Mosfellingur - 14.07.2006, Page 6
Fjöldi fólks lagði leið sína á fjölbreytta
dagskrá í boði Mosfellsbæjar.
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar6
Bymos fl utt
í Háholtið
BYMOS, Byggingavöruversl-
un Mosfellsbæjar, hefur fl utt
starfsemi sína úr Urðarholti
4 að Háholti 14, við hliðina á
Snælandi og Draumakaffi .
Vörur í nýju versluninni eru
talsvert aðgengilegri á allan
hátt heldur en var í Urðarholt-
inu. Að auki verður aukið
vöruúrval og besta mögulega
þjónusta veitt. Ekki er aðstaða
fyrir efnissölu í versluninni aðra
en málningu. Málningin er frá
Flügger, áður Harpa Sjöfn og
eru málningarvörurnar á sama
verði og í Flüggerverslunum á
höfuðborgasvæðinu. Verðtilboð
eru gerð í stærri verk.
Það er von eiganda Bymos
að Mosfellingar sjái sér hag í að
versla í heimabyggð, enda vöru-
verð ekki hærra en hjá þeim
stóru í bænum.
Eins og lög gera ráð fyrir var
myndaður meirihluti hér í Mos-
fellsbæ eftir sveitastjórnarkosningar-
nar í maí. Sem kunnugt er voru það
Vinstri hreyfi ngin - grænt framboð
og sjálfstæðismenn sem náðu saman
og skrifuðu undir málefnasamn-
ing 2. júní, eins og kemur fram á vef
D-listans, varma.is. Ástæða er til að
óska þeim velfarnaðar og alls hins
besta í störfum fyrir bæjarfélagið.
Undirrituð mætti spennt til að
hlusta á fyrsta fund nýrrar bæjar-
stjórn ar sem haldinn var 14. júní.
Bæði til að fylgjast með kjöri í em-
bætti og nefndir en fyrst og fremst til
að heyra hvaða málefnum nýr meiri-
hluti ætlaði sérstaklega að beita sér
fyrir og hver forgangsröðunin ætti
að verða. Mikil voru vonbrigðin þeg-
ar bæjarstjórinn svaraði fyrirspurn
oddvita Samfylkingarinnar um mál-
efnasamninginn á þá leið að hann
yrði ekki lagður fram á þessum fyrsta
fundi bæjarstjórnar heldur yrðu
menn að bíða þess til 28. júní. Þetta
loforð endurtók bæjarstjórinn þegar
fundargestur spurði sérstaklega að
fundi loknum. „Nú jæja” hugsaði ég
með mér, „þau þurfa einhvern tíma
til að ganga endanlega frá plagginu”.
Mikil var því undrun mín þegar ég
sá Mosfelling sem kom út 16. júní,
þ.e. tveimur dögum eftir bæjarstjórn-
arfundinn. Í grein eftir einn forvíg-
ismanna Vinstri hreyfi ngarinnar
- græns framboðs, Ólaf Gunnarsson,
kemur nefnilega fram að búið sé að
ganga frá málefnasamningi og að
VG hafi komið fl estum sínum stefnu-
málum í gegn! Samkvæmt grein Ólafs
áttu bæjarbúar að komast að því á
næstu vikum og mánuðum hvað
stæði í þeim samningi. Pöpullinn
átti greinilega ekki að vera með nefi ð
oní prívatkoppum nýs meirihluta! Af
hverju var hann ekki lagður fram?
Jæja, 28. júní rann upp og haldinn
var bæjarstjórnarfundur og 28. júní
leið án þess að málefnasamningur
Vinstri grænna og sjálfstæðismanna
liti dagsins ljós í bæjarstjórn. Bæjar-
stjóri tilkynnti víst á fundinum að
margumræddur málefnasamningur
yrði lagður fram í bæjarstjórn á fyrsta
fundi eftir sumarleyfi sem ráðgert
er að halda þann 9. ágúst n.k. Hann
væri víst ekki til á því formi að hægt
væri að leggja hann fram! Því lítur
út fyrir að bæjarbúar fái loksins vitn-
eskju um hvert ný stjórnvöld í bæn-
um ætla að stefna rúmum tveimur
mánuðum eftir að samkomulagi um
meirihlutasamstarf var náð! Meiri-
hlutasamstarfi tveggja ólíkra fl okka
sem lögðu fram sína stefnuskrána
hvor í kosningabaráttunni og sem
settu fram mismunandi kosninga-
loforð. Hvað eiga svona vinnubrögð
að þýða? Var kannski margumrædd-
ur „málefnasamningur” einungis
plagg um skiptingu embætta? Eða
var rithönd þess sem handskrifaði
samninginn svo ill afl estrar að ekki
hefur enn tekist að ráða fram úr inni-
haldinu? Getur verið að bæjarstjóri sé
ekki að tala um sama málefnasamn-
ing og Ólafur Gunnarsson upplýsir
að sé tilbúinn í grein sinni sem birtist
16. júní? Getur verið að meirihluti
sjálfstæðismanna og Vinstri hreyf-
ingarinnar - græns framboðs líti svo
á að áhersluatriði í rekstri, þjónustu
og framtíðarþróun sveitarfélagsins sé
þeirra einkamál?
Þessi vinnubrögð gefa ekki fyr-
irheit um að nýr meirihluti muni
á stunda opnari stjórnsýslu en sá
gamli. Þau lofa ekki góðu um að
lýðræðisleg vinnubrögð verði í
hávegum höfð. En þau gefa sterklega
í skyn að forsjárhyggjan muni áfram
lifa góðu lífi í Mosfellsbæ.
Anna Sigríður
Guðnadóttir
Varaformaður
Samfylkingarinn-
ar í Mosfellsbæ
Spenna og eftirvænting
Hvað verður í málefnasamningnum?
Styrkjum úthlutað
til efnilegra ungmenna
Mosfellsbær úthlutaði á dögunum styrkjum til
efnilegra ungmenna svo þau geti alfarið lagt stund á
íþrótta-, tómstunda- eða listgrein sína sumarið 2006.
Styrkjunum er jafnframt ætlað að hvetja ungmennin
til afreka hvert á sínu sviði. Styrkirnir eru alls að and-
virði 1.435.969 kr. og skiptast milli sex efnilegra ung-
menna á aldrinum 16-19 ára. Greinarn ar sem ung-
mennin stunda eru margvíslegar, bæði íþróttir og
listir. Styrkirnir voru afhentir í Listasal Mosfellsbæj-
ar og ávarpaði bæjarstjóri ungmennin og formaður
íþrótta- og tómstundanefndar afhenti styrkina.
Á myndinni eru frá vinstri: Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir bæjarstjóri, Kristján Þór Einarsson, golfari,
Ólafur Þór Arnalds, tónsmiður, Árni Már Árnason,
sundmaður, Brynja Finnsdóttir, frjálsíþróttamaður,
Sigrún Harðardóttir, fi ðlu- og trompetleikari, Embla
Ágústdóttir, sundmaður og Hafsteinn Pálsson for-
maður íþrótta- og tómstundanefndar Mosfellsbæjar.
Skemmdarverk
á trjáplöntum
Það blasti ófögur sjón við
verkstjóra Skógræktarfélags
Mosfellsbæjar þegar hann
mættu til vinnu mánudaginn 3.
júlí s.l. Nemendur vinnuskól-
ans hafa verið að gróðursetja
í Skammadal í landi Norður-
Reykja. Búið var að keyra og
spóla yfi r bakka sem í voru
trjáplöntur. Virtist eins og ekki
hafi verið um óviljaverk að
ræða, þar sem margir bakkar
voru á hvolfi , sumir brotnir og
plöntur út um allt. Lögreglan
hefur enn engar skýringar á
þessum leiðindaatburði en
fjöldi plantna eyðilagðist.
Þessar þrjár voru hæst ánægðar
með skemmtidagskránna.