Mosfellingur - 30.01.2014, Qupperneq 27
Söngkeppni Bólsins var haldin föstudag-
inn 17. janúar en það var hún Emma Kam-
illa Finnbogadóttir sem vann með laginu
Grenade. Í öðru sæti var Aníta Rut Ólafs-
dóttir með lagið Your song og í þriðja sæti
var Hilmar Þór Björnsson með lagið Svartur
Afgan.
Krakkarnir fengu frábæra dómara til þess
að dæma keppnina, þær Gretu Salóme,
Maríu Ólafsdóttur og Sigríði Maríu. Emma
Kamilla fer fyrir hönd Bólsins í undan-
keppni Samfés sem haldin verður í Garða-
bæ. Þar keppir hún við fulltrúa annarra fé-
lagsmiðstöðva úr landshlutanum. Sá sem
sigrar í þeirri keppni fer svo í aðalkeppni
Samfés sem haldin verður 8. mars.
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la
Fer fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar í undankeppni Samfés
Emma Kamilla sigraði
söngkepnni Bólsins
Emma, aníta og hilmar lEntu
í þrEmur Efstu sætunum
www.mosfellingur.is - 27
Prófkjör SjálfStæðiSflokkSinS 8. febrúar
Kæru Mosfellingar
Um leið og ég þakka
ómetanlegan stuðning
í störfum mínum sem
bæjarstjóri, óska ég eftir
áframhaldandi umboði
til að leiða framboðslista
sjálfstæðismanna
í Mosfellsbæ.
Með góðri kveðju
Haraldur Sverrisson
Sigrún Harðardóttir er að ljúka masters-
námi í fiðluleik frá Lamont School of Music,
University of Denver núna í vor.
Sigrún fékk styrk frá nýsköpunarsjóði
námsmanna sumarið 2013 til að útsetja
íslensk þjóðlög fyrir einleiksfiðlu og fiðl-
udúó. Árleg velur stjórn nýsköpunarsjóðs
námsmanna 5-6 verkefni sem öndvegis-
verkefni sjóðsins og hljóta þau tilnefningu
til nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.
Verðlaunin verða afhent í febrúar á Bessa-
stöðum af herra Ólafi Ragnari Grímssyni.
Útsetningar á íslenskum þjóðlögum
Um verkefni sitt segir Sigrún: „Með út-
setningum á íslenskum þjóðlögum fyrir
einleiksfiðlu og fiðludúó er leitast við að
vekja áhuga á íslenskri þjóðlagahefð og
glæða hana nýju lífi. Lítið hefur verið út-
sett af íslenskum þjóðlögum fyrir þessa
hljóðfærasamsetningu og er því hér ver-
ið að auka fjölbreytni og gefa fiðluleikur-
um tækifæri til að leika fjölbreytta tónlist
byggða á íslenskum menningararfi.
Með þessum nýju útsetningum er gamla
íslenska menningararfinum blandað saman
við nútíma tónsmíðar og fiðlutækni. Hald-
ið er í hefðina, en þjóðlögin útsett á nýjan,
spennandi, fjölbreyttan og heillandi hátt.
Útsetningarnar voru kynntar og leiknar í
Þjóðmenningarhúsinu þann 13. septem-
ber 2013 af Sigrúnu Harðardóttur, höfundi
útsetninganna og Sigrúnu Eðvaldsdóttur,
leiðbeinanda verkefnisins“.
Sigrún er fædd og uppalin í Mosfellsbæ
og hefur stundað fiðlunám frá þriggja ára
aldri. Hún hefur margsinnis komið fram
í bænum, meðal annars haldið tónleika á
Gljúfrasteini.
Verkefni Sigrúnar eitt af fimm öndvegisverkefnum þessa árs
Tilnefnd til Nýsköpunar
verðlauna forseta Íslands