Fréttablaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 41
Samfélagsleg ábyrgð hefur alla tíð skipt Háskólann í Reykja-vík (HR) miklu máli. Við höfum staðið fyrir og tekið þátt í mörgum mikilvægum samfélags- verkefnum og leggjum áherslu á að virkja nemendur háskólans til að láta gott af sér leiða með ýmsum hætti,“ segir Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmda- stjóri mannauðs og gæða hjá HR. „Við reynum að ganga á undan með góðu fordæmi þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð. Okkur finnst mjög mikilvægt að vera góð fyrirmynd fyrir nemendur okkar enda erum við með fullt hús af ungu fólki sem er á leið út í atvinnulífið og við vonum að það taki sitthvað mikilvægt með sér úr HR, annað en bara prófgráðuna.“ Hún segir ganga vel að virkja bæði starfsmenn og nemendur. „Það er reynsla okkar að nem- endur séu meðvitaðri um til dæmis umhverfismál en við sem eldri erum. Í HR er líka ein- stakur hópur starfsmanna sem er tilbúinn til að vinna að verkefnum sem snúa að því að bæta samfélag okkar.“ Sem dæmi um mikilvæga þætti í samfélagslegri ábyrgð HR nefnir hún sérstaklega vinnu við jafnlaunavottun, átakið Stelpur og tækni, áherslu á samfélagsábyrgð í námskeiðum á borð við Nýsköpun og stofnun fyrirtækja og inn- gangsnámskeið í verkfræði og tæknifræði, samstarf við AIESEC stúdentasamtökin um Framadaga og geðheilbrigðisviku náms- og starfsráðgjafar. Fjarlægðu öll plastmál Um þessar mundir vinna starfs- menn og nemendur að ýmsum samfélagslegum verkefnum, að sögn Sigríðar. „Við höfum ásamt fleiri stofnunum og fyrirtækjum hér í borg skrifað undir samning við Reykjavíkurborg um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í kjölfarið settum við saman umhverfishóp sem hefur verið starfandi síðan 2016. Ætli það hafi ekki um 30-40 manns gefið kost á sér, en fljótlega varð til kjarni sem hefur síðan unnið að ýmsum umbótaverkefnum innan HR.“ Meðal verkefna hópsins má nefna átak í að draga úr plastnotk- un, til dæmis með því að fjarlægja plastmál við allar vatns- og kaffi- vélar. „Þetta var töluvert átak því hér eru um 300 starfsmenn og nær 4.000 nemendur sem þurftu þá að venja sig á að koma með vatns- flöskur eða kaffimál að heiman. Við þurftum líka að gera ýmsar breytingar í kjölfarið, til dæmis að fjárfesta í nægu magni af bollum og glösum, fjölga uppþvotta- vélum og starfsfólki.“ Umhverfis- hópurinn hefur einnig beitt sér fyrir að sorpflokkunarmál væru tekin föstum tökum. „Við höfum sett upp betri merkingar og leið- beiningar og hvatt til aukinnar flokkunar innan skólans. Við fjar- lægðum ruslafötur af öllum skrif- stofum, notum eingöngu flokk- unartunnur og fjölguðum stöðum þar sem við erum með tunnur fyrir lífrænt sorp.“ Tólf hleðslustæði til afnota HR hefur mótað sér samgöngu- stefnu og hefur síðan 2016 boðið samgöngustyrki til starfsmanna sem nýta sér umhverfisvænar leiðir til að komast til og frá vinnu. Háskólinn í Reykjavík leggur áherslu á að vera góð fyrirmynd Fyrsta árs nemar í tæknifræði og verkfræði við Háskólann í Reykjavík unnu í lok haustannar 2018 að því að útfæra ýmis atriði í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. MYND/HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK „Við reynum að ganga á undan með góðu fordæmi þegar kemur að samfélags- legri ábyrgð. Okkur finnst mjög mikil- vægt að vera góð fyrirmynd fyrir nemendur okkar,“ segir Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmda- stjóri mann- auðs og gæða hjá HR. MYND/ERNIR Háskólinn í Reykjavík leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð og hóf nýlega þátttöku í átaki Samein- uðu þjóðanna um menntun ábyrgra fram- tíðarleiðtoga. Styrkirnir hækkuðu á þessu ári auk þess sem HR var fyrsta fyrirtækið hér á landi til að bjóða starfsmönnum upp á þjónustu deilibílaþjónustunnar Zipcar á Íslandi. „Nýlega settum við upp rafmagnshleðslustöðvar við tólf bílastæði þar sem við bjóðum nemendum og starfsmönnum fría tveggja klukkustunda hleðslu. Í sumar ætlum við svo að byggja langþráð hjólaskýli á lóð háskól- ans og tryggja þannig nemendum HR betri aðstöðu fyrir reiðhjól.“ Ábyrgir framtíðarleiðtogar Síðast en ekki síst er HR, ásamt um það bil 650 háskólum um allan heim, þátttakandi í PRME (Principles for Responsible Management Education) verkefni Sameinuðu þjóðanna, sem er hluti af Global Compact-átakinu. „Við- skiptadeild reið á vaðið árið 2013 og innleiddi PRME-markmiðin sex í viðskiptadeild. Markmiðin fela í sér að háskólinn skuldbindur sig til að mennta og þjálfa framtíðarleið- toga sem hafa samfélagsábyrgð að leiðarljósi í ákvarðanatöku sinni.“ HR hefur gefið út tvær fram- vindu skýrslur í tengslum við PRME, aðra árið 2014 og hina árið 2016, en báðar hlutu þær verðlaun fyrir framúrskarandi framgangs- skýrslu á fundi PRME-samráðs- vettvangsins í New York. Árið 2017 ákváðu stjórnendur HR að innleiða PRME-markmiðin þvert á deildir háskólans. „Þá var horft til þess að ábyrg stjórnun snertir ekki bara þá sem mennta sig í viðskiptafræði og tengdum greinum því framtíðar- leiðtogar koma úr öllum fögum og fræðigreinum.“ Hún segir verkefnið gríðarstórt og háskólinn hafi því ráðið verk- efnastjóra sem leiðir innleiðingu á PRME í öllum deildum háskólans og heldur utan um og mælir þann árangur sem hefur náðst, sem er ekki síður mikilvægt. „Við erum núna á lokametrunum með þriðju framvinduskýrslu PRME og þá fyrstu sem nær yfir allar akadem- ískar deildir HR, Opna háskólann og Háskólagrunn HR.“ PRME-markmiðin sem HR vinnur eftir 1. Við munum leitast við að mennta nemendur okkar með það að leiðarljósi að þeir verði leiðandi í uppbyggingu á sjálfbærni í við- skiptum ásamt því að þeir geti unnið að heildrænum og sjálfbærum lausnum á vandamálum framtíðarinnar. 2. Við munum leitast við að samtvinna hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og samfélagsábyrgðar við gerð námsskrár, námsefnis og í kennslufræðum skólans. 3. Við munum bjóða upp á námsefni, kennsluaðferðir og aðstæður sem gera nemendum kleift að efla færni og skilning á því hvað það er að vera ábyrgur stjórnandi. 4. Við munum leggja áherslu á að stunda rannsóknir sem auka skilning á bæði hlutverki sem og mögulegum áhrifum fyrirtækja og stofn- ana á þróun samfélags, umhverfis og efnahagslegra gilda. 5. Við munum auka samskipti og samstarf við stjórnendur fyrir- tækja í þeim tilgangi að auka skilning okkar á þeim samfélagslegu og umhverfislegu áskorunum sem þau standa frammi fyrir ásamt því að þróa með þeim árangursríkar leiðir til að takast á við þessar áskoranir. 6. Við munum standa fyrir og styðja við gagnrýna umræðu á meðal kennara, nemenda, fyrirtækja, stofnana, stjórnvalda, fjölmiðla og annarra áhugasamra aðila í samfélaginu um mikilvæg málefni tengd sjálfbærni og samfélagsábyrgð. KYNNINGARBLAÐ 13 F I M MT U DAG U R 7 . M A R S 2 0 1 9 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA 0 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 F -C 5 1 8 2 2 7 F -C 3 D C 2 2 7 F -C 2 A 0 2 2 7 F -C 1 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.