Litli Bergþór - 01.07.2017, Qupperneq 21
Litli-Bergþór 21
verndar svæðið og gefur gestum tækifæri til að
njóta þess enn betur.
Á heimasíðu arkitektafélagsins þann 8. mars
2014 er sagt frá niðurstöðum dómnefndar:
Úrslit í hugmyndasamkeppni um skipulag og
hönnun Geysissvæðisins í Haukadal liggja nú
fyrir. Alls bárust 14 tillögur og var dómnefnd
samhljóma þegar koma að því að velja
vinningstillöguna.
Tillaga Landmótunar sf. hlaut fyrstu verð-
laun en hópinn skipa Einar E. Sæmundsen,
landslagsarkitekt FÍLA, Guðrún Ragna Yngv-
arsdóttir, arkitekt, Jóhann Sindri Pétursson
meistaranemi í landslagsarkitektúr, Lilja K.
Ólafsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA og Yngvi
Þór Loftsson landslagsarkitekt FÍLA í samstarfi
við Argos arkitekta, Grétar Markússon arkitekt
FAÍ, Stefán Örn Stefánsson arkitekt FAÍ og Einar
Ásgeir E. Sæmundsen landslagsarkitekt FÍLA.
Ráðgjöf veitti Gagarín ehf., margmiðlunarstofa.
Önnur verðlaun hlaut Arkiteó: Magdalena Sig-
urðardóttir arkitekt, Hulda Sigmarsdóttir arkitekt
og Einar Ólafsson arkitekt FAÍ.
Þriðju verðlaun hlutu Arkís arkitektar ehf.
Birgir Teitsson arkitekt FAÍ og Sara Axelsdóttir
arkitekt en ráðgjafar við tillögugerð voru þeir
Hermann Ólafsson landslagsarkitekt FÍLA og
Guðjón L. Sigurðsson lýsingahönnuður PLDA.
Í áliti dómnefndar um vinningstillögu segir
„að heildarlausn er vel útfærð og að tillagan leysi
vel þær forsendur sem lagt var upp með. Lega
stíganna er raunhæf og til þess fallinn að mynda
gott flæði. Upplifunarstígum og útsýnispöllum er
vel fyrirkomið. Sjónlínum er haldið hreinum og er
aðgangur opnaður að fleiri hverum.“
Vonir standa til þess að verðlaunaðar hugmynd-
ir verði nýttar í áframhaldandi vinnu við gerð
heildarskipulags fyrir svæðið og að hefja megi
uppbyggingu á svæðinu á grundvelli þeirrar
vinnu.
Í framhaldi af þessari vinnu fannst mér alveg
ómögulegt að hætta að vinna áfram að málum. Við
höfðum verið ansi aðhaldssöm varðandi styrkinn
sem við fengum, þrátt fyrir að veita há verðlaun
til vinningshafa. Það voru því enn til 5 milljónir
króna í sjóðnum. Þeim var varið til að vinna
deiliskipulag fyrir Geysissvæðið. Landmótun
fékk verkið og nú liggur fyrir niðurstaða þeirrar
vinnu. Enn meira samtal átti sér stað og aðilar að
mestu leyti sáttir.
Í dag er staðan sú að matsnefnd hefur
eignarhaldsmálin í sínum höndum. Hún er að vinna
við að meta verðgildi svæðisins og aðilar verða
allir að samþykkja niðurstöðu matsnefndarinnar.
Vonandi fæst niðurstaða í þá vinnu sem fyrst
svo hægt verði að hefja vinnu við uppbyggingu
hverasvæðisins og nágrennis.