Mosfellingur - 07.04.2006, Blaðsíða 6

Mosfellingur - 07.04.2006, Blaðsíða 6
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar6 Yfir 1000 börn og ungmenni æfa samtals níu íþróttagreinar hjá Aftureldingu. Núverandi æfinga- aðstaða samanstendur af þremur íþróttasölum, karatesal, sundlaug, Varmárvelli og litlum gervigrasvelli á veturna og auk knattspyrnuvalla á Tungubökkum á sumrin. Á aðalfundi Aftureldingar var samþykkt ályktun um skort á aðstöðu og nauðsyn stefnu- mótunar, þarfagreiningar og úrbóta í aðstöðumálum félagsins. Formaður ræddi á þeim tíma málið við bæj- arstjóra og kynnti helstu áhersluatr- iði. Í lok september 2005 fékk aðal- stjórn Aftureldingar ráðgjafa til liðs við sig við greiningu á núverandi aðstöðu félagsins og fyrirsjáanlega þörf á næstu árum. Unnið var að stefnumótun í mannvirkjamálum Aftureldingar í vinnuhóp sem saman- stóð af aðalstjórn og öllum formönn- um og framkvæmdastjórum deilda félagsins. Tekið var mið af þeim fjölda sem nú stundar íþróttir hjá félaginu og þeirri aukningu sem búast má við á næstu árum. Í greiningarvinnunni kom berlega í ljós að flestar deildir félagsins eru nú þegar að sprengja utan af sér þá aðstöðu sem í boði er í dag. Hafa sumar deildir jafnvel þurft að leita út fyrir bæjarfélagið eftir full- nægjandi æfingaastöðu svo ekki sé minnst á að heimaleikir í knattspyrnu hafa ekki verið haldnir í Mosfellsbæ á vorin heldur hefur þurft að kaupa aðstöðu utanbæjar. Einróma niðurstaða greiningar- hópsins var að yfirbyggður gervigras- völlur í fullri stærð með aðstöðu til frjálsíþróttaæfinga myndi stórbæta aðstöðu allra deilda félagsins. Með því myndi losna um þá tíma sem í dag eru til æfinga knattspyrnu- og frjálsíþróttadeilda í íþróttahúsinu og þannig gætu aðrar deildir tekið við fyrirsjáanlegri aukningu iðkenda. Einnig var lögð áhersla á að Varmár- svæði tengt Tungubökkum yrði skil- greint sem íþróttasvæði og þar með félags- og æfingasvæði Aftureldingar. Einnig að félags- og fundaaðstaða yrði bætt, en hún er mjög lítil í dag. Mörg önnur brýn mál koma fram í greiningarskýrslunni sem var í október afhent bæjaryfirvöldum. Bæjaryfirvöld tóku málinu vel og í nóvember boðaði bæjarstjóri aðal- stjórn Aftureldingar og formenn deilda til samráðsfundar þar sem tillögur félagsins voru ræddar og bæjarstjóri gerði grein fyrir hvaða framkvæmd- ir stæðu til á vegum bæjaryfirvalda í íþróttamannvirkjamálum. Þar komu fram hugmyndir um gervigrasvöll og viðbyggingu við íþróttahús og var lögð áhersla á að mæta þörfum félagsins. Í framhaldi af þessum fundi hafa full- trúar Aftureldingar og bæjaryfirvöld unnið sameiginlega að undirbúningi málsins og möguleikar á staðsetningu gervigrasvallar skoðaðir. Var tekið vel í þá hugmynd frá Aftureldingu að stefna að því að byggja yfir gervigrasvöllinn og ákveðið að ganga út frá því við staðarval, hönnun og gerð vallarins. Í febrúar 2006 voru fulltrúar aðal- stjórnar og knattspyrnudeildar Af- tureldingar boðaðir á kynningarfund hjá bæjaryfirvöldum þar sem verk- fræðileg úttekt á stærð og staðsetn- ingu vallarins var kynnt. Á þeim fundi kom fram almenn ánægja með bygg- ingu vallarins og staðsetningu hans á á Varmársvæðinu. Samhliða var sett af stað annað samvinnuverkefni Aftureldingar og bæjaryfirvalda sem er þarfagreining og hönnun á tengibyggingu framan við íþróttahúsið við Varmá sem mun hýsa skrifstofur og félagsaðstöðu Aft- ureldingar auk búningsaðstöðu fyrir íþróttavelli á Varmársvæði. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við hana hefjist á árinu 2007 og verði lokið á árinu 2008. Sú vinna er komin vel á veg. Gervigrasvöllur í fullri stærð mun stórbæta keppnisaðstöðu knattspyrnu- deildar sem er að sjálfsögðu hið besta mál. En meginmálið er að slíkur völlur mun fyrst og fremst gegna hlutverki bættrar æfingaaðstöðu barna og unglinga í Mosfellsbæ. Þá staðreynd þarf að hafa í huga þegar rætt er um staðsetningu vallarins. Staðsetning gervigrasvallar tekur mið af því að hægt sé að nýta nýja búningsaðstöðu íþróttahússins og samræmist ályktun aðalfundar um að Varmársvæðið verði áfram þungamiðja íþrótta í Mosfellsbæ. Við í Aftureldingu mælumst til þess að bæjaryfirvöld hefjist handa án tafar við byggingu gervigrasvallar við Varmá og stefni að yfirbyggingu hans eins fljótt og auðið er. Eins og áður segir mun sú framkvæmd ekki eingöngu koma sér vel fyrir knatt- spyrnu- og frjálsíþróttafólk heldur fyrir félagið í heild. Brýnt er að fara í þetta verkefni strax og dapurt ef settur er steinn í götu þess. Elísabet Guðmundsdóttir formaður aðalstjórnar Aftureldingar Erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri aðalstjórnar Aftureldingar Gervigrasvöllur við Varmá – hvers vegna og fyrir hverja? Lífið er stundum óútreiknan- legt. Einn daginn erum við hress og glöð næsta dag með saklaus veikindi sem verða að einhverju svo miklu meira vegna röð aðstæðna sem enginn sá fyrir. Viðkomandi er kippt út úr daglegri rútínu eins og að fara í skólann á morgnana. Vikurn- ar líða, enginn skóli, aðeins veik- indi og þróttleysi og alltaf styttist í samræmdu prófin. Það er hringt í skólann og veikindi eru tilkynnt. Þegar tvær vikur eru liðnar er talað við Helgu Richter og er okkur boðin öll sú hjálp sem skólinn getur veitt. Ekkert vandamál. Þegar veikindin eru að mestu yfirstaðin koma kenn- arar og kenna heima. Þetta finnst okkur frábært. Fyrir þetta viljum við þakka og gerum við það hér og nú. Kærar þakkir til starfsfólks Varmár- skóla fyrir að reynast svona vel. Ásta Björg Björnsdóttir Andrés Þórarinsson Kærar þakkir Stuðningur vegna kosninga Ragnheiður Rikharðsdóttir bæjarstóri, lagði fram tillögu fyrir bæjarráði þann 23. mars síðastliðinn að þeir flokkar sem bjóða sig fram til bæjar- stjórnakosninga fá 1.6 millj. króna til stuðnings framboða sinna. Tillagan var samþykkt með tveimur atkvæðum og því koma flokkarnir fjórir til með að skipta þessari fjárhæð á milli sín og nýta í kosingarherferðir sínar. Nú fer daginn að lengja og margur ökumaðurinn gleymir sér og bensínfóturinn verður þyngri. Það er einmitt það sem við þurf- um að varast því með hækkandi sól fer gangandi vegfarendum fjölgandi. Eink- um fer smáfólkið á stjá og tekur fram hjólin sín. Þessi litlu kríli skjótast svo um allt og ökumenn verða að vera á varðbergi. Annars gengur lífið sinn vanagang og menn brosa með hækkandi sól. Karl Hjartarson, lögreglumaður. Hugvekja frá lögreglu Nauðlending í Mosfellsdal Lítil, eins hreyfils og fjögurra sæta flugvél nauðlenti á túni við bæinn Víði í Mosfellsdal 2. apríl. Vélin var á leiðinni frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur þegar gangtruflanir gerðu vart við sig og leiddu til fyrrnefndrar nauðlendingar. Einn karlmaður og tvær konur voru í vélinni. Þau voru flutt á slysadeild en meiðsli voru minniháttar. Vélin skemmd- ist að framan og brotnaði nef- hjólið við lendinguna. Farþegar voru skelkaðir eftir atburðinn og var boðin áfallahjálp. Sumarstörf 2006 Mosfellsbær auglýsir eftirtalin sumarstörf laus til umsóknar:

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.