Litli Bergþór - 01.12.2014, Síða 6
6 Litli-Bergþór
Húsin í Laugarási
Ég hef áttað mig á því, við að safna saman upp-
lýsingum um sögu húsanna og fólksins í Laugarási,
hve mikið vantar til að myndin verði alveg heil. Þessi
skrif mín bera þess merki að víða eru gloppur. Sem
betur fer eru enn ofar moldu ýmsir þeir sem ýmislegt
vita og ýmsar upplýsingar er hægt að tína úr rituðum
heimildum hér og þar. Ég lít á þetta sem verk í
vinnslu og vonast til að þegar um hægist í lífinu
og ég geng með formlegum hætti inn í hóp eldri
borgara, vonandi með heilastarfsemina í viðunandi
ástandi, geti ég freistað þess að ljúka þessu verki með
einhverjum sómasamlegum hætti.
Hér eru tveir stuttir kaflar um hús í Laugarási og
fólkið sem hefur búið og býr í þeim.
SÓLVEIGARSTAÐIR 1943
(áður Gróska) stofnað 1943
1943 fengu Eiríkur Grímsson, frá Gröf í Laugardal (f.
í Skálholti 14.04. 1892, d. 26.10. 1980) og Bergþóra
Runólfsdóttir (f. 17.12. 1909, d. 03.05. 1994) ásamt
bróður Bergþóru Bergmanni Runólfssyni (d. 01.01.
1984), frá Snjallsteinshöfðahjáleigu í Landi, land þar
sem Sólveigarstaðir eru nú. Bergmann var einhleypur
og bjó hjá Ólafi Einarssyni, lækni.
Innskot: Það má telja líklegt að þetta fólk hafi
stofnað þetta býli nokkru fyrir uppgefið ártal, þar sem
þau eru búin að byggja íbúðarhús þegar dóttir þeirra
fellur í lækinn í júni 1943.
Eiríkur og Bergþóra byggðu sér hús niðri við
hverasvæðið og það rann nokkuð vatnsmikill heitur
lækur rétt fyrir neðan húsið. Þau voru ekki búin að vera
þarna lengi þegar ung dóttir þeirra, Guðrún (f. 03.08.
1940, d. 16.06. 1943) (3ja ára) féll í lækinn (í júní
1943) og lést skömmu síðar af brunasárum. Í kjölfar
þess fluttu hjónin burt og seldu býlið Skaftfellingi sem
Guðmundur hét, en hann dvaldi þar ekki lengi. Hann
seldi síðan hlutafélaginu Grósku, sem var stofnað
1945 og tengdist Náttúrulækningafélaginu.
Vorið 1946 kemur fram að félagið á fjögur gróðurhús
í Laugarási og fær þaðan grænmeti. Það má telja
líklegt að ræktandinn hafi verið Skúli Magnússon, en
hann hafði keypt Lemmingsland haustið áður. Hann
Höfundur:
Páll M. Skúlason
Sólveigarstaðir 1965. Ljósmyndari Ingibjörg Bjarnadóttir.