Litli Bergþór - 01.07.2017, Page 14
14 Litli-Bergþór
Stjórn félagsins er þannig skipuð:
Formaður: Knútur Ármann
Gjaldkeri: María Þórarinsdóttir
Ritari: Sólon Morthens
Aðaltilgangur félagsins var til að byrja með að efla áhuga
manna á ræktun íslenska hestsins með kynbótum og
stóðhestahaldi. Starfsemi félagsins er nokkuð breytt nú;
stóðhestahaldið hefur verið lagt niður en félagið stendur
fyrir margskonar uppákomum til eflingar hrossarækt.
Árlega eru haldnar folaldasýningar,
og annað hvert ár unghrossadómar þar
sem kynbótaráðunautur dæmir hrossin.
Hrossaræktardagur hefur verið í Flúða-
höllinni síðustu tvö árin, þar sem ræktendur
koma sínum hrossum á framfæri og reiknum
við með að sá viðburður eigi eftir að vaxa
mikið.
Uppskeruhátíð er svo haldin að
haustinu þar sem félagið verðlaunar
ræktendur efstu kynbótahryssna og
stóðhesta auk annarra afreksverðlauna.
Síðan eru ferðalög félagsmanna árleg-
ur viðburður þar sem heimsótt eru
hrossaræktarbýli bæði innanlands og utan
og eins má geta þess að ein ferð var farin
á World tölt sem haldið var í Óðinsvéum í
Danmörku.
Hrossaræktarfélag
Biskupstungna
Haukur Daðason og Guðjón Gunnarsson heiðursfélagar 2016.
Magnús Einarsson í Kjarnholtum og Guðný
Höskuldsdóttir taka á móti verðlaunum fyrir
hrossaræktarbú ársins 2016, en þau sigruðu með
miklum yfirburðum. Auk þess fékk Guðný verðlaun
sem ræktandi þriggja efstu hryssna og Magnús fyrir
tvo efstu stóðhestana, Kolskegg og Rauðskegg.