilvægt að unga fólkið gleymist ekki í öllum breytingunum. Ég vil virkja ungmennaráð Mosfellsbæjar meira og bæta aðstöðu fyrir ungt fólk sem vantar alveg og þurfa ungir Mosfellingar að leita til annarra bæjarfélaga fyrir afþreyingu. Til að halda unga fólkinu í bænum þarf að fjölga leiguíbúðum. Ég ætla að leggja mig fram í störfum mínum við að láta rödd unga fólksins í Mosfellsbæ hljóma. Ég tel einnig mikilvægt að styðja vel við íþrótta- og tómstunda- mál. Það þarf líka að kynna gönguleiðir bæði fyrir bæjarbúum og ferðamönnum, laga hjólabrettagarðinn og skoða aðstöðu fyrir jaðaríþróttir, enda Mosfellsbær mikill heilsubær þar sem mikið framboð er af útivist og hreyfingu. Örn Jónasson gefur kost á sér í 6. - 8. sæti Heimili: Hjarðarland 4-a. Starf: Verkefnastjóri á upplýsingasviði Seðlabanka Íslands. Fæðingardagur: 16. febrúar 1962. Maki: Helga Jóhannesdóttir, rekstrar- og fjármálastjóri Þjóðskjalasafns Íslands. Börn og aldur þeirra: Franz Jónas Arnar, 20 ára og María Ísabella 17 ára. Menntun: M.Sc i viðskiptafræði í alþjóðaviðskiptum og stjórnun, rekstrarhagfræðingur, kerfisfræðingur. Hef tekið viðbótarnám- skeið í fjármálum og verkefnastjórnun. Félagsstörf: Sat í stjórn Sjáflstæðisfélags Mosfellinga frá 2004- 2006. Sit í stjórn stjórn Starfsmannafélags Seðlabanka Íslands. Hef setið í kjörnefnd Eskifjarðar, setið í stjórn UMF Austra á Eskifirði, auk þess setið í Sjómanndagsráði Eskifjarðar. Hef auk þess komið að foreldafélögum hjá Frjálsíþróttadeild UMFA og unnið að mótshöldum á þeirra vegum. Áhugamál: Að eiga góðar samverustundir með ættingjum og vinum, ferðalög, lestur góðra fræðandi bóka og blaða, samfélags- mál, gönguferðir og hljólreiðatúrar í fallegu umhverfi. Tölvupóstur: ornjo@simnet.is Helstu áherslur: Atvinnumál, umhverfismál, og vil stuðla að því að Mosfellsbær verði enn betra bæjarfélag að búa í, jafnt fyrir unga sem aldna. Vil laða að öflug fyrirtæki til bæjarins sem verði undirstöður blómlegrar byggðar og mannlífs í öflugum Mosfellsbæ framtíðarinnar. Vil stuðla að því Mosfellsbær verði það bæjarfélag á landinu, þar sem eftirsóknarverðast verði að búa í fyrir fólk á öllum aldri, fjölskyldur og fyrirtæki með öflugri grunnþjónustu. Dóra Lind Pálmarsdóttir gefur kost á sér í 4. sæti Heimili: Litlikriki 2. Starf: Byggingatæknifræðingur hjá EFLU verkfræðistofu. Fæðingardagur: 1. apríl 1985. Maki: Maríus Þór Haraldsson. Börn og aldur þeirra: Engin börn. Menntun: Útskrifaðist frá Menntaskólanum við Sund vorið 2005. Haustið 2006 kláraði nám í íþróttum við Íþróttalýðháskólann í Árósum, Danmörku. Útskrifaðist sem byggingatæknifræðingur frá Háskólanum í Reykjavík í lok árs 2010. Félagsstörf: Sat í stjórn nemendafélags Menntaskólans við Sund í skemmtinefnd. Sat í stjórn nemendafélags bygginga- tæknifræðinga í Háskólanum í Reykjavík sem skemmtanastjóri og formaður ásamt því að ritstýra riti byggingatæknifræðinema. Sat í stjórn starfsmannafélags Ístaks sem ritari. Sit í stjórn starfsmannafélags EFLU sem gjaldkeri. Áhugamál: Útivist, íþróttir, eldamennska, hönnun, umhverfis- og skipulagsmál. Tölvupóstur: dlp@efla.is Heimasíða: www.facebook.com/doralindpalmarsdottir4saeti Helstu áherslur: Mosfellsbær er fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem stutt er í fallegu náttúruna sem umlykur bæjarfélagið. Ég vil nýta mína krafta í að halda samfélagi okkar fjölskyldu- og umhverfisvænu. Einnig finnst mér mikilvægt að styðja við ungt fólk sem er að stofna fjölskyldu og þar þarf samstarf á milli skóla, heimilis og þeirra sem sinna tómstundastarfi barna að vera gott. Skipulagsmál eru mér einnig hugleikin þar sem ég tel að uppbygging miðbæjar, nýrra hverfa og atvinnulífs sé mikilvægur liður í því að skapa fjölskyldu- og umhverfisvænt samfélag. Heimili: Skeljatangi 12. Starf: Bæjarfulltrúi. Fæðingardagur: 29. desember 1976. Maki: Örnólfur Örnólfsson. Börn og aldur þeirra: Eydís Elfa 13 ára, Fannar Freyr 9 ára og Guðni Geir 7 ára. Menntun: Viðskiptafræðingur og stunda nú meistaranám í opinberri stjórnsýslu. Félagsstörf: Bæjarfulltrúi frá 2010. Er formaður bæjarráðs og formaður skipulagsnefndar. Sit í stjórn Strætó, skólanefnd Fram- haldsskólans í Mosfellsbæ og svæðisskipulagsnefnd höfuðborgar- svæðisins. Hef tekið virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins og ég sit nú í stjórn flokksráðs sem formaður atvinnuveganefndar. Áhugamál: Áhugamál mín snúa mikið að útivist og hreyfingu og þá helst hlutum sem fjölskyldan getur gert saman. Þess fyrir utan heilla samfélagsmál af ýmsum toga. Tölvupóstur: bryndis@mos.is Helstu áherslur: Ég hef haft mikla ánægju af því að vinna fyrir íbúa Mosfellsbæjar að því að gera góðan bæ enn betri. Ég legg áherslu á að við frekari uppbyggingu bæjarins sé hugað sérstaklega að sérkennum Mosfellsbæjar og tengslum hans við náttúruna. Mosfellsbær er og á að vera grænn og fjölskylduvænn bær, bær þar sem vel er hugað að þörfum ungra sem aldinna. Ég legg áherslu á ráðdeild og skynsemi í rekstri bæjarins, samtal og samvinnu allra kjörina fulltrúa, starfsmanna og íbúa. Ennfremur legg ég áherslu á fjölbreytileika og valfrelsi í skólamálum og einstaklingsmiðaða velferðarþjónustu. Bryndís Haraldsdóttir gefur kost á sér í 2. sæti Au gl ýs in g sjá lfs tæ ðis fél ag M os fel lin ga

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.