Morgunblaðið - 27.09.2018, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 27.09.2018, Qupperneq 51
Heimabakað brauð er mögulega það lekkerasta sem hægt er að bjóða upp á auk þess sem það þykir sérlega vandað að senda börnin með þannig veislukost í nesti. Þannig getur hefðbundið meðal- foreldri skorað fjöldamörg stig með því einu að henda í nokkrar bollur og hafa gaman af. Það er jafnvel hægt að gera leikinn enn einfaldari með því að kaupa tilbúið bolludeig frá TORO úti í næstu búð en svo er hægt að taka leikinn á næsta stig og breyta bollunum í hvað sem er. Þannig er hægt að gera fylltar bollur, kryddbollur, kanilsnúða, pítsusnúða eða skinku- horn – allt úr sömu grunnblönd- unni. Ekki þykir börnunum heldur leiðinlegt að fá að taka þátt í gleðinni og því má færa sannfær- andi rök fyrir því að þetta sé með snjallari afþreyingarmöguleikum sem í boði eru. Fylgið leiðbeiningum utan á pakkn- ingunum (hér erum við að miða við að notað sé bollumix úr búð). Þegar komið er að því að hnoða deigið í bollur skulið þið fletja það út. 100 g brætt smjör 5 msk. sykur 2 msk. kanill Penslið smjörið á deigið og sáldr- ið síðan sykri og kanil yfir. Rúllið deiginu upp í fallega lengju og skerið síðan í sneiðar og leggið á ofnplötuna. Bakið samkvæmt leið- beiningum og munið að mynda her- legheitin og deila á samfélags- miðlum með uppgerðarhógværð og krúttlegu millumerki. Kanntu brauð að baka? Ilmandi gleði Það er fátt frábærara en ilmurinn af nýbökuðu bakkelsi. Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Hér gefur að líta súkkulaðiköku sem er svo einföld að það tekur ná- kvæmlega 180 sekúndur að búa hana til. Það þýðir að hægt er að færa rök fyrir því að þetta sé í senn einfaldasta og fljótlegasta súkku- laðikaka í heimi. Súkkulaðið og fros- in hindberin setja síðan punktinn yfir i-ið. Ylfa er einn af þekktustu og fær- ustu matreiðslumönnum landsins og hefur staðið í brúnni á veitinga- staðnum Kopar frá upphafi – bæði sem yfirkokkur og eigandi. Einfaldasta súkkulaðikaka í heimi 1 dl súkkulaði 1 egg 1 skeið sykur 1 kúfuð skeið smjör 3 frosin hindber Setjið megnið af súkkulaðinu og smjör í bolla og inn í örbylgjuofn í 60 sekúndur. Hrærið þar til allt er bráðnað. Bætið eggi og sykri við og hrærið. Setjið aftur inn í örbylgju- ofninn í 60 sekúndur. Setjið afganginn af súkkulaðinu yfir og leyfið að bráðna á heitri kök- unni og skreytið með frosnum hind- berjum. Einfaldasta súkkulaðikaka í heimi Einfaldleikinn er oft erfiðastur eins og hefur margs- annað sig í hinni frábæru kokkaáskorun Fimm eða færri sem lesendur Matarvefsins og Morgunblaðs- ins hafa skemmt sér yfir undanfarna mánuði. Áskorunin felst í því að fá meistarakokka landsins til að galdra fram uppskrift sem er svo einföld – en þó bragðgóð – að örgustu eldhússkussar ættu að ráða við hana. Nýjasti áskorandinn er enginn annar en Ylfa Helgadóttir, þjálfari íslenska kokkalandsliðs- ins, og hún galdrar hér fram rétt sem er svo ein- faldur og yndislegur að það er ekki annað hægt en tárfella ögn af gleði. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Meistarataktar Það er ekki á allra færi að galdra fram gúmmelaði úr fimm hráefnum en það gerir Ylfa Helgadóttir án þess að blikna. Dásamlegur einfaldleiki Hvað er betra en að skella í eina svona dásemdar bollaköku yfir góðri bíómynd eða á köldu haustkvöldi?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.