Morgunblaðið - 03.09.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.09.2018, Blaðsíða 6
EVRÓPULEIKUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Þetta var mjög góður leikur af okk- ar hálfu. Við mættum mjög ákveðnir til leiks og náðum strax góðum tök- um á honum. Við stjórnuðum hrað- anum mestallan tímann, að und- anskildum nokkrum mínútum í seinni hálfleik og þetta var fyrst og fremst frábær liðssigur hjá okkur,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH, í samtali við Morg- unblaðið í gær eftir fjögurra marka sigur liðsins gegn króatíska liðinu Dubrav í EHF-bikarnum í hand- knattleik í Zagreb í Króatíu í gær. Leiknum lauk með 33-29-sigri Hafnfirðinga en jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en FH var með forystu þegar flautað var til hálfleiks, 16:12. Króatarnir jöfnuðu metin í 22:22 í síðari hálfleik en þá tók Halldór leikhlé og sigldu hans menn fram úr á lokakaflanum. Þeir Birgir Már Birgisson og Einar Rafn Eiðsson voru atkvæðamestir í liði FH með sjö mörk hvor og þeir Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Ágúst Birgisson skoruðu fimm mörk hvor. Mikill hiti í Zagreb „Í heild var þetta frábær sigur hjá okkur við erfiðar aðstæður í Króatíu. Það var mjög heitt í höllinni og þetta voru öðruvísi aðstæður en menn eru vanir. Við tókum leikhlé í stöðunni 22:22 og endurskipulögðum okkur aðeins. Við vissum að þeir myndu koma með áhlaup á okkur, líkt og þeir gerðu í fyrri hálfleik og við gerð- um nokkur klaufamistök í seinni hálfleik og hleyptum þeim þannig inn í leikinn aftur. Eftir leikhléið sigum við fram úr þeim með klókindum og Birkir varði að sama skapi mjög vel í markinu. Við skoruðum auðveld mörk á þá í lokin og það skildi liðin að í leikslok. Það er komin góð reynsla í hópinn og strákarnir héldu vel út all- an leikinn og ég er virkilega ánægður með hvernig nýju leik- mennirnir komu inn í þetta. Við er- um búnir að vera tiltölulega stutt saman og spila- mennskan var því framar vonum.“ Síðari leikur liðanna fer fram í Kaplakrika laug- ardaginn 8. september og segir Hall- dór að einvígið sé langt frá því að vera búið. Dubrav er í þriðja sæti króatísku úrvalsdeildarinnar og telur þjálfari Hafnfirðinga að Króatarnir hafi mætt með ákveðið vanmat inn í fyrri leikinn í Zagreb. Króatarnir fljótir að refsa „Það halda allir að við séum að fara klára seinni leikinn á þægilegan hátt en það má ekki gleymast að Króatarnir eru með hörkulið. Du- brava er í þriðja sæti króatísku úr- valsdeildarinnar og sú deild er mjög sterk. Við munum undirbúa okkur vel fyrir seinni leikinn og liðin þekkj- ast betur núna. Það er bara hálf- leikur í einvíginu og það er hellingur eftir af þessu ennþá. Við þurfum að vinna vel í þeim hlutum sem við gerð- um vel úti í Króatíu og svo eru líka hlutir sem við þurfum að laga. Við sáum það í leiknum ytra að þeir eru fljótir að refsa, þegar að menn tapa boltanum, og þetta verður mjög áhugaverð viðureign. Ég held að það hafi komið þeim á óvart hversu sterkir við vorum. Þeir vissu það fyr- irfram að við vorum búnir að missa fjóra leikmenn í atvinnumennsku og kannski voru þeir með það á bak við eyrað. Króatarnir munu mæta mjög vel undirbúnir í leikinn í Hafnarfirði og við þurfum að eiga algjöran topp- leik til þess að klára dæmið,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon enn- fremur í samtali við Morgunblaðið í gær. FH sló Króatana út af laginu  Einvígið langt frá því að vera búið  Mæta dýrvitlausir til leiks í Hafnarfjörðinn Halldór Jóhann Sigfússon 6 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018 Á SELFOSSI Guðmundur Karl sport@mbl.is Selfyssingar eru í nokkuð góðri stöðu eftir fyrri leik sinn gegn Dragunas frá Litháen í 1. umferð EHF-bikarsins í handbolta. Liðin mættust í Iðu á Selfossi á laug- ardagskvöld þar sem Selfoss hafði sex marka sigur, 34:28, en þeir vín- rauðu leiddu af öruggi allan tím- ann. Nýr heimavöllur Þetta var fyrsti opinberi leikur Selfoss á sínum nýja heimavelli í Iðu og er óhætt að segja að stemn- ingin hafi verið mjög góð, þó að áhorfendapallarnir hafi ekki verið fullskipaðir. Fyrsti Evrópuleikur Selfyssinga í 24 ár vakti margar skemmtilegar minningar frá gull- aldarliði Selfoss en nú voru það synirnir sem höfðu tekið við kefl- inu. Þeir áttu líka góðan leik, bæði Einar Sverrisson og Hergeir Grímsson, sem báðir hafa alist upp við reynslusögur feðra sinna. Nýr markvörður Selfyssinga, Pa- wel Kiepulski, átti stórleik í fyrri hálfleik og varði samtals 16/1 skot í leiknum. Hann átti margar góðar markvörslur og stöðvaði Litháana á lykilaugnablikum. Haldi hann sínu striki í vetur mun hann lækna hausverkinn sem Selfyssingar höfðu yfir markvörslunni á síðasta tímabili. Þurfa að hafa varann á Selfoss hafði góð tök á leiknum allan tímann og ef gestirnir gerðu áhlaup náðu heimamennirnir alltaf að svara fyrir sig. Staðan í leikhléi var 17:13 en munurinn varð mestur níu mörk í seinni hálfleik, 28:19. Dragunas minnkaði muninn niður í fjögur mörk í kjölfarið en Selfyss- ingar héldu haus og náðu að auka forskotið á lokamínútunum. Góður sigur hjá Selfyssingum en óvíst að sex marka munur dugi til því sagan sýnir að sveiflan getur verið mikil á milli Evrópuleikja. Dragunas spil- aði fínan handbolta á köflum og Selfyssingar þurfa að hafa varann á í seinni leiknum í hafnarborginni Klaipeda næstkomandi laugardag. Litháarnir eru líkamlega sterkir og með snögga hornamenn en mark- verðir liðsins náðu sér ekki á strik framan af leiknum. Um leið og markvarslan small og þeir fengu stöðvanir í vörninni áttu þeir nokkrar leiftursóknir fram sem skiluðu mörkum. Morgunblaðið/Eggert Öflugur Pawel Kiepulski, hinn nýi markvörður Selfyssinga, lokar hér markinu fyrir einum Litháanum og stóð sig mjög vel í leiknum. Minningarnar streymdu fram Selfoss, EHF bikar karla, fyrri leikur, laugardaginn 1. september 2018. Gangur leiksins: 4:2, 7:4, 10:8, 12:8, 15:10, 17:13, 20:15, 24:17, 26:19, 30:22, 30:26, 34:28. Mörk Selfoss: Einar Sverrisson 8, Árni Steinn Steinþórsson 7, Hergeir Grímsson 6, Haukur Þrastarson 5, Atli Ævar Ingólfsson 5, Guðni Ingv- arsson 2, Elvar Örn Jónsson 1. Varin skot: Pawel Kiepulski 16/1, Helgi Hlynsson 1/1. Utan vallar: 10 mínútur. Mörk Dragunas: Gabrielus Virbaus- kas 5, Lukas Juskenas 4, Modestas Vaitekunas 4, Arvydas Bucius 3, Kar- olis Bliuvas 3/2, Karolis Stropus 3, Eyebe Romeo 2, Laurynas Simon- avicius 2, Gintaras Cibulskis 1, Deivi- das Virbauskas 1. Varin skot: Maxym Voliuvach 11/2, Benediktas Pakalniskis 1. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Florian Hofer og Andreas Schmidhuber, Austurríki. Áhorfendur: 309. Selfoss – Dragunas 34:28  Nýi maðurinn í markinu átti stórleik  Seinni leikurinn ytra gæti reynst erfiður EHF-bikar karla 1. umferð, fyrri leikir: Dubrava – FH....................................... 29:33 Selfoss – Klaipeda Dragunas .............. 34:28 West Wien – Limburg ......................... 26:25  Viggó Kristjánsson skoraði 7 mörk fyrir West Wien, Ólafur Bjarki Ragnarsson 3 og Guðmundur Hólmar Helgason 1. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið. Þýskaland Ludwigshafen – Kiel........................... 19:26  Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki í leikmannahópi Kiel. Alfreð Gíslason þjálfar liðið. H-Burgdorf – Bergischer .................. 29:26  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 8 mörk fyrir Bergischer. Erlangen – Gummersbach ................. 30:22  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen. B-deild: Ferndorf – Lübeck-Schwartau.......... 27:17  Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði 3 mörk fyrir Lübeck-Schwartau. Nordhorn – Hüttenberg .................... 34:27  Ragnar Jóhannsson skoraði 3 mörk fyrir Hüttenberg. Danmörk Mors-Thy – Ribe-Esbjerg ................... 29:31  Rúnar Kárason skoraði 5 mörk fyrir Ribe-Esbjerg og Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki fyrir Ribe-Esbjerg. Tvis Holstebro – Skanderborg .......... 37:30  Vignir Svavarsson var ekki í leikmanna- hópi Holstebro. GOG – Skjern ....................................... 35:34  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 4 mörk fyrir GOG.  Tandri Már Konráðsson var ekki í leik- mannahópi Skjern. Björgvin Páll Gústavs- son varði mark Skjern.varði X skot í marki liðsins. Esbjerg – Herning-Ikast .................... 25:23  Rut Jónsdóttir var ekki í leikmannahóp Esbjerg. Ajax – Randers .................................... 17:18 Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 1 mark fyr- ir Ajax. Ungverjaland Pick Szeged – Budakalász ................. 29:20  Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 3 mörk fyrir Pick Szeged. Frakkland Toulon – Bourg de Peage................... 28:25  Mariam Eradze skoraði ekki fyrir Tou- lon.   Belgía Lokeren – Waasland-Beveren ............... 1:0  Ari Freyr Skúlason sat allan tímann á varamannabekk Lokeren. Sviss Luzern – Grasshoppers .......................... 2:1  Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik- mannahópi Grasshoppers. Lugano – Zürich ..................................... 1:0  Guðlaugur Victor Pálsson fór af velli á 71. mínútu hjá Zürich. Ungverjaland Ferencváros – Vidi .................................. 2:2  Kjartan Henry Finnbogason kom inn á sem varamaður hjá Ferenváros á 81. mín. Grikkland Aris Saloniki – Larissa............................ 2:0  Ögmundur Kristinsson lék allan leikinn í marki Larissa. Danmörk AGF – Vendsyssel.....................................1:1  Björn Daníel Sverrisson sat allan tímann á varamannabekk AGF.  Jón Dagur Þorsteinsson kom inn á sem varamaður hjá Vendyssel á 79. mínútu. Bröndby – Midtjylland ............................ 2:2  Hjörtur Hermannsson sat allan tímann á varamannabekk Bröndby. SönderjyskE – Hobro.............................. 1:1  Eggert Gunnþór Jónsson var ekki í leik- mannahópi SönderjyskE. Staða efstu liða: Köbenhavn 8 6 1 1 18:6 19 Midtjylland 8 4 3 1 16:7 15 Bröndby 8 4 2 2 12:9 14 AaB 8 4 2 2 7:8 14 B-deild: Næstved – Roskilde................................. 3:1  Frederik Schram lék allan leikinn í marki Roskilde. Lyngby – Viborg...................................... 0:5  Ingvar Jónsson lék allan leikinn í marki Viborg. Svíþjóð AIK – Häcken........................................... 3:0  Haukur Heiðar Hauksson sat allan tím- ann á varamannabekk AIK. Brommapojkarna – Malmö .................... 0:3  Kristján Flóki Finnbogason lék allan leikinn í liði Brommapojkarna.  Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn í liði Malmö. Staða efstu liða: AIK 20 14 6 0 38:11 48 Hammarby 20 13 4 3 40:23 43 Norrköping 20 11 6 3 31:19 39 Malmö 20 11 4 5 36:21 37 KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.