Fréttablaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 53
Þorvaldur Gylfason Í DAG Reykjavík – Hvert skyldi mega rekja upphaf spill-ingar í stjórnmálum og viðskiptum á Íslandi? – spillingar sem varla getur dulizt nokkrum manni lengur og er nú fastur liður í helztu heimildum um spillingu á heims- vísu svo sem Gallup og Transparency International. Það er segin saga að spilling og van- traust eru nánast eins og tvær hliðar á sömu mynt. Gallup greindi nýlega frá því að næstum fimm af hverjum sex Íslendingum vantreysta Alþingi og fjórir af hverjum fimm vantreysta viðskiptabönkunum. Nærtæk skýr- ing á megnu vantrausti í garð Alþingis er spilling stjórnmálanna og margar birtingarmyndir hennar. Spilling grefur undan trausti. Einkavæðingin? Kvótakerfið? Menn leita mislangt aftur í tímann að upphafinu. Sumir kunna að telja ófögnuðinn hafa byrjað með einkavæðingu bankanna 1998-2003 sem var svo illa og óheiðarlega ef ekki beinlínis glæp- samlega útfærð að hún leiddi lóðbeint til hruns fjármálakerfisins fáeinum árum síðar með hörmulegum af leið- ingum fyrir mikinn fjölda fólks innan lands og utan. Alþingi samþykkti en lét þó hjá líða að rannsaka hvort lög voru brotin við einkavæðingu bankanna. Flestir hljóta samt að geta fallizt á að einkavæðing bankanna var ekki bara uppspretta nýrrar spill- ingar heldur einnig af leiðing eldri spillingar sem hafði brotizt upp á yfirborðið 15-20 árum fyrr. Það var þegar Alþingi ákvað gegn ítrekuðum aðvörunum að af henda útvegs- mönnum ókeypis aðgang að fiskinum í sjónum sem hefur þó í bráðum 30 ár átt að heita sameign þjóðarinnar skv. lögum. Alþingi hóf þá til f lugs nýja stétt auðmanna sem hafa leikið á þingið eins og falska fiðlu æ síðan. Þetta ráðslag Alþingis hefur haft alvarlegar af leiðingar. Innviðir sam- félagsins – heilbrigðisþjónustan, vel- ferðarkerfið o.f l. – hafa sumir veikzt, sumir segja morknað, meðan hin nýja stétt auðmanna hefur rakað saman annarra fé í eigin þágu. Höftin? Hermangið? Enn aðrir telja ófögnuðinn hafa risið löngu fyrr, sumir nefna höftin 1927- 1960, aðrir stríðið 1939-1945. Ísland var eitt fátækasta land Vestur-Evrópu þegar síðari heimsstyrjöldin brauzt út og eitt ríkasta landið í stríðslok. Svo var fyrir að þakka hernámi Breta 1940 og Bandaríkjamanna 1941 og þeim uppgripum sem fylgdu hernáminu. Bandaríkjamenn ílentust hér eftir stríð í krafti Kef la- víkursamningsins sem þeir gerðu við íslenzk stjórnvöld 1946 til að leysa af hólmi herverndarsamninginn frá 1941 eins og Valur Ingimundarson prófessor lýsir vel í bók sinni Í eldlínu Kalda stríðsins 1996. Herverndin skilaði Íslendingum ekki bara miklum tekjum heldur gagngerum umskiptum í efnahagslífinu, nýrri verkmenningu o.m.f l. Gjaldeyris- tekjur af hernum námu 15%-20% af heildargjaldeyristekjum þjóðarinnar 1953-1955. Séu öll árin sem herinn var hér skoðuð í heild, 1940-2006, lætur nærri að gjaldeyristekjurnar af hernum hafi numið um 2% af lands- framleiðslu á ári að jafnaði. Hermangið leiddi af sér spillingu og efnahagsbrot. Kristján Pétursson löggæzlumaður lýsir því undir rós í sjálfsævisögu sinni Margir vildu hann feigan (1990) hvernig reynt var að múta honum til að fella niður rannsókn á olíumálinu sem lyktaði m.a. með sektardómi Hæstaréttar yfir einum helzta virðingarmanni lands- ins. Kristján sagði mér í einkasamtali að hann þakkaði Bjarna Benedikts- syni, þá dómsmálaráðherra, síðar forsætisráðherra, fyrir að hafa tryggt sér og félögum sínum skjól til að ljúka rannsókninni. Þetta er ekki allt. Stjórnvöld kreistu lánsfé á góðum kjörum auk beinna styrkja út úr Bandaríkjastjórn og öðrum bandamönnum í tengslum við eða skiptum fyrir veru hersins hér með lítt dulbúnum hótunum um að snúa sér ella til Rússa eins og Valur Ingimundarson rekur í bók sinni. Þennan sama leik léku Færeyingar gagnvart Dönum fram að hruni Fær- eyja 1989 eins og Eðvarð T. Jónsson lýsir í bók sinni Hlutskipti Færeyja (1994). Í þessu ljósi þarf að skoða áhuga ríkisstjórnar Íslands eftir hrun á að af la „nýrra vina“. Frændum okkar og vinum á Norðurlöndum sem ásamt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fjármögn- uðu rústabjörgunina hér heima þegar til kastanna kom brá í brún þegar þeir stóðu frammi fyrir hótunum stjórnvalda strax eftir hrun um að leita ásjár hjá Rússum, og einnig Kín- verjum eins og síðar kom í ljós. Seðla- bankinn sendi menn til Moskvu til að semja við Kremlverja. Bankinn á enn eftir að gera grein fyrir þeirri för og lyktum hennar líkt og ýmsu öðru. Við getum farið enn lengra aftur í tímann til að grafast fyrir um rætur spillingarinnar. Bankahneyksli, sum með stjórnmálaívafi, hafa gosið upp annað veifið allar götur frá fyrstu árum heimastjórnar. Spillingin er þó ekki nema öðrum þræði afsprengi einstakra atburða sögunnar heldur vefur, spillingarvefur. Meira næst, frá Panama. Kaldir eldar Gallup greindi nýlega frá því að næstum fimm af hverjum sex Íslendingum vantreysta Alþingi og fjórir af hverjum fimm van- treysta viðskiptabönkunum. Nærtæk skýring á megnu van- trausti í garð Alþingis er spill- ing stjórnmálanna og margar birtingarmyndir hennar. Spill- ing grefur undan trausti. Sparneytnari, hagkvæmari og hljóðlátari ISUZU D-MAX Isuzu D-Max BASIC dísil, beinskiptur. Verð: 5.090.000 kr. (Verð án vsk: 4.100.483 kr.) Isuzu D-Max PRO dísil, sjálfskiptur. Verð: 5.990.000 kr. (Verð án vsk: 4.830.645 kr.) 164 hestöfl – 3.500 kg dráttargeta. Eyðsla frá 7,0 l/100km* E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 8 2 5 I s u z u D - M a x a lm e n n 5 x 3 8 m a rs *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 7 . M A R S 2 0 1 9 0 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 F -8 E C 8 2 2 7 F -8 D 8 C 2 2 7 F -8 C 5 0 2 2 7 F -8 B 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 7 2 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.