Fréttablaðið - 04.03.2019, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 04.03.2019, Blaðsíða 37
Manchester City komið með örlögin í eigin hendur Lærisveinar Pep Guardiola létu meiðslavandræði ekki stöðva sig gegn Bournemouth á útivelli. Það er ekki að sjá neina bikarþynnku hjá leikmönnum Manchester City sem hafa unnið tvo leiki í röð og yfirspilað andstæðinga sína þrátt fyrir að sakna nokkurra lykilleikmanna. Draumurinn um fernuna sem Guardiola vill ekki ræða er áfram í sjónmáli. Leikmaður helgarinnar Romelu Lukaku reyndist hetja Manchester United þegar hann skoraði sigurmarkið á 89. mínútu í 3-2 sigri á Southampton um helgina. Með því tókst Manchester United að vinna tíunda leikinn af síðustu tólf undir Ole Gunnar Solskjær og saxa á forskot Tottenham í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Lukaku átti erfitt uppdráttar í byrjun tímabilsins, sérstaklega á Old Trafford en hann hefur nú skorað fjögur mörk í síðustu tveimur leikjum og er að öðlast sjálfstraust undir stjórn Sol- skjærs. Hann sýndi liprar hreyfingar og af- greiddi færin vel í mörkunum tveimur, þá sérstaklega í því síðara sem kom með skoti frá vítateiglsínunni. Leikmenn Man. City fagna með Mahrez í leikslokum á Vitality-vellinum. Með sigrinum komst City upp fyrir Liverpool og eftir jafntefli þeirra rauðklæddu í gær er City skyndilega með pálmann í höndunum. NORDICPHOTOS/GETTY Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum á Englandi Everton Gylfi Þór Sigurðsson Lék allan leikinn í marka- lausu jafntefli gegn Liverpool á heimavelli. Barðist vel og átti lipra takta. Cardiff City Aron Einar Gunnarsson Byrjaði leikinn og lék allar 90 mínúturnar þegar Cardiff tapaði 0-2 gegn Úlfunum. Reading Jón Daði Böðvarsson Ekki í hóp annan leikinn í röð hjá Reading vegna meiðsla á baki í sigri Reading. Aston Villa Birkir Bjarnason Kom ekkert við sögu af bekknum í öruggum 4-0 sigri Aston Villa gegn Ipswich á heimavelli. Burnley Jóhann Berg Guðm. Kom inn af bekknum í hálfleik en gat ekki komið í veg fyrir 1-3 tap gegn Crystal Palace. BOLLA KJÚLLA? FR JÁLSAR ÍÞRÓTTIR Hafdís Sig- urðardóttir, sem keppir fyrir hönd UFA, lenti í 16. sæti í undankeppn- inni í langstökki á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum innanhúss á laugardaginn í Glasgow en þetta er í fjórða sinn sem Hafdís tekur þátt í mótinu. Hafdís stökk lengst 6,34 metra og vantaði fimmtán sentímetra til að komast meðal átta efstu í undan- keppninni sem kepptu til úrslita í gær en það hefði jafnað besta stökk hennar til þessa á árinu. Hafdís lenti í vandræðum í byrjun því fyrsta stökkið var dæmt ógilt og segir hún að það hafi truflað hana örlítið. „Ég vissi það fyrirfram að ég þyrfti að eiga minn besta dag til að komast áfram en hlutirnir voru ekki að smella hjá mér. Fyrsta stökkið var dæmt ógilt og það kom manni úr takti. Maður finnur fyrir smá stressi yfir að það séu bara tvö stökk eftir en svona eru íþróttirnar. Það gengur bæði vel og illa en ég fer ánægð heim eftir þessa reynslu,“ segir Hafdís. Í öðru stökkinu fór Hafdís 6,25 metra og bætti sig um níu milli- metra í lokastökkinu en það dugði ekki til. „Miðað við allt í undirbúningn- um var þetta ágætt þótt ég viti að ég geti stokkið lengra. Það kom ekki akkúrat þarna og á stórmótum þarf allt að ganga upp. Ég veit að ég á heima með þeim bestu en ég þarf að komast á f leiri stórmót og stimpla mig inn. Það er ekki skortur á því að trúa á verkefnið.“ – kpt Það þarf allt að ganga upp á svona dögum Fyrsta stökk Hafdísar um helgina var dæmt ógilt sem að hennar sögn truflaði undirbúninginn örlítið fyrir næstu stökk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SKÍÐI Skíðagöngukappinn Snorri Eyþór Einarsson náði í gær einum besta árangri sem íslenskur kepp- andi í skíðagöngu hefur náð þegar hann endaði í 18. sæti á HM í alpa- greinum í 50 kílómetra skíðagöngu. Mótinu lauk í gær í Seefeld í Austur- ríki og fékk hann 16.04 FIS-stig sem þýðir að hann er kominn með 50,03 stig í heildina. Snorri var númer 52 á ráslist- anum sem fór eftir heimslista FIS sem þýðir að Snorri var í 52. sæti meðal keppenda. Norð- maðurinn Hans Christer Holund náði forskotinu snemma og var í sérf lokki með Alexander Bolshunov þar á eftir en það voru samkvæmt Skíðasam- bandi Ísland um 20 manns í næsta holli, þar á meðal Snorri og fór svo að hann lenti í 18. sæti á 1:51.14,9, rúmri mínútu á eftir Holund en innan við 20 sekúndum á eftir Sjur Roethe sem tók bronsverð- launin. „Þetta gekk vel og ég er afar sátt- ur. Það komu smá hnökrar eftir 15 kílómetra og svo aftur eftir 30 en það er frábært að ná 18. sætinu,“ sagði Snorri í samtali við Skíðasam- bandið eftir gönguna í Seefeld í gær. „Þetta gekk bara allt vel, við vorum búnir að setja upp áætlun sem stóðst. Það tókst að halda í við hópinn og með því tókst mér að safna orku fyrir loka- sprettinn,“ sagði Snorri um besta árangur sinn frá upp- hafi. „Það er undir mér komið að festa mig í sessi þarna. Ég vissi að á góðum degi gæti ég náð þessum árangri.“ – kpt Snorri í 18. sæti í Seefeld SnorrI Eyþór Einarsson Draumurinn um fernuna lifir Fyrir utan eitt óvænt tap gegn New- castle hefur Manchester City verið á miklu skriði undanfarnar vikur. Níu leikir í síðustu tíu leikjum í deildinni ásamt því að liðið er komið í átta liða úrslit enska bikars- ins og í góðri stöðu eftir fyrri leik- inn í sextán liða úrslitum Meistara- deildar Evrópu. Tuttugu ár eru liðin síðan Man- chester United, nágrannar þeirra, urðu eina liðið í sögunni til að vinna þrennu en Manchester City gerir nú harða atlögu að því að bæta met þeirra. kristinnpall@frettabladid.is Þeir áttu ekki eitt skot á markið sem er ótrúlegt því þetta er afar erfiður völlur að koma á. Pep Guardiola S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M Á N U D A G U R 4 . M A R S 2 0 1 9 0 4 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -B A E 8 2 2 7 8 -B 9 A C 2 2 7 8 -B 8 7 0 2 2 7 8 -B 7 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.