Fréttablaðið - 04.03.2019, Qupperneq 44
SVO ER ÉG LÍKA BARA
FÁRÁNLEGA VEL GIFT,
DAVÍÐ ARNAR, MAÐURINN
MINN, ER DÁSAMLEGUR HÚS-
KARL SEM ELSKAR AÐ VERA
HEIMA, ELDA OG DÚLLA. ÉG ER
BARA EKKI ÞANNIG OG HEF
ALDREI VERIÐ.
Þegar ég hætti sem bæjar-fulltrúi hafði ég starfað sem leiðsög umaður hjá Tröllaferðum. Það hafði ég gert meðfram pólitíkinni allt frá því
ég f lutti aftur í Hafnarfjörðinn frá
Höfn í Hornafirði. Síðasta sumar
vissi ég í raun ekkert hvað myndi
taka við hjá mér en upplifði þó
aldrei kvíða, frekar eftirvæntingu
og spennu.
Þegar ég var lítil, eða 18 og 19
ára, var ég svo heppin að fá sumar-
vinnu sem þjónn á Hótel Skaftafelli
og kynntist þar eigendunum, þeim
Önnu Maríu og Jóni. Við höfum
alltaf haldið sambandi og þau
buðu mér að koma aftur „heim“ og
leggjast á árarnar með þeim að reka
hótelið og taka þátt í breytingum.
Ég hef mjög sterkar taugar til Skafta-
fells og líður hvergi betur en að
ganga á jökli og því stökk ég á verk-
efnið og sé ekki eftir því,“ útskýrir
Margrét aðspurð út í umskiptin.
Aðspurð út í umskiptin, en Mar-
grét er þriggja barna móðir, svarar
hún: „Ég lifi tvöföldu lífi, er viku
í Hafnarfirði og viku í Skaftafelli.
Helgarnar sem ég er fyrir austan er
fjölskyldan mín dugleg að koma til
mín.
Sonur minn er orðin heimaln-
ingur hér í Freysnesi, svona eins og
kindurnar sem búa hér. Við elskum
að fara á kvöldin og taka þátt í að
gefa og eigum orðið „okkar“ kindur.
Stefán Freyr, bóndinn í Freysnesi
er með okkur í læri og ég held að
honum finnist það ógeðslega fyndið
hvað við vitum akkúrat ekki neitt
um sveitastörfin,“ segir Margrét og
hlær.
Pólitískt hjarta mitt slær fyrir
landsbyggðina
Margrét er ekki alls óvön því að
skipta um gír en hún f lutti ásamt
fjölskyldunni til Hafnar í Horna-
firði fyrir nokkrum árum þar sem
eiginmaður hennar réði sig til
starfa. „Sá f lutningur reyndist mér
erfiður, ef laust þar sem hann var
ekki á mínum forsendum og ég fór
mjög snögglega frá mínum verk-
efnum og skuldbindingum í Hafn-
arfirði. En ég sé samt alls ekki eftir
þessum tveimur árum á Höfn, því
að búa úti á landi er allt annað en að
búa á höfuðborgarsvæðinu.
Það hefur auðvitað allt sína kosti
og galla en þegar ég heyri fólk segja
að það langi að breyta til og flytja til
útlanda, þá hvet ég það til að prófa
að f lytja út á land fyrst því það er
mögnuð reynsla líka. Að kynnast
landinu sínu frá þeirri hlið og átta
sig á hvað við búum á magnaðri
eyju.“
Margrét mælir þó með því að
velja stað þar sem einhver tengsl
Ég lifi tvöföldu lífi
Margrét elskar að vera á jöklum gólandi yfir fólki um hlýnun jarðar eða að
plotta heimsyfirráð með vinum. Hér með æskuvinkonunni Svölu Björgvins.
Margrét ásamt eiginmanni sínum Davíð Arnari og dóttur þeirra Rósu.
Margrét Gauja
Magnúsdóttir hætti
sem bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði síðasta
vor og söðlaði svo
sannarlega um en nú
skiptir hún lífi sínu á
milli Hafnarfjarðar
og Skaftafells.
eru fyrir, vinir eða ættingjar og
skemmtileg verkefni. „En ætli
dýpsti lærdómurinn af því að búa í
500 kílómetra fjarlægð frá Hafnar-
firði hafi ekki verið hversu ótrú-
lega lánsöm við erum með aðgengi
að þjónustu og sérfræðingum á
höfuðborgarsvæðinu og mættum
stundum hætta að kvarta og átta
okkur á að mörg smáatriði, gera
ekki eitt aðalatriði.
Ég var á þessum tíma varaþing-
maður fyrir Kragann en eftir að ég
flutti á Höfn fór ég ekki upp í pontu
á Alþingi nema til að ræða lands-
byggðina. Það var gert nokkuð
mikið grín af mér en hjarta mitt í
pólitík slær í dag heitar fyrir lands-
byggðina og fólkið sem þar býr.“
Margrét viðurkennir að tvöfalda
lífið geti tekið á og kvöldið áður en
hún yfirgefur fjölskylduna skapi
alltaf ákveðinn kvíða. „Auðvitað
sakna ég þeirra og þau mín en þetta
gengur ennþá ágætlega og þegar ég
er heima er ég ofurmamman sem
skutlar öllum allt og bíð heima með
snúð og kakó þegar þau koma heim
úr skólanum.
Svo er ég líka bara fáránlega vel
gift, Davíð Arnar, maðurinn minn,
er dásamlegur húskarl sem elskar að
vera heima, elda og dúlla. Ég er bara
ekki þannig og hef aldrei verið. Ég
elska að vera uppi á jöklum, gólandi
yfir fólki um hlýnun jarðar eða að
plotta heimsyfirráð með vinum
mínum,“ segir Margrét ákveðin.
„Margrét Gauja, hvernig komstu
þér eiginlega hingað?“
Aðspurð út í framhaldið segist
Margrét búin að læra að taka einn
dag í einu og aldrei að segja aldrei.
„Stundum sit ég og hugsa: Margrét
Gauja, hvernig komstu þér eiginlega
hingað?“
En innra með henni berjist örygg-
is- og spennufíkillinn. „Ég fæ sirka
tvær til þrjár hugmyndir á dag og er
byrjuð að ganga með bók á mér og
skrifa þær niður. Kannski verður
eitthvað úr einhverri af þeim einn
daginn. Þangað til held ég mínu
striki og stefni á að halda áfram að
taka þátt í að gera Hótel Skaftafell
að enn betra hóteli og vinnustað,
halda áfram að gifta fólk um allt
land sem athafnastjóri hjá Sið-
mennt og skunda upp jökla. Svo er
að byrja sauðburður bráðum og ég
er að brjálast úr spennu.
Eitt er þó á langtímaplaninu
og það er að ganga á Hvannadals-
hnjúk í maí. Nú er ég búin að segja
það upphátt og það í Fréttablaðinu
og því engin leið fyrir mig að beila
á því núna.“
bjork@frettabladid.is
Margrét segir
að hún og sonur
hennar hafi
gaman af því að
fá að taka þátt í
sveitastörfunum
í Freysnesi.
4 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
0
4
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
8
-E
2
6
8
2
2
7
8
-E
1
2
C
2
2
7
8
-D
F
F
0
2
2
7
8
-D
E
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K