Mosfellingur - 28.04.2006, Blaðsíða 12
Veistu
svarið?
Hvað heitir hestamanna-
félagið í Mosfellsbæ?
Hver er formaður
menningarmálanefndar?
Hvað heitir Mosfellski
söngvari Sigurrósar?
Svör: 1. Hestamannafélagið Hörður,
2. Guðmundur Pétursson,
3. Jónsi
Friðrik G. Olgeirsson
rifjar upp gamla tíma úr sveitinniSögukornið
Mosfellingur - Bæjarmál og aðsendar greinar12
Fax: 566-7241
namo@namo.is
NAMO ehf. - Þverholti 2 - Kjarna
S. 566-7310 og 896-0131
Afturelding leikur í íþróttafatnaði frá Jako
Á 18. öld fylltust stjórnvöld
áhuga á að reisa við hag Íslend-
inga, efnahag og atvinnulíf, sem
hafði óneitanlega beðið hnekki af
ýmsum ástæðum öldina á undan.
Margt var reynt að gera þjóðinni
til framdráttar. Sumt heppnaðist
þolanlega, annað mistókst. Á þeim
tíma var landbúnaður sú atvinnu-
grein sem fl estir eða allir unnu við
og því einbeittu menn sér að því
að efl a hann á allan máta. Eitt af
því sem stjórnvöldum datt í hug
að gera var að fl ytja inn hreindýr
til landsins og komu fyrstu dýrin
til Vestmannaeyja frá Sørø í Noregi
árið 1771. Fljótlega kom í ljós að
dýrin þrifust illa og því voru þau
fl utt til meginlandsins. Þar fjölgaði
þeim örlítið á næstu árum.
Hreindýr voru aftur fl utt til
landsins árið 1777 og þá var 23
dýra hjörð sleppt á Hvaleyri við
Hafnarfjörð. Þaðan færðu dýrin sig
í austurátt og leituðu sér þá fæðu á
heiðalöndum Mosfellinga sem inn-
an tíðar fóru að veiða sér til matar
úr stofninum. Enn voru hreindýr
fl utt til landsins árið 1784 og 1787
og sleppt í Þingeyjarsýslu og í
sveitum Vopnafjarðar. Þar fjölg aði
þeim ört og núverandi stofn
hreindýra er af þeim kominn.
Hreindýr lifðu á heiðum
Mos fell inga fram
til alda mótanna
1900 og voru
talsvert veidd til
matar um skeið.
En á skömmum
tíma hurfu þau
fyrir fullt og allt
og enginn vissi
hvað af þeim
varð. Þá var fyrir löngu búið að
friða þau og dýrunum tekið að
fjölga. Íbúar Mosfellssveitar fóru
því eðlilega að bollaleggja hver
ástæðan væri fyrir hvarfi þeirra.
Þeir sem best þóttust vita töldu að
þau hefðu tekið sig upp og farið
austur á land. Um var kennt að
þau hefðu styggst þegar hestvagn-
arnir komu til sögunnar á vegum
austur í sveitir. Fólk tók eftir því að
á kyrr um kvöldum barst skröltið
ótrú lega langt og heyrðist t.d. frá
Svínahrauni og heim í Mosfells-
sveit. Því var dregin sú ályktun
að hreindýrin hefðu ekki þolað
hávaðann sem raskaði venju-
bundnu lífi þeirra.
Örfá dýr urðu samt eftir í ná-
grenni Mosfellssveitar en með tím-
anum týndi sú litla hjörð tölunni.
Dýrin héldu sig á völlunum fyrir
norðan Kolviðarhól en leituðu
norður á bóginn á haustin. Komu
þau þá oft niður í Mosfellssveit
og héldu sig hjá Selvatni. Á vet-
urna sáust þau oft hjá eyðibýlinu
Miðdalskoti. Þar er góður grashóll
og þangað höfðu hreindýr fyrr á
tímum komið þegar harðnaði í
ári. Síðast voru aðeins tvö dýr eftir
af litlu eftirleguhjörðinni og með
árunum urðu þau gömul. Þá héldu
þau sig mest við gömul beitarhús
frá Miðdal. Þau urðu sjóndöpur og
gat fólk þá næstum gengið að þeim.
Loks sást aðeins annað dýrið en
hitt var horfi ð. Það var árið 1926 og
ári seinna hvarf síðasti tarfurinn.
Nokkru síðar fannst hann dauður
hjá Selvatni og seinna fannst hræið
af dýrinu sem fyrr hafði horfi ð.
Var það á svipuðum slóðum, fyrir
sunn an og austan Selvatn. Tími
villtra hreindýra í Mosfellssveit var
liðinn.
Friðrik G. Olgeirsson
sagnfræðingur
Hreindýr
á heiðum
Mosfellinga
Gljúfrasteinn
tilbúinn eftir
breytingar
Heimili skáldsins, Halldórs
Laxness, var opnað aftur eftir
breytingar nú í byrjun apríl.
Húsið fékk væna andlitslyftingu
og skartar nú sínu fegursta.
Af stað hafa farið kynning ar
á verkum Laxness þar sem
eitt verk hans er tekið fyrir í
hverjum mánuði. Fyrsta verkið,
verk aprílmánaðar, er bókin
Alþýðubókin. Að þessu tilefni
munu þeir Andri Snær Magna-
son rithöfundur og Þröstur
Helgason ritstjóri lesblaðs
Morgunblaðsins ræða um bók-
ina, Draumalandið og hlutverk
rithöfunda í samfélagsumræð-
unni við gesti og gangandi.
Spjallið fer fram í stofunni
laugardaginn 29. apríl, hefst kl.
16.00 og opið öllum á meðan
húsrúm leyfi r.
Opið
öll
kvöld
Um síðustu mánaðamót var deild úr
höfuðstöðvum KB banka fl utt í Mosfells-
bæ. Um er að ræða skiptiborð bankans
sem nú svarar öllum símtölum frá 2. hæð
útibúsins við Þverholt. Verður þetta að telj-
ast ágæt innspýting í atvinnumál bæjarins
enda ekki á hverjum degi sem slíkt hendir.
Bankinn lætur ekki þar við sitja, því
fyrirhugað er að stækka neðri hæðina
allnokkuð til suðurs og mun þá starfsemi
útibúsins öll færast á þá hæð. Þarna er um
að ræða áfanga í gagngerum breytingum á
útibúinu. Reikna má með að verkefnið taki
nokkra mánuði og verður spennandi að
fylgjast með hvernig til tekst.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig
umhorfs er á skiptiborðinu en ekki þurfti
að leggja í miklar breytingar á húsnæðinu
við þessa ráðstöfun utan þess að auðvitað
þurfti að fjölga símtækjum og koma upp
viðeigandi búnaði svo símtölin rati á rétt-
an stað á landinu.
Ný störf í boði KB-banka