Fréttablaðið - 04.03.2019, Síða 4

Fréttablaðið - 04.03.2019, Síða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið ÁRA5ÁBYRGÐ FIAT ATVINNUBÍLAR FIAT DUCATO Verð frá 4.024.194 án vsk. 4.990.000 m/vsk. FIAT TALENTO L2H1 Verð frá 3.298.387 án vsk. 4.090.000 m/vsk. FIAT DOBLO Verð frá 2.225.806 án vsk. 2.760.000 m/vsk. FIAT FIORINO Verð frá 1.854.032 án vsk. 2.299.000 m/vsk. ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT • ÞVERHOLTI 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 • WWW.FIATPROFESSIONAL.IS WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 STJÓRNMÁL Framtíðarnefnd for- sætisráðherra óskar eftir umsögn- um frá almenningi um hvað hann telji framtíðina bera í skauti sér á ýmsum sviðum samfélagsins og hvaða aðgerða stjórnvöld geti gripið til í því skyni að undirbúa þjóðina betur fyrir þær. „Við erum að leita eftir því hvaða breytingum mismunandi hópar í samfélaginu geri ráð fyrir á kom- andi áratugum og hvaða aðgerða hægt væri að grípa til núna til að við séum betur undirbúin sem þjóð,“ segir Smári McCarthy, formaður framtíðarnefndarinnar sem skipuð er þingmönnum úr öllum flokkum. Meðal spurninga sem nefndin veltir upp í samráðsgátt stjórn- valda er hvaða þróun sé að eiga sér stað í samfélaginu og hvaða áhrif sú þróun muni hafa á fjárhagsstöðu ríkisins á næstu 15 til 20 árum. „Það er alveg ljóst að enginn getur spáð fyrir um framtíðina, en það eru samt ágætis líkur á því að sam- eiginlegur skilningur fólks úr mis- munandi áttum eigi eftir að ríma við komandi framtíð að einhverju leyti,“ segir Smári og bætir við: „Ef við getum ekki komist hjá því að hafa rangt fyrir okkur er best að við höfum rangt fyrir okkur á eins gagnlegan hátt og hægt er. Við erum því að leita til sérfræðinga og ýmissa samtaka og stofnana, ásamt því að spyrja almenning álits. Svo vonum við að tvennt gerist í kjölfarið: annars vegar vakni upp umræða um mikilvægi þess að hafa skýra framtíðarsýn og hins vegar muni svörin hjálpa okkur að finna út hvaða möguleika við höfum, hvaða hættur leynast og hvaða aðgerðir eru heppilegastar til að tryggja okkur sem besta hugsan- lega framtíð.“ Framtíðarnefndin hefur skipt verkefnum sínum í þrjár lotur og í fyrstu lotunni leitar hún eftir hug- myndum almennings um fyrsta viðfangsefnið sem lýtur að þróun samfélagsins á sviðum atvinnu-, umhverfis-, byggða- og lýðfræði- þátta og hvernig áhrif þróunin getur haft á fjárhagsstöðu ríkisins. Næstu lotur munu snúa annars vegar að loftslagsmálum og hins vegar jöfn- uði og lífsgæðum. Auk samráðs við almenning aflar nefndin upplýsinga frá sérfræðing- um á hverju sviði og fundar með sérfræðingum bæði innlendum og erlendum. „Markmiðið er að við sendum frá okkur stuttar skýrslur um hverja og eina verkefnalotu, með tillögum um þá sameiginlegu framtíðarsýn sem verður til í þessu samráði.“ Hugmyndin að framtíðarnefnd hefur oft verið viðruð á Íslandi, sér- staklega í kjölfar efnahagshrunsins og í kjölfar þess að áhrif loftslags- breytinga urðu ljósari. Framtíðar- nefndir eru starfandi víða í Evrópu og hafa Íslendingar sem haldið hafa hugmyndinni á lofti einkum bent til framtíðarnefndar finnska þingsins. „Þetta gæti orðið ein af nefndum þingsins, en fyrst þurfum við að sanna að svona nefnd geti gert gagn og eigi rétt á sér,“ segir Smári. Umsagnir til nefndarinnar eru sendar í samráðsgátt stjórnvalda á vef Stjórnarráðsins. Frestur til að senda umsögn rennur út 10. mars. adalheidur@frettabladid.is Óska umsagna um framtíðina Framtíðarnefnd forsætisráðherra býður almenningi til samráðs um framtíðina. Fyrsta lota stendur nú yfir hjá nefndinni. Hún spyr um áhrif þróunar á ýmsum sviðum á fjárhagsstöðu ríkisins til framtíðar. Ef við getum ekki komist hjá því að hafa rangt fyrir okkur er best að við höfum rangt fyrir okkur á eins gagnlegan hátt og hægt er. Smári McCarthy, formaður fram- tíðarnefndar forsætisráðherra Hvaða þróun á sér stað í samfélaginu og hver verða áhrif þess á fjárhag ríkisins? er spurt. NORDICPOHOTS/GETTY SAMFÉLAG Sameining prestakalla á Austurlandi og Vestfjörðum var samþykkt á framhaldskirkjuþingi um helgina. Hólmavíkur- og Reyk- hólaprestaköll sameinast í Breiða- fjarðar- og Strandaprestakalli. Þá verður til nýtt Austfjarða- prestakall með sameiningu Djúpa- vogs-, Heydala-, Kolfreyjustaðar-, Eskifjarðar- og Norðfjarðarpresta- kalla. Þá verður Saurbæjarpresta- kall í Hvalfjarðarsveit aflagt. – sar Prestaköllum landsins fækkar STJÓRNMÁL „Hjartað slær með Evr- ópu“ er yfirskrift stjórnmálaálykt- unar Viðreisnar sem samþykkt var á milliþingi f lokksins á laugardag. Í ályktuninni segir að besta og var- anlegasta kjarabótin fælist í lægri vöxtum og lægra matvælaverði. Viðreisn telur aðildina að EES hafa skilað þjóðinni ómetanlegum ávinningi sem ekki megi glutra niður vegna „uppgangs afturhalds- afla“. Rökrétt sé að ganga í ESB. – sar Hjartað slær með Evrópu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar Jón Þröstur Jónsson LÖGREGLUMÁL Björgunarsveit í Dublin leitaði í gær að Jóni Þresti Jónssyni á því svæði þar sem síðast sást til hans í borginni. Jóns Þrastar hefur verið saknað í rúmar þrjár vikur, en hann var í pókerferð í Dublin ásamt unnustu sinni þegar hann hvarf. Lögreglu hefur borist f jöldi ábendinga um ferðir Jóns og er leigubílstjóra, sem sagður er hafa ekið Jóni, nú meðal annars leitað. Davíð Karl Wiium, bróðir Jóns Þrastar, segir við Fréttablaðið að næstu skref séu óráðin. Hluti fjöl- skyldunnar er enn í Dublin. „Maður heldur alltaf í vonina og það er jákvætt að björgunarsveitin hafi ekki fundið hann á þessu svæði,“ segir Davíð Karl. Fjölskylda Jóns hefur kallað eftir skipulagðri leit að honum. „Okkur finnst auðvitað ergilegt að það hafi ekki verið ráðist í svona leit miklu fyrr, því hún gerir okkur auðveldara fyrir. Það eru samt aðrar leikreglur þarna úti og þetta hafðist loksins,“ segir Davíð. Fjölskyldumeðlimir hafa rætt við írska fjölmiðla og segir Davíð bolt- ann hafa farið að rúlla eftir það. „Við urðum mjög áberandi í fjölmiðl- unum og í kjölfarið kom mikið af góðum vísbendingum,“ segir Davíð. Ábendingarnar hlaupa að sögn Davíðs á tugum. Ein ábendinganna sem lögregla skoðar nú er að Jón Þröstur hafi tekið leigubíl eftir að hann hvarf. Ábendingin kom frá einstaklingi sem sagði leigubílstjóra hafa sagt sér frá samskiptum sínum við Jón Þröst. „Það er verið að vinna að því að finna þennan mann. Þetta kom frá aðila sem heyrði þetta frá leigu- bílstjóranum sem hefur kannski ekki haft vit á því að hafa samband við lögreglu,“ segir Davíð. „Það er kominn meiri kraftur í þetta og með þessum ábendingum myndi ég halda að á næstu dögum verði eitthvað að frétta.“ – bsp Leita leigubílstjóra sem talinn er hafa ekið Jóni Þresti í Dublin 4 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -D 3 9 8 2 2 7 8 -D 2 5 C 2 2 7 8 -D 1 2 0 2 2 7 8 -C F E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.