Litli Bergþór - 01.07.2017, Blaðsíða 35
Litli-Bergþór 35
Ingólfur og Sigrún á Engi eru búin að selja eignina
og hyggjast flytja í Hveragerði í ágúst næstkom-
andi. Þau hófu uppbyggingu á garðyrkjustöðinni
Engi 1984 og hafa því rekið hana í 33 ár, en lóðin
er 5,6 ha að stærð. Um allmargra ára skeið hafa
þau einbeitt sér að lífrænni ræktun, ekki síst á
kryddjurtum. Lífræni markaðurinn sem þau hafa
rekið á sumrin hefur notið vaxandi vinsælda.
Kaupendur eru bresk hjón með tvær ungar dætur.
Þau hafa búið hérlendis í eitt ár.
Þjóðbjörg Eiríksdóttir, BS-nemi í
rafmagns- og tölvuverkfræði, hef-
ur hlotið styrk úr Minningarsjóði
Þorvalds Finnbogasonar stúdents fyrir
afburða árangur í verkfræði við Háskóla
Íslands. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir
Þorvalds, afhenti styrkinn við hátíðlega
athöfn á Litla torgi HÍ, miðvikudaginn 21.
desember 2016.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilega
nema í verkfræði við Háskóla Íslands til
framhaldsnáms í verkfræði. Nemandi
með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í
grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni.
Þjóðbjörg hlaut á sínum tíma einnig
styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði
stúdenta Háskóla Íslands vorið 2014, er hún lauk
stúdentsprófi frá ML með hæstu einkunn, sem
gefin hefur verið á stúdentsprófi frá skólanum,
9,89.
leikskólanum síðastliðið sumar og vegna þess
þurfti að henda miklu af dóti leikskólans.
Hildur María Hilmarsdóttir gjaldkeri Leik-
deildar Umf. Bisk. kom síðan færandi hendi og
færði leikskólanum 300 þúsund krónur fyrir hönd
leikdeildar Umf. Biskupstungna.
Leiklistarhópur Bláskógaskóla sýndi tvö leik-
rit í vor, annars vegar „Morð“ eftir Ævar Þór
Benediktsson og hinsvegar „Feitu mömmuna“
eftir Auði Jónsdóttur. Leikstjóri var Íris L.
Blandon. Krakkarnir sýndu glæsileg tilþrif og
var þetta hin besta skemmtun. Þetta er í annað
skipti sem Bláskógaskóli tekur þátt í Þjóðleik,
en Þjóðleikur er leiklistarhátíð ungs fólks sem er
haldin annað hvert ár og fór nú fram í fimmta sinn.
Verkefnið er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins,
menningarráða og fleiri aðila á landsbyggðinni.
Hvaða hópur ungmenna sem er getur tekið þátt
í þeim landshlutum þar sem verkefnið er í boði.
Einu skilyrðin eru að a.m.k. einn fullorðinn
einstaklingur (yfir tvítugu) leiði hópinn, að með-
limir hópsins séu nógu margir til að setja upp
leiksýningu og séu á aldrinum 13-20 ára.
Þjóðbjörg er
með þetta.
Þjóðbjörg ásamt frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Sigurjón Kristinsson læknir í Laugarási tekur á móti
hjartastuðtækinu af Helga Guðmundssyni formanni Lions.
Þórarinn Þorfinnsson og Helgi Guðmundsson
afhenda Regínu Rósu Harðardóttur leikskólastýru
myndlistavagninn frá Lions.
Lionsklúbburinn Geysir færði í mars heilsu-
gæslustöðinni í Laugarási hjartaritstæki að gjöf.
Tækið er að gerðinni Welch Allyn að verðmæti
360.000 kr. Tækið leys ir af hólmi eldra tæki sem
upp fyllti engan veginn nútímakröfur.
Einnig færði klúbburinn Leikskólanum Álfa-
borg veglegan myndlistarvagn í mars, en eins
og mörgum er kunnugt, þá kom upp mygla í