Mosfellingur - 28.04.2006, Blaðsíða 6
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar6
Draumakaffi
styrkir CP samtök
Þann 12. apríl hélt Drauma-
kaffi veglegt páskabingó sem
endaði með heljarinnar balli.
Allur ágóði rann til CP sem eru
samtök heilalamaðra einstakl-
inga. Bingóið fór fram úr
björtustu vonum og fullt var út
úr dyrum. Vinningarnir voru
hinir glæsilegustu og aðalvinn-
inginn hlaut Bóel Hallgrímsdót-
tir. Í honum var m.a. gisting
á Hótel Selfossi, þriggja rétta
máltíð, páskaegg og ýmislegt
fleira. Frábært framtak hjá
Draumakaffi og Ingibjörg frá CP
samtökunum var í skýjunum
þegar Guðmundur og Ingunn
afhentu henni ávísun uppá
64.000 krónur. Þau vildu koma
á framfæri bestu þökkum til
allra þeirra sem gáfu vinninga í
bingóið.
Á neðri myndinni má sjá
Bóel með aðalvinning kvöldsins.
Samkvæmt svæðaskipulagi höf-
uðborgarsvæðisins og aðalskipulagi
Mosfellsbæjar mun eiga sér stað
mikil fjölgun íbúa í sveitarfélaginu
á næstu árum. Mosfellsbær er það
sveitarfélag á landinu sem ætlað er
að taka við hlutfallslega mestri fólks-
fjölgun. Í þessu felast bæði tækifæri
og áskoranir. Á kjörtímabilinu hefur
verið unnið mikið starf við undirbún-
ing þessa stóra verkefnis. Eins og
flestum er kunnugt er málum þannig
háttað hér í bæ að byggingarlönd eru
nær eingöngu í eigu einkaaðla. Gömlu
landbúnaðarjarðirnar og tilvonandi
byggingarlönd, Blikastaðir, Lágafell,
Teigur, Sólvellir, Akrar, Reykir, Helga-
fell og Leirvogstunga, falla öll í þenn-
an flokk.
Ný hugmyndafræði
Þegar skoðaðir eru þeir möguleikar
sem sveitarfélagið hefur til að takast á
við þessa miklu uppbyggingu koma
einkum tvær leiðir til greina. Annars
vegar að kaupa upp byggingarlöndin
og úthluta lóðum og hins vegar að
gera samninga við landeigendur varð-
andi uppbyggingu á svæðunum. Við
fyrstu sýn virðist fyrri leiðin aðgengi-
legri og betri en við nánari skoðun
kemur í ljós að henni fylgja verulegir
annmarkar. Eins og öllum er kunn-
ugt um hefur verð á byggingarlandi
á höfuðborgarsvæðinu margfaldast
á undanförnum árum. Sveitarfélagið
þarf því að leggja í gífurlegar fjárfest-
ingar vegna kaupa á byggingarlandi
með tilheyrandi áhættu. Auk þess
sem leggja þarf uppkaupsverð ofaná
gatnagerðargjöld til að ná þeim fjár-
munum til baka sem lagðir væru í
kaupin, nema að lóðir væru niður-
greiddar af skattfé sem án efa mundi
ekki nást sátt um meðal bæjarbúa. Því
var skoðuð sú leið að gera samninga
við landeigendur um uppbyggingu á
svæðunum og aðkomu þeirra að bygg-
ingu þjónustumannvirkja. Nú hafa
verið gerðir tveir slíkir samningar, þ.e.
um uppbyggingu 400 sérbýlisíbúða
í Leirvogstungu og byggingu 1000
íbúða í landi Helgafells. Þessi samn-
ingar fela m.a. í sér að:
• Landeigendur kosta allar fram-
kvæmdir sem uppbygging á hverf-
unum krefst hverju nafni sem þær
nefnast, s.s. vegna gatnagerðar, undir-
ganga, holræsalagna, stígagerðar,
lýsingar, frágangs leikvalla og allra
sameiginlegra svæða.
• Landeigendur greiða allan skipu-
lagskostnað svæðanna.
• Landeigendur afhenda Mosfellsbæ
landið til eignar samhliða uppbygg-
ingu.
• Landeigendur greiða Mosfellsbæ
a.m.k. um 1.050 mkr. vegna beggja
hverfanna, sem notaðar verða til
uppbyggingar á skólamannvirkjum í
hverfunum.
Með þessu móti er tryggt að fjár-
magn fylgir frá landeigendum til
að standa undir uppbyggingu á
nauðsynlegri þjónustu í hverfunum
og sá kostnaður lendir ekki á íbúum
sveitarfélagsins. Auk þess fríar bæjar-
félagið sig þeirri miklu áhættu sem
fylgir uppkaupum. Jafnframt er tryggt
mikið framboð af fjölbreyttum lóðum
í bæjarfélaginu sem stuðlar að því að
jafnvægi myndast milli framboðs og
eftirspurnar sem leiðir jafnframt til
lægra lóðaverðs.
Samningar sem eftir
er tekið
Sú leið sem hér hefur verið kynnt
um uppbyggingu íbúðahverfa í Mos-
fellsbæ hefur vakið mikla athygli.
Ljóst er að hér er um nýja hugmynda-
fræði að ræða sem önnur sveitarfélög
munu vafalaust nota sér. Því vekur
athygli afstaða frambjóðanda Sam-
fylkingarinnar hér í bæ sem skrifaði
nýlega í Mosfelling og gerði þessi mál
að umtalsefni. Í skrifunum birtist af-
staða Samfylkingarinnar sem gefur
ekki mikið fyrir þessa nýju hugmynda-
fræði og telur hana ekki vera íbúunum
Mosfellsbæjar til framdráttar. Dæmi
hver fyrir sig. Ég geri ráð fyrir að þessi
afstaða sé byggð á vanþekkingu og
hvet frambjóðandann til að setja sig
betur inn í lóðamál og lóðaframboð í
Mosfellsbæ.
Uppbyggingin og lóðirnar
– ný hugmyndafræði
Haraldur
Sverrisson
Formaður
skipulags- og
byggingar-
nefndar
fiJÓ‹VAKI
Mosfellingur 5
KFC MOSFELLSBÆ
Senn líður að því að við Mosfelling-
ar getum farið að nýta okkur þá nýju
sundlaugarparadís sem er að rísa við
Lágafellsskóla. Á sumardaginn fyrsta
var bæjarbúum boðið að skoða og
sjá hve glæsilegt mannvirkið verður.
Uppbygging þess hefur verið hröð og
má sjá mannvirkið taka á sig mynd
frá degi til dags. Þykir mannvirkið hið
glæsilegasta og mikill happafengur
fyrir okkur hér í bæjarfélaginu.
Hvað þýðir þetta fyrir okkur í Mos-
fellsbæ? Jú, nú ættu t.d. allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi sem teng-
ist á einhvern hátt sundi. Þarna verður
innilaug með færanlegum botni,
25m útilaug sem uppfyllir alþjóðlega
staðla sem keppnislaug, gufubað,
eimbað, heitir pottar, vaðlaug og
ekki má gleyma rennibrautum sem
yngri kynslóðin á eftir að nýta sér til
gamans. Veitingaaðstaða verður inn-
andyra sem einnig verður hægt að
nýta á góðviðrisdögum og bjóða upp
á veitingar á sundlaugarbakkanum.
Einnig er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir
ýmsa aðra tengda þjónustu.
Lágafellsskóli fær á nýju skólaári
2006 íþróttahús og sundlaug til eig-
in afnota á skólatíma og mun það
efla allt innra starf skólans og jafna
íþróttaaðstöðu grunnskólabarna í
Mosfellsbæ. Skólaakstur nemenda af
vestursvæði vegna sund- og íþrótta-
kennslu verður aflagður og mun það
hafa í för með sér aukin þægindi fyrir
börnin og töluverða hagræðingu í
skipulagi skólastarfs.
Þó svo að við Mosfellingar séum að
fá í bæjarfélagið nýja glæsilega sund-
laugaraðstöðu fyrir almenning þá má
ekki gleyma þeirri uppbyggingu sem
einnig á sér stað á Varmársvæðinu.
Þrír löglegir keppnisvellir innanhúss,
fitnesbraut, frjálsíþróttaaðstaða, 7
manna gervigrasvöllur, sundlaug
þar sem á að setja nýja flotbakka og
lagfæra í nútíma mynd og nú í sumar
verður tekinn í notkun gervigrasvöll-
ur í fullri stærð. Einnig er í samvinnu
við UMFA verið að hanna viðbyggingu
við Íþróttamiðstöðina að Varmá sem
kemur til með að bæta til muna alla
þjónustu við bæjarbúar og ekki síður
mun ný félagsaðstaða UMFA án efa
verða lyftistöng fyrir félagið.
Margoft höfum við státað okkur af
því að vera íþrótta- og útivistarbærinn
Mosfellsbær og má með sanni segja
að miðað við þá uppbyggingu sem átt
hefur sér stað undanfarið og á kom-
andi mánuðum þá stöndum við svo
sannarlega undir nafni.
Sundlaugarparadís
við Lágafellsskóla
Bjarki
Sigurðsson
Formaður
íþrótta og
tómstunda-
nefndar
fiJÓ‹VAKI
Efnahagshorfur
ræddar hjá Glitni
Um 80 manns mættu á
morgunfund Glitnis sem
haldinn var á
miðvikudaginn
sem leið á
bókasafninu.
Á fundinum va
meðal annars
rætt um efna-
hagshorfurnar.
Sérstakur gestur
var Ingólfur Bender
hagfræðingur sem hélt fyrirlest-
ur um efnahagshorfur. Að sögn
Sigríðar Jónsdóttur útibússtjóra
var góð mæting og almenn
ánægja með fyrirlesturinn
SMÁAUGLÝSING
Elsa tapaði iPod spilaranum
sínum í eða við Lágafells-
skóla eða íþróttamiðst.
Varmá miðvikud. 12. apríl.
Skilvís finnandi er beðinn
um að hafa samband í síma
8681531 eða 8487720.