Mosfellingur - 14.07.2006, Blaðsíða 4
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar4
Málverkasýning
á Kaffi Kjós
Þann 1. júní opnaði Ólafur
Jónsson (iló), Berjalandi Kjós,
málverkasýningu í Kaffi Kjós og
verður hún opin alla daga kl.
12 -20.
Einnig er Stína Sigga leir-
listarkona, Blönduholti Kjós,
með muni til sölu í Kaffi Kjós
í sumar. Á staðnum eru líka
til sölu lopapeysur frá Ástu á
Grímsstöðum og handverk frá
Póllandi.
Á myndinni má sjá Ólaf og
dóttur hans Guðrúnu Júlíu.
Íbúar í Lækjartúni vöknuðu upp
við vondan draum þegar lækurinn
sem rennur við túnfótinn hjá þeim
lyktaði af skolpi og bar brúnan lit
sem ekki samsvaraði sér við ímynd af
fallega bæjarlæknum sem liðast um
hverfið. Leyfar af salernispappír voru
fastar í trjágreinum ásamt ýmsu öðru
sem ekki er við hæfi að rita á blað. Í ljós
kom að klóakrör er brotið fyrir ofan
hverfið og allt innvolsið rennur út í
lækinn fyrir börnin okkar og hunda til
að busla í. Af ummerkjum að dæma er
rörið búið að vera brotið lengi og búið
að grafa lítinn farveg fyrir ógeðið svo
það eigi greiða leið út í lækinn okkar.
Víst er að vorrigningar hafa hresst
uppá rennslið og þess vegna kemur
þetta í ljós núna. Að sögn íbúa í ná-
grenni við rörið hefur verið kvartað
undan þessu til Mosfellsbæjar all oft
en svo virðist sem bæjaryfirvöldum
sé nokk sama um íbúa í þessu lokaða
hverfi. Málið er að saur og þvag rennur
óhikað út í læk sem rennur um lóðir
nokkurra íbúðarhúsa hér og það er
ekkert leyndarmál að börnum finnst
gaman að busla og vaða í læknum á
góðum sumardögum. Einnig á klóak
af nýjum raðhúsum sem hér eru í
byggingu að tengjast þessu umrædda
röri, hvernig verður ástandið þá?
Þessi ágæti lækur hefur nú reyndar
haft hin ýmsu blæbrigði á sér. Stund-
um er hann rauður, blár, snjóhvítur,
grænn, svartur eða bara eitt stórt
freyðibað. Ekki segja að það sé ekki
annað brot á mengunarlögum. Það
virðist sem allt affall af mengunar-
valdandi efnum frá iðnaðarhverfinu
fyrir ofan Hlíðartúnshverfið fari út í
lækinn góða sem aftur er leiksvæði
fyrir börn og gæludýr.
Íbúar hverfisins hafa talað fyrir
daufum eyrum í mörg ár til að fá
vandann leystan en ekkert er gert
og lækurinn jafn mengaður og áður.
Við viljum að öllum afföllum út í
lækinn verði lokað og komið fyrir í
viðurkenndum skólplögnum eins og
tíðkast í öðrum hverfum. Við viljum
ekki að orðatiltækið „éttu skít” verði
að veruleika hjá börnum í þessu
hverfi þegar þau fara út að leika sér.
Áslaug Erlín Þorsteinsdóttir
Hvað kom fyrir lækinn okkar?Endurgreiðsla til
styrktar UMFA
Nokkuð hefur verið um
það að bæjarbúar hafi haft
samband við
Aftureldingu til
að gefa félaginu
endurgreiðslu-
ávísunina frá
Mosfellsbæ í
maí. Haft var
eftir einum hjón-
um að þetta hafi
verið fjármunir sem þau hafi
ekki átt von á og því hafi þau
ákveðið að nota þá til að styrkja
barnastarfið hjá Aftureldingu.
Ef fleiri bæjarbúar hafa áhuga á
að fara að fordæmi þessa fólks,
geta þeir lagt ávísunina inn á
reikning 0549-14-100741,kt.
460974-0119. Afturelding vill
nota tækifærið og þakka þeim
sem styðja starfið í félaginu á
þennan hátt.
Jóhann Hjálmarsson fæddist
2. júlí 1939 í Reykjavík. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Austurbæjar 1956 og var við prent-
nám í Iðnskóla Reykjavíkur til 1959.
Sama ár fór hann í spænskunám við
Háskólann í Barcelona og svo aftur
árið 1965. Jóhann starfaði hjá Póst-
og símamálastofnun frá 1954-1985 og
gegndi m.a. stöðu póstfulltrúa og úti-
bússtjóra og síðan blaðafulltrúa frá
1985 til 1990. Hann var bókmennta-
gagnrýnandi Morgunblaðsins frá
1966 og leiklistargagnrýnandi sama
dagblaðs 1967 til 1988. Jóhann hafði
umsjón með bókmenntaþáttum í
Ríkisútvarpinu en frá 1990 hefur
Jóhann verið bókmenntagagnrýn-
andi að aðalstarfi.
Jóhann var í stjórn Félags íslenskra
rithöfunda og Rithöfundasam-
bands Íslands 1968 til 1972. Hann
sat í frímerkjaútgáfunefnd frá 1982
til 1988. Jóhann var í dómnefnd bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs
1981 til 1990 og var formaður nefnd-
arinnar frá 1987 til 1989. Hann var
formaður Samtaka gagnrýnenda 1986
til 1988 og íslenskur ritstjóri Nordisk
Posttidskrift, tímarits norrænu póst-
stjórnanna árin 1986 til 1990. Jóhann
var einn af ritstjórum Forspils 1958
til 1959 og í ritstjórn Birtings 1958 til
1961. Auk þess gegndi hann ýmsum
nefndarstörfum hjá Pósti og síma og
Samgönguráðuneytinu 1985-1990.
Jóhann hefur gefið út fjölda ljóða-
bóka og kom fyrsta bókin, Aungull
í tímann, út árið 1956. Ljóð Jóhanns
hafa verið þýdd á mörg tungumál og
birst í safnritum víðs vegar um heim-
inn. Ljóðabókin Hljóðleikar (2000)
var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs 2003. Jóhann hefur
einnig þýtt ljóð fjölmargra erlendra
höfunda.
Með verkum sínum hefur Jóhann
markað sér sess sem eitt af helstu
ljóðskáldum sinnar samtíðar og hlot-
ið ýmsar viðurkenningar fyrir.
Jóhann Hjálmarsson
Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2006
Alþjóðlegir listadagar í Mosfellsbæ 1. til 9. júlí
Þann 30. júní til 9. júlí stóð yfir í listasal Mosfellsbæjar sýningin Alþjóðleg sýn / Inter-
national View 2006 og á sama tíma Alþjóðleg vinnusmiðja / International Workshop 2006 í
Þrúðvangi í Álafosskvosinni.
Hér var á ferðinni myndlistarsýning og vinnusmiðja 13 myndlistarmanna frá 5 Evrópulönd-
um. Sýningin var haldin í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarnanum að Þverholti 2. Listamennirnir
komu með verk að heiman sérstaklega unnin fyrir sýninguna. Uppsetning og skipulag sýning-
arinnar í Listasal Mosfellsbæjar var í höndum Hildar Margrétardóttur. Um skipulag og fram-
kvæmd verkefnisins sáu Hlíf Ásgrímsdóttir, Kristín Geirsdóttir og Ólöf Oddgeirsdóttir.
Meðan á dvöl erlendu listamannanna stóð unnu þeir með íslensku listamönnunum
í vinnusmiðju í Listasal Þrúðvangs í Álafosskvosinni. Unnið var undir vinnuheitinu [WIN-
DOWS-1252?]“View” eða [WINDOWS-1252?]”Sýn” þar sem sjónum er beint að landi og þjóð
með ýmiss konar skissuvinnu og teikningum og fleiri óvæntum uppákomum.
Áætlað er að Alþjóðlegi listahópurinn hittist og haldi verkefninu áfram 2008 í Granada
og Capileira, Las Alpujarras, Sierra Nevada, Spáni undir stjórn ljósmyndarans og grafiklista-
mannsins Henrik Boegh og fjöllistamannsins Aase Hojer.
Myndirnar tók Hildur Margrétardóttir